Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 10
Forstjóri Verna segir að
pakkatilboð tryggingafyrir-
tækja geri það að verkum að
of fáir viðskiptavinir skipti
um tryggingarfélög á Íslandi.
Tryggingarfélög segja að mikil
samkeppni sé á markaðnum
en margir kalla eftir auknu
gegnsæi.
Friðrik Þór Snorrason, forstjóri
tryggingartæknifélagsins Verna,
segir lítið gegnsæi ríkja í verð-
lagningu vátrygginga á Íslandi og
að pakkatilboð geri það að verkum
að flökt viðskiptavina á milli trygg-
ingarfélaga er mjög lítið.
Aðeins 10 til 15 prósent Íslendinga
skipti um tryggingafélag á hverju ári
og segir Friðrik ástæðuna vera sú að
viðskiptavinir þori ekki að færa eina
tryggingu yfir til annars félags þar
sem þeir óttast að missa afsláttinn
af heildarpakka sínum.
Hann vitnar í greiningu frá Bret-
landi sem sýndi að eftir því sem
viðskiptavinir voru lengur hjá
ákveðnu tryggingafyrirtæki hækk-
uðu iðgjöld þeirra með hverju ári.
„Það er hætta á því þegar þú ert
með tryggðarkerfi að það ýti undir
að ef þú ert ekki að fylgjast með
kjörunum þínum þá hækka kjörin
á hverju ári. Í Bretlandi voru þeir
sem ekki höfðu skipt um trygginga-
fyrirtæki í fimm ár að jafnaði að
borga tugum prósenta meira fyrir
tryggingar. Þeir settu ný lög sem
bannaði slíka mismunun þann-
ig að nýir og gamlir viðskiptavinir
sem falla innan sama áhættuflokks
borguðu sömu kjör,“ segir Friðrik.
Friðrik segir að það þurfi einn-
ig að gera greinarmun á milli
áhættumats og tryggðarkerfis.
Á hæt t u l íkön t r yg g inga félag-
anna samanstanda af mörgum
breytum, þar með talið aldur,
hei m i l i s f a ng , ger ð bí l s og
fleira. Þannig vegur áhættulíkanið
á hverjum tíma þá þætti sem hafa
áhrif á áhættuna og byggir til að
mynda endurnýjunarverð á þeim
breytum.
„Það er rétt að því betra sem
áhættumatið þitt er, því sam-
keppnishæfari ert þú. Hins vegar
hefur það ekkert með tryggðar-
kerfið að gera. Flækjan í tryggingum
og verðsamanburði er að þú ert að
verðleggja einstaklinginn og þá
áhættu sem fylgir honum og það er
til dæmis ekkert sanngjarnt að aðili
sem keyrir á Hummer jeppa borgi
það sama og sá sem keyrir á Toyotu
Yaris.“
Talsmenn tryggingafélaga á
Íslandi segja hins vegar að mikil
samkeppni sé á tryggingamark-
aðnum og að viðskiptavinir beri
mikið traust til tryggingafélaga
sinna. Sjóvá hefur til dæmis sex
sinnum mælst efst allra trygginga-
félaga í Íslensku ánægjuvoginni og
samkvæmt verðkönnun ASÍ bauð
Sjóvá hagstæðustu kjörin þegar
endurgreiðslustefna félagsins var
tekin með inn í reikninginn.
„Sjóvá sker sig úr að því leytinu til
að þegar þú kemur til okkar færðu
bara eðlilegan pakka og þeir stofn-
félagar sem eru búnir að vera tjón-
lausir hjá okkur í ár fá 10 prósenta
endurgreiðslu á hverju ári,“ segir
Jóhann Þórsson, markaðsstjóri Sjó-
vár.
Jóhann bætir við að á síðustu
tveimur árum hafi Sjóvá meðal
annars fellt niður einn mánuð í
heimsfaraldrinum og einnig endur-
greitt allan maímánuð til núverandi
viðskiptavina. Hann segir að Sjóvá
leggi mikið upp úr því að veita við-
skiptavinum sem lenda í slysi góða
þjónustu og að mikilvægt sé að
fylgja þeim í gegnum allt ferlið.
Friðrik Þór segir aftur á móti að
það sé meiri þörf á gegnsæi í trygg-
ingum á Íslandi og að ein leið til
að betrumbæta kerfið væri með
breyttu lagaumhverfi. Þar að auki
segir hann að tryggingafyrirtæki
geti sjálf gert breytingar með því
að endurhugsa nálgun þeirra að
pakkatilboðum. n
Sjóvá sker sig úr að því
leytinu til að þegar þú
kemur til okkar færðu
bara eðlilegan pakka.
Jóhann Þórsson,
markaðsstjóri
Sjóvár.
Flækjan í tryggingum
og verðsamanburði er
að þú ert að verðleggja
einstaklinginn og þá
áhættu sem fylgir
honum.
Friðrik Þór
Snorrason, for-
stjóri Verna.
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
olafur@frettabladid.is
Hagnaður Eimskips eftir skatta
jókst um tæp 70 prósent á síðasta ári
frá árinu 2021, fór úr 50,6 milljónum
evra í 85,3 milljónir.
Tekjur félagsins hækkuðu um
187,9 milljónir evra, eða 21,3 pró-
sent, og námu 1,07 milljörðum evra.
Kostnaður jókst einnig og nam 907,5
milljónum evra, hækkaði um 139,1
milljón evra milli ára. Ástæður
aukins kostnaðar voru hækkun á
aðkeyptri flutningsþjónustu, hærra
olíuverð og verðbólguþrýstingur,
sem hafði áhrif á laun og annan
rekstrarkostnað, segir í tilkynningu
Eimskips til kauphallarinnar.
Stjórn mun leggja til við aðal-
fund, sem haldinn verður 9. mars,
að greiddur verði út arður til hlut-
hafa að fjárhæð 22,5 milljónir evra,
sem jafngildir 26 prósentum af
hagnaði ársins. Enn fremur mun
stjórn leggja til að hlutafé félagsins
verði lækkað um 12,5 milljónir evra
í því skyni að aðlaga fjárhagsskipan
félagsins að langtímamarkmiðum
þess.
„Fjórði ársfjórðungur var góður,
sér í lagi með tilliti til hefðbundinn-
ar árstíðarsveiflu í okkar atvinnu-
grein,“ segir Vilhelm Már Þorsteins-
son, forstjóri Eimskips. „Af koma
fjórðungsins er drifin áfram af góðu
gengi í áætlunarsiglingum félagsins
og góðri eftirspurn á öllum flutn-
ingsleiðum, sérstaklega í Trans-
Atlantic þjónustunni sem skilaði
töluvert betri afkomu en fyrra ár.
Til þess að mæta þeirri eftirspurn
leigðum við 700 eininga gámaskip
inn í f lotann frá og með nóvember,
en á sama tíma lentum við í vélarbil-
un á leiguskipinu EF Ava sem tók sex
vikur í viðgerð og hafði það áhrif á
afkastagetu fjórðungsins.“ Vilhelm
segir félagið hafa séð viðsnúning á
alþjóðlegum flutningamörkuðum
á fjórðungnum með mikilli lækkun
á alþjóðlegu sjóflutningsverði. „Það
jók pressu á framlegð í alþjóðlegri
flutningsmiðlunarstarfsemi okkar,
sér í lagi í Asíu, þar sem afkoma var
lægri samanborið við fyrra ár, þótt
af koman sé góð í sögulegu sam-
hengi.“ n
Gott ár að baki hjá Eimskipi
Vilhelm Már
Þorsteinsson,
forstjóri Eim-
skips.
Eimskip skilaði góðri afkomu á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Pakkatilboð festa viðskiptavini tryggingafélaga
Helgi Steinar
Gunnlaugsson
helgisteinar
@frettabladid.is
Rúmlegur
helmingur allra
greiddra ið-
gjalda á Íslandi
eru bílatrygg-
ingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
10 markaðurinn FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
miðVikuDaGur