Víkurfréttir - 16.11.2022, Page 11
„Við byrjuðum að glíma á efri hæðinni í gamla Festi,“ segir Jóhannes Haraldsson, eða Jói júdó eins og
hann er jafnan kallaður. Jói er lifandi goðsögn í Grindavík en hann er guðfaðir júdóíþróttarinnar þar í
bæ og var með fyrstu landsliðsmönnum Íslands í íþróttinni. Jói er að austan en fluttist snemma suður,
iðkaði hinar ýmsu íþróttir og var frambærilegur knattspyrnumaður um tíma áður en hann sneri sér
alfarið að júdóinu. Jói er lærður húsasmiður, reyndi fyrir sér í smábátaútgerð og þótt hann sé nýorðinn
80 ára gamall þá tekur hann hamarinn stundum upp og bregður sér jafnvel í júdógallann.
Jói fæddist á Seyðisfirði 1942 og ólst
þar upp fyrstu árin ásamt systkinum
sínum sem flest fæddust þar. „Þetta
var á stríðsárunum, þarna var hinu
fræga breska olíuskipi, El grillo, sökkt
af þýskum herflugvélum er það lá
við akkeri fyrir utan Seyðisfjörð.
Pabbi var að vinna sem stöðvar
stjóri yfir rafstöðinni og slökkti ljósin
í bænum þegar þetta reið yfir til að
reyna afstýra hættunni. Fjölskyldan
fluttist svo 1945 suður og settist að
í Kópavogi en fyrsta vinna pabba var
einmitt hér í Grindavík, setti upp raf
stöð austur í hverfi. Ég kunni aldrei
sérstaklega vel við mig á höfuð
borgarsvæðinu og nýtti hvert tæki
færi sem gafst til að fara til systur
minnar sem var bóndakona í sveit.“
Jói hneygðist fljótt til íþrótta og
æfði og spilaði fótbolta með Breiða
bliki, lék upp alla yngri flokka og á
einhverja leiki með þeim í meistara
flokki. „Ég var alltaf með gott út
hald og gat hlaupið mikið. Þess
vegna hentaði vel að láta mig spila á
kantinum. Eftir grunnskóla fór ég í
íþróttaskólann í Haukadal og kynnist
þar m.a. íslenskri glímu og væntan
lega kviknaði eitthvað ljós hjá mér
þá því þegar ég var einhverjum árum
síðar að vinna með mönnum sem
stunduðu júdó, og var að tuskast við
þá, kom í ljós að ég var bara nokkuð
lunkinn og þeir hvöttu mig til að
kíkja á æfingar með sér. Sem gutti
tuskaðist ég mikið við eldri bræður
mína og það var bara þannig í Kópa
voginum að ef maður gat ekki varið
sig þá var maður laminn eins og
harðfiskur, þess vegna öðlaðist ég
snemma góða færni sem nýttist mér
síðar meir í júdóinu.“
Flytur til Grindavíkur
Jói lærði húsasmíði í Kópavogi
og flutti til Grindavíkur árið 1971
vegna vinnu. „Ég fann strax að þar
sló hjartað og ég kunni vel við mig.
Spilaði fótbolta með Grindavík en
vinnan tók ansi mikinn tíma en
ég var í leiðinni að byggja þak yfir
höfuð fjölskyldunnar. Júdóið var
mér líka ofarlega í huga og fljótlega
var ég farinn að draga Grindvíkinga
með mér til að tuskast við þá. Við
byrjuðum að glíma í gamla Festi,
Tommi Tomm, sem þá rak Festi
og er í dag alþingismaður og veit
ingamaður á Hamborgarabúllunni,
leyfði okkur að æfa uppi en þar var
teppi. Fljótlega fengum við þó inni
í gamla íþróttasalnum við grunn
skólann og gátum notast við gamlar
fimleikadýnur. Svo voru pantaðar
alvöru júdódýnur en peningar voru
af skornum skammti og ég þurfti að
leysa dýnurnar út sjálfur. Eftir þetta
byrjuðu reglubundnar æfingar og ég
sá strax að efniviðurinn var góður,
þetta voru allt hraustir strákar sem
höfðu greinilega tekið til hendinni
og unnið í fiski og á sjó. Það gefur
auga leið að júdómaður þarf að búa
yfir líkamlegum styrk og þegar þessir
strákar byrjuðu að æfa og lærðu
réttu handtökin, þá voru þeir fljótir
að komast upp á lagið.
Ég varð fyrsti Íslandsmeistarinn í
júdó frá Grindavík árið 1972 og mjög
fljótlega fóru að koma upp góðir jú
dómenn í Grindavík, þekktastur
þeirra er Ólympíufarinn Sigurður
Bergmann en hann keppti á Ól
ympíuleikunum í Seúl árið 1988.
Einnig var Björn Lúkas Haraldsson
mjög öflugur, varð tvöfaldur Norður
landameistari í unglingaflokkum en
hann sneri sér svo að blönduðum
bardagaíþróttum (MMA).“
Keyrt með guttana í sendibíl í mót
„Þetta var frumstætt til að byrja
með og líklega yrði nú ekki samþykkt
hvernig ég ferðaðist með guttana í
keppnir til Reykjavíkur en þá komu
strákarnir sér einfaldlega fyrir aftur í
vinnubílnum mínum. Þetta tíðkaðist
í þá daga, svona var þetta bara. Ég
var með allt batterýið í höndunum
fyrstu árin, þjálfaði, rak deildina og
var fljótlega farinn að dæma líka í
mótum. Þá þurfti ég stundum að
bregða mér úr júdógallanum og fara
í dómarabúninginn. Þetta var oft
mikið álag en ég sé ekki eftir neinu,
ef ég náði að forða einhverjum
unglingnum frá slæmum félagsskap
og óreglu með því að draga hann í
júdóið, þá var tilganginum náð. Ég
var á kafi í þessu til aldamóta en
þá tók Gunnar sonur minn við sem
formaður deildarinnar. Ég hef alltaf
fylgst með og verð að segja að mér
líst ekki nóg vel á árangurinn í dag,
ég vil ekki vera í íþróttum bara til
að vera með, það verður að stefna á
árangur,“ segir Jói.
Landsliðsferillinn og
Íslandsmeistari 48 ára gamall
Jói var með fyrstu landsliðsmönnum
Íslands. „Við fórum árlega á Norður
landamót. Það voru engir peningar í
þessu þá og maður þurfti sjálfur að
greiða fyrir þessar keppnisferðir. Ég
keppti fyrir Íslands hönd til fjölda
ára en síðasti Íslandsmeistaratitillinn
kom þegar ég var 48 ára gamall, þá
unnum við Grindvíkingar sveita
keppnina en ég hætti að glíma um
fimmtugsaldurinn. Það er ekki gott
að segja hvenær júdógarpurinn
toppar en við getum keppt lengur en
knattspyrnumaður t.d. sem toppar á
bilinu 2730 ára að talið er.
Ég held að framtíðin í júdó á Ís
landi sé góð en landslagið er breytt
því það hafa margir útlendingar
flust til Íslands á undanförnum
árum. Það er bæði gott og slæmt en
fleiri bardagalistir hafa þ.a.l. komið
hingað, t.d. sambó sem er rússnesk
fjölbragðaglíma. Við verðum að
passa að slíkt taki ekki júdóið yfir
en auðvitað koma þá í leiðinni fleiri
öflugir glímumenn og munu vonandi
reynast júdóíþróttinni vel.“
Útgerðarsmiður
Jói reyndi fyrir sér í útgerð. „Ég gekk
alltaf með útgerðarmannsdraum
í maganum og reyndi fyrir mér í
strandveiðinni en sá fljótt að þetta
skyldi ekki nóg eftir sig til að sinna
viðhaldi en ég lenti í bilunum eins
og gengur og gerist. Þetta er erfitt ef
maður á ekki kvóta og ég lagði því
útgerðarmanninn á hilluna og ein
beitti mér að því sem ég kann best,
að smíða hús. Þótt ég sé hættur að
vinna, enda orðinn 80 ára gamall, þá
er ég oft með hamarinn í höndunum.
Heilsan er í toppstandi, ég er hvergi
af baki dottinn og sé fyrir mér góð ár
þar til ég held á fund forfeðranna,“
sagði Jói að lokum.
Húsasmiðurinn sem slóst mikið
í æsku og endaði í júdógallanum
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Íslandsmeistarar UMFG í Júdó árið 1990. Jói og félagar í morgunkaffi á Olís þar sem „Bull og píp“ fundar reglulega.
Kreppa fær
styrk gegn upp-
byggingu
Minja- og sögufélag Grinda-
víkur, sem eignaðist nýlega
fasteignina Kreppu, hefur óskað
eftir styrk frá Grindavíkurbæ á
móti greiðslu fasteignagjalda.
Frístunda- og menningarnefnd
lagði til við bæjarráð að veita
félaginu styrk á móti greiðslu
fasteignagjalda á árinu 2023
með þeim fyrirvara að unnið
verði að uppbyggingu hússins á
því ári í samræmi við framlögð
gögn.
Bæjarráð samþykkir að veita
félaginu styrk á móti fasteigna
gjöldum á árinu 2023 með sama
fyrirvara og hjá frístunda og
menningarnefnd.
Blóðsykurs-
mæling Lions
föstudaginn
18. nóvember
Lionsklúbbur Grindavíkur
býður upp á fría blóðsykur-
mælingu í Nettó Grindavík.
Mælt verður föstudaginn 18.
nóvember frá kl. 13:00 til 15:00.
Mælingin er hluti af landsátaki
Lionshreyfingarinnar og vitund-
arvakningu um sykursýki.
Nóvember ár hvert er mán
uður sykursýkisvarna hjá Lions.
Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar
um land upp á fría blóðsykur
mælingu. Markmiðið er að vekja
almenning til umhugsunar um
hættuna sem getur stafað af því
að ganga með dulda sykursýki.
Mælingin er öllum að kostn
aðarlausu og viljum við hvetja
alla bæjarbúa til að nýta sér þessa
þjónustu Lions.
Allir velkomnir í mælingu.
Fyrirkomulag kjörs og útnefningu
á íþróttafólki Grindavíkur 2022
var til umræðu á síðasta fundi
frístunda- og menningarnefndar
Grindavíkur. Nefndin hefur mögu-
leika á að tilnefna einstaklinga með
lögheimili í Grindavík sem skarað
hafa fram úr í íþróttum og utan
íþróttafélaga í Grindavík. Nefndin
mun ekki nýta rétt sinn á að til-
nefna að þessu sinni.
Tilnefnda ekki
einstaklinga utan
íþróttafélaga í
Grindavík
vf is
Grindvískar fréttir
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 11