Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.11.2022, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 16.11.2022, Qupperneq 10
Hefur gaman af því að kynnast nýju fólki Halldóra Mjöll æfir crossfit, spilar á píanó og er meðlimur unglingaráðs Fjörheima. Hún er félagslynd og hefur gaman af því að kynnast nýju fólki. Halldóra er ungmenni vikunnar. Hvert er skemmtilegasta fagið? Örugglega stærðfræði því að kennarinn er æðislegur. Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Kannski bara Rúnar Leó, hann gæti orðið atvinnumaður í fótbolta. Skemmtilegasta saga úr skólanum: Reykjarferðin var geggjuð, hárgreiðslu- keppnin var það besta við ferðina. Hver er fyndnastur í skólanum? Elvar Breki á sín „móment“. Hvert er uppáhaldslagið þitt? Uppáhaldslagið mitt er Cigarettes out the Window eftir TV Girl eða Bernskan eftir Ásgeir Trausta. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Ég get aldrei fengið nóg af plokkfiski. Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? Krampus. Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju og hvers vegna? Símann minn, liti og teiknibók. Ég myndi nota símann minn til að hringja á aðstoð og teikna á meðan ég bíð eftir henni. Hver er þinn helsti kostur? Ég er félags- lynd og hef gaman af því að kynnast nýju fólki. Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að vera með restina af ævinni, hvað myndir þú velja? Fjarflutning. Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Þegar fólk er góðhjartað. Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla? Mig langar að verða sálfræðingur. Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði hvaða orð væri það? Glaðlynd. Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Ákafur fótboltakappi Jón Garðar stefnir á atvinnu- mennsku í fótbolta en hann dreymir einnig um að fara í háskóla erlendis. Jón ákvað að fara í FS vegna þess að það er stutt fyrir hann að fara í skólann en einnig stutt fyrir hann að kíkja í heimsókn til ömmu sinnar og afa í frímín- útum. Jón er FS-ingur vikunnar. Hvers saknar þú mest við grunnskóla? Það verður að vera starfsfólkið og nem- endurnir, allir algjörir snillingar. Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS? Skólinn er stutt frá, þá þarf ég ekki að vera í þessu strætóveseni. Hver er helsti kosturinn við FS? Helsti kosturinn er hversu stutt það er að fara til ömmu og afa í eyðu/mat. Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Það er æðislegt. Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Hermann Borgar er án efa framtíðarborgar- stjóri eða eitthvað svoleiðis. Hver er fyndnastur í skólanum? Jónas Dagur, hann er ekkert eðlilega fyndinn. Hvað hræðist þú mest? Köngulær, skíthræddur við þær. Hvað er heitt og hvað er kalt þessa stundina? Það heita er spennan fyrir HM í fótbolta og það kalda er hversu leiðinlegt er að vera ekki með bílpróf. Hvert er uppáhaldslagið þitt? Sing for the moment með Eminem. Hver er þinn helsti kostur? Það er ábyggi- lega að vera góður í spurningakeppnum. Hvaða forrit eru mest notuð í símanum þínum? TikTok og Snap. Hver er stefnan fyrir framtíðina? Ég stefni á að verða atvinnumaður í fótbolta. Hver er þinn stærsti draumur? Að fara erlendis í háskóla. Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði, hvaða orð væri það og af hverju? Ákafur, vegna þess að yfirleitt gef ég 100% í það sem ég geri. Fs-ingur vikunnar Nafn: Jón Garðar Arnarsson Aldur: 16 ára Námsbraut: Viðskipta- og hagfræðibraut Áhugamál: Fótbolti Ungmenni vikunnar Nafn: Halldóra Mjöll Ingiþórsdóttir Skóli: Heiðarskóli Bekkur: 9. bekkur Aldur: 14 ára Áhugamál: Crossfit, píanó og félagsstörf Ákall um fjölgun félagsmiðstöðva í Reykjanesbæ Þann 1. nóvember síðastliðinn var haldinn sameiginlegur fundur bæjarstjórnar og ungmennaráðs Reykjanesbæjar. Á fundinum fóru tólf meðlimir ráðsins með fjölbreytt erindi um mál sem varða börn og ungmenni. Á fundinum mátti heyra að andleg heilsa ungmenna er mikið áhyggjuefni meðal ungmenna og voru lagðar fram tillögur um það hvernig mætti bæta úr því en þar má nefna að auka fræðslu um fjármál, kynfræðslu, tómstundir og svefn. Einnig var talað um að grunnskólar ættu að bjóða upp á fríar tíðarvörur fyrir ungmenni í Reykjanesbæ, auka samráð og upplýsingaflæði til barna um málefni sem snerta þau og að bæta ætti aðstöðu fimleikadeildar Keflavíkur sem og knattspyrnu­ deildar UMFN en sú aðstaða er ekki í samræmi við þann fjölda sem stundar báðar íþróttirnar í sveita­ félaginu. Ungmennin voru þó ekki aðeins að nefna það sem mætti betur fara, þau hrósuðu Reykja­ nesbæ fyrir vel heppnaða Ljósa­ nótt, Aðventugarðinn og aukinn metnað í menningarstarfi og hvetja þau Reykjanesbæ að halda áfram að styðja við það. Ungmennaráðið lagði sérstaka áherslu á að nauðsynlegt sé að fjölga félagsmiðstöðvum í bænum, í sam­ ráði við félagsmiðstöðina Fjörheima. Þá sé staða ungmenna á Ásbrú og í Innri­Njarðvík sérstaklega slæm þar sem rannsóknir sýna að framboð tómstunda í nærumhverfi barna og ungmenna sé góð forvörn gegn of­ beldi, vímuefnanotkun og drykkju. Formaður ungmennaráðsins gagn­ rýndi sveigjanleika fjarvistarkerfis Fjölbrautaskóla Suðurnesja en nefndi þó að vandamálið sé á lands­ vísu og að breyta þurfi framhalds­ skólalögum til að gera ungmennum kleift að taka virkan þátt í félags­ starfi án þess að fá fjarvistir. Síðast en ekki síst þakkaði ráðið Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra, og bæjarstjórn sérstaklega fyrir gott frumkvæði að setja á stokk áheyrn­ arfulltrúaverkefni en verkefnið felur í sér að meðlimir ungmennaráðs sitja sem áheyrnarfulltrúar í fagráðum og nefndum Reykjanesbæjar að undan­ skyldum bæjarráði og barnaverndar­ nefnd. Ungmennaráðið telur Reykja­ nesbæ vera á góðri leið með innleið­ ingu á verkefninu Barnvænt sveitar­ félög og þakkar verkefnastjóra verk­ efnisins, Hirti Magna Sigurðssyni, fyrir góða vinnu og gott samstarf. Hermann Borgar Jakobsson, varaformaður ungmennaráðs Reykjanesbæjar, fer með sína ræðu. 10 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.