Fréttablaðið - 15.02.2023, Blaðsíða 30
Ég er líka svona lág-
vaxin og er ekki körfu-
boltatýpan og vissi að
þetta myndi henta mér
mjög vel.
Hrefna Sætran
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 15. FeBRúAR 2023
MiðViKUDAGUR
BÍÓBÆRINN
MIÐVIKUDAGA KL. 20.00
Gunnar Anton og Árni Gestur
fara yfir þær kvikmyndir sem eru
væntanlegar í bíóhús landsmanna
og dusta einnig rykið af gömlum
gullmolum og fræða áhorfendur um
leyndardóma kvikmyndaheimsins.
Meistarakokkurinn Hrefna
Sætran kom sjálfri sér meira
en öðrum á óvart þegar hún
hafnaði í 1. sæti á sínu fyrsta
kraftlyftingamóti um helgina
eftir að hafa gert sér lítið fyrir
og lyft samanlagt 270 kílóum.
toti@frettabladid.is
„Ég byrjaði að æfa kraftlyftingar
í Covid en hef samt alltaf verið í
einhvers konar hreyfingu og æfði
íþróttir þegar ég var lítil. Þannig
að mér finnst gaman í einhverju
svona,“ segir Hrefna Sætran, meist-
arakokkur á Fiskmarkaðnum, sem
hingað til hefur ekki haft hátt um
að síðustu tvö ár er hún búin að æfa
kraftlyftingar af nokkru kappi.
Hún leynir því þó vart lengur eftir
góðan árangur á sínu fyrsta keppn-
ismóti um helgina þegar hún gerði
sér lítið fyrir og náði 1. sæti í sínum
flokki með því að lyfta samanlagt
270 kílóum; 105 í hnébeygju, 52,5 í
bekkpressu og 112,5 í réttstöðu.
Hún segist alls ekki hafa byrjað
að æfa með keppni í huga og hún
segist hafa komið sjálfri sér meira
á óvart en þeim sem þekkja hana
og hún hló að þeim sem spáðu því
strax í upphafi að hún ætti eftir að
keppa í lyftingunum.
Góð líkamsrækt
Hrefna segir aðspurð að engu sé
logið um það hversu góð líkams-
rækt kraftlyftingarnar eru. „Þær eru
það nefnilega og manni líður ein-
hvern veginn rosalega vel í líkam-
anum eftir að hafa verið að
lyfta,“ segir hún og bætir
við að markmiðið hafi
því í byrjun alls ekki
verið að keppa.
„Mig langaði bara
að lyfta og vissi að
mér myndi finn-
ast þetta mjög
skemmtilegt. Ég
er líka svona
lágvaxin og er
ekki körfu-
b olt at ý pa n
og v issi að
þetta myndi
h e n t a m é r
mjög vel,“ segir
Hrefna og hlær.
Ekkert stress
Hrefna æfir hjá Ingimundi Björg-
vinssyni í Kraftfélaginu og hann
var tvisvar búinn að ræða hugsan-
lega keppni við
hana áður en hún
lét slag standa. „Ég
lét það bara eins og
vind um eyru þjóta
en þegar ég var hvort
eð er byrjuð að æfa
eins og fyrir keppni og
þurfti ekki að breyta
neinu þá byrjaði ég
Meistarakokkurinn lyfti
samanlagt 270 kílóum
Hrefna Sætran er með rétta keppnisskapið og ætlar að halda ótrauð áfram að keppa í kraftlyftingum. mynd/aðsend
Loks þegar
Hrefna mætti til
leiks á lyftinga-
móti náði hún
1. sæti í sínum
flokki með því
að lyfta 270
kílóum saman-
lagt.
mynd/aðsend
bara að æfa með það að markmiði
að keppa,“ segir Hrefna.
„Mér f innst bara ógeðslega
gaman að keppa. Ég var alltaf að
keppa í dansi þegar ég var yngri og
með Kokkalandsliðinu,“ segir hún
og bætir við að hún mæti aldrei
stressuð til keppni. Slík sé ánægjan
og keppnisskapið. „Mér finnst það
bara gaman.“
Út í óvissuna
Þetta var svona byrjendamót og ég
vissi náttúrlega ekkert hvað ég var
að fara út í,“ heldur Hrefna áfram og
bendir á að hún hafi ekki einu sinni
verið áhorfandi á kraftlyftinga-
mótum áður en hún mætti til leiks.
„Þannig að ég bjóst ekkert við
því að enda í einhverju sæti. Ég hélt
ég væri bara að fara að lyfta ein-
hverju og búið. Þannig að þetta kom
skemmtilega á óvart,“ segir Hrefna
og bætir við að hún hafi haft gaman
af því að fá ákveðna mælingu á getu
sína.
„Af því að maður er náttúrlega
ekki að „maxa“ einhverjar þyngdir
þegar maður er bara að æfa einn
einhvers staðar og ég fékk svona
viðmið þarna,“ segir Hrefna Sætran,
sem er komin upp á lagið og þegar
farin að horfa til næsta móts sem
verður í nóvember. n
Hrefna Sætran kom sjálfri sér
mest á óvart um helgina.