Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.11.2022, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 16.11.2022, Qupperneq 11
„Við byrjuðum að glíma á efri hæðinni í gamla Festi,“ segir Jóhannes Haraldsson, eða Jói júdó eins og hann er jafnan kallaður. Jói er lifandi goðsögn í Grindavík en hann er guðfaðir júdóíþróttarinnar þar í bæ og var með fyrstu landsliðsmönnum Íslands í íþróttinni. Jói er að austan en fluttist snemma suður, iðkaði hinar ýmsu íþróttir og var frambærilegur knattspyrnumaður um tíma áður en hann sneri sér alfarið að júdóinu. Jói er lærður húsasmiður, reyndi fyrir sér í smábátaútgerð og þótt hann sé nýorðinn 80 ára gamall þá tekur hann hamarinn stundum upp og bregður sér jafnvel í júdógallann. Jói fæddist á Seyðisfirði 1942 og ólst þar upp fyrstu árin ásamt systkinum sínum sem flest fæddust þar. „Þetta var á stríðsárunum, þarna var hinu fræga breska olíuskipi, El grillo, sökkt af þýskum herflugvélum er það lá við akkeri fyrir utan Seyðisfjörð. Pabbi var að vinna sem stöðvar­ stjóri yfir rafstöðinni og slökkti ljósin í bænum þegar þetta reið yfir til að reyna afstýra hættunni. Fjölskyldan fluttist svo 1945 suður og settist að í Kópavogi en fyrsta vinna pabba var einmitt hér í Grindavík, setti upp raf­ stöð austur í hverfi. Ég kunni aldrei sérstaklega vel við mig á höfuð­ borgarsvæðinu og nýtti hvert tæki­ færi sem gafst til að fara til systur minnar sem var bóndakona í sveit.“ Jói hneygðist fljótt til íþrótta og æfði og spilaði fótbolta með Breiða­ bliki, lék upp alla yngri flokka og á einhverja leiki með þeim í meistara­ flokki. „Ég var alltaf með gott út­ hald og gat hlaupið mikið. Þess vegna hentaði vel að láta mig spila á kantinum. Eftir grunnskóla fór ég í íþróttaskólann í Haukadal og kynnist þar m.a. íslenskri glímu og væntan­ lega kviknaði eitthvað ljós hjá mér þá því þegar ég var einhverjum árum síðar að vinna með mönnum sem stunduðu júdó, og var að tuskast við þá, kom í ljós að ég var bara nokkuð lunkinn og þeir hvöttu mig til að kíkja á æfingar með sér. Sem gutti tuskaðist ég mikið við eldri bræður mína og það var bara þannig í Kópa­ voginum að ef maður gat ekki varið sig þá var maður laminn eins og harðfiskur, þess vegna öðlaðist ég snemma góða færni sem nýttist mér síðar meir í júdóinu.“ Flytur til Grindavíkur Jói lærði húsasmíði í Kópavogi og flutti til Grindavíkur árið 1971 vegna vinnu. „Ég fann strax að þar sló hjartað og ég kunni vel við mig. Spilaði fótbolta með Grindavík en vinnan tók ansi mikinn tíma en ég var í leiðinni að byggja þak yfir höfuð fjölskyldunnar. Júdóið var mér líka ofarlega í huga og fljótlega var ég farinn að draga Grindvíkinga með mér til að tuskast við þá. Við byrjuðum að glíma í gamla Festi, Tommi Tomm, sem þá rak Festi og er í dag alþingismaður og veit­ ingamaður á Hamborgarabúllunni, leyfði okkur að æfa uppi en þar var teppi. Fljótlega fengum við þó inni í gamla íþróttasalnum við grunn­ skólann og gátum notast við gamlar fimleikadýnur. Svo voru pantaðar alvöru júdódýnur en peningar voru af skornum skammti og ég þurfti að leysa dýnurnar út sjálfur. Eftir þetta byrjuðu reglubundnar æfingar og ég sá strax að efniviðurinn var góður, þetta voru allt hraustir strákar sem höfðu greinilega tekið til hendinni og unnið í fiski og á sjó. Það gefur auga leið að júdómaður þarf að búa yfir líkamlegum styrk og þegar þessir strákar byrjuðu að æfa og lærðu réttu handtökin, þá voru þeir fljótir að komast upp á lagið. Ég varð fyrsti Íslandsmeistarinn í júdó frá Grindavík árið 1972 og mjög fljótlega fóru að koma upp góðir jú­ dómenn í Grindavík, þekktastur þeirra er Ólympíufarinn Sigurður Bergmann en hann keppti á Ól­ ympíuleikunum í Seúl árið 1988. Einnig var Björn Lúkas Haraldsson mjög öflugur, varð tvöfaldur Norður­ landameistari í unglingaflokkum en hann sneri sér svo að blönduðum bardagaíþróttum (MMA).“ Keyrt með guttana í sendibíl í mót „Þetta var frumstætt til að byrja með og líklega yrði nú ekki samþykkt hvernig ég ferðaðist með guttana í keppnir til Reykjavíkur en þá komu strákarnir sér einfaldlega fyrir aftur í vinnubílnum mínum. Þetta tíðkaðist í þá daga, svona var þetta bara. Ég var með allt batterýið í höndunum fyrstu árin, þjálfaði, rak deildina og var fljótlega farinn að dæma líka í mótum. Þá þurfti ég stundum að bregða mér úr júdógallanum og fara í dómarabúninginn. Þetta var oft mikið álag en ég sé ekki eftir neinu, ef ég náði að forða einhverjum unglingnum frá slæmum félagsskap og óreglu með því að draga hann í júdóið, þá var tilganginum náð. Ég var á kafi í þessu til aldamóta en þá tók Gunnar sonur minn við sem formaður deildarinnar. Ég hef alltaf fylgst með og verð að segja að mér líst ekki nóg vel á árangurinn í dag, ég vil ekki vera í íþróttum bara til að vera með, það verður að stefna á árangur,“ segir Jói. Landsliðsferillinn og Íslandsmeistari 48 ára gamall Jói var með fyrstu landsliðsmönnum Íslands. „Við fórum árlega á Norður­ landamót. Það voru engir peningar í þessu þá og maður þurfti sjálfur að greiða fyrir þessar keppnisferðir. Ég keppti fyrir Íslands hönd til fjölda ára en síðasti Íslandsmeistaratitillinn kom þegar ég var 48 ára gamall, þá unnum við Grindvíkingar sveita­ keppnina en ég hætti að glíma um fimmtugsaldurinn. Það er ekki gott að segja hvenær júdógarpurinn toppar en við getum keppt lengur en knattspyrnumaður t.d. sem toppar á bilinu 27­30 ára að talið er. Ég held að framtíðin í júdó á Ís­ landi sé góð en landslagið er breytt því það hafa margir útlendingar flust til Íslands á undanförnum árum. Það er bæði gott og slæmt en fleiri bardagalistir hafa þ.a.l. komið hingað, t.d. sambó sem er rússnesk fjölbragðaglíma. Við verðum að passa að slíkt taki ekki júdóið yfir en auðvitað koma þá í leiðinni fleiri öflugir glímumenn og munu vonandi reynast júdóíþróttinni vel.“ Útgerðarsmiður Jói reyndi fyrir sér í útgerð. „Ég gekk alltaf með útgerðarmannsdraum í maganum og reyndi fyrir mér í strandveiðinni en sá fljótt að þetta skyldi ekki nóg eftir sig til að sinna viðhaldi en ég lenti í bilunum eins og gengur og gerist. Þetta er erfitt ef maður á ekki kvóta og ég lagði því útgerðarmanninn á hilluna og ein­ beitti mér að því sem ég kann best, að smíða hús. Þótt ég sé hættur að vinna, enda orðinn 80 ára gamall, þá er ég oft með hamarinn í höndunum. Heilsan er í toppstandi, ég er hvergi af baki dottinn og sé fyrir mér góð ár þar til ég held á fund forfeðranna,“ sagði Jói að lokum. Húsasmiðurinn sem slóst mikið í æsku og endaði í júdógallanum GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is Íslandsmeistarar UMFG í Júdó árið 1990. Jói og félagar í morgunkaffi á Olís þar sem „Bull og píp“ fundar reglulega. Kreppa fær styrk gegn upp- byggingu Minja- og sögufélag Grinda- víkur, sem eignaðist nýlega fasteignina Kreppu, hefur óskað eftir styrk frá Grindavíkurbæ á móti greiðslu fasteignagjalda. Frístunda- og menningarnefnd lagði til við bæjarráð að veita félaginu styrk á móti greiðslu fasteignagjalda á árinu 2023 með þeim fyrirvara að unnið verði að uppbyggingu hússins á því ári í samræmi við framlögð gögn. Bæjarráð samþykkir að veita félaginu styrk á móti fasteigna­ gjöldum á árinu 2023 með sama fyrirvara og hjá frístunda­ og menningarnefnd. Blóðsykurs- mæling Lions föstudaginn 18. nóvember Lionsklúbbur Grindavíkur býður upp á fría blóðsykur- mælingu í Nettó Grindavík. Mælt verður föstudaginn 18. nóvember frá kl. 13:00 til 15:00. Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitund- arvakningu um sykursýki. Nóvember ár hvert er mán­ uður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykur­ mælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki. Mælingin er öllum að kostn­ aðarlausu og viljum við hvetja alla bæjarbúa til að nýta sér þessa þjónustu Lions. Allir velkomnir í mælingu. Fyrirkomulag kjörs og útnefningu á íþróttafólki Grindavíkur 2022 var til umræðu á síðasta fundi frístunda- og menningarnefndar Grindavíkur. Nefndin hefur mögu- leika á að tilnefna einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum og utan íþróttafélaga í Grindavík. Nefndin mun ekki nýta rétt sinn á að til- nefna að þessu sinni. Tilnefnda ekki einstaklinga utan íþróttafélaga í Grindavík vf is Grindvískar fréttir vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.