Fréttablaðið - 15.02.2023, Qupperneq 18
Það sem ég elska
við kúluvarp er að
geta séð vinnuna sem ég
legg í íþróttina með
hversu langt ég kasta.
Erna Sóley Gunnarsdóttir
Erna Sól ey Gunn ars dótt ir
kúluvarpari stórbætti eigið
Íslands met inn an húss fyrr í
þessum mánuði. Hún stefnir
á Ólympíuleikana í París
árið 2024 og að verða boccia-
meistari á elliheimilinu
þegar hún verður eldri.
starri@frettabladid.is
Kúluvarparinn Erna Sól ey Gunn
ars dótt ir stór bætti eigið Íslands
met inn an húss á há skóla móti í Al
buqu erque í NýjuMexí kó snemma
í þessum mánuði. Þá kastaði Erna
kúl unni 17,70 metra en viku fyrr
hafði hún einnig sett Íslands met
á móti í Texas þegar hún kastaði
17,34 metr a. Kast hennar í Al
buqu erque var ell efta lengsta kast
Evr ópu búa í ár og um leið það
fjór tánda lengsta í heim in um frá
ára mót um.
Stóra markmið hennar í ár er að
komast á heimsmeistaramótið í
ágúst sem verður haldið í Búda
pest í Ungverjalandi. „Ég ætla
mér svo að komast á Ólympíu
leikana í París árið 2024. Þá þarf
ég annaðhvort að komast inn á
stigalista með því að vera í topp
32 í heiminum eða ná lágmarkinu
sem er 18,80 metrar. Það væri auð
vitað best að ná þessu lágmarki
svo ég þurfi ekki að velta fyrir mér
stigunum.“
Ferillinn hófst í Mosfellsbæ
Frjálsíþróttaferill Ernu hófst með
frjálsíþróttanámskeiði hjá Aftur
eldingu í Mosfellsbæ þegar hún
var níu ára gömul. „Það má segja
að áhuginn á frjálsum íþróttum
hafi byrjað þegar ég fylgdist með
Auðvelt að setja markmið og sjá bætingar
Erna Sóley
Gunnarsdóttir
kúluvarpari
hóf kúluvarps-
ferilinn í Mos-
fellsbæ.
Bætiefnið Comfort-U frá
Good Routine er öflug vörn
fyrir þvagfærakerfið og
byggir á fjórum virkum
innihaldsefnum sem hafa
þekkta eiginleika til þess
að koma í veg fyrir blöðru-
bólgu/þvagfærasýkingu.
„ComfortU er sérhannað fyrir fólk
sem vill koma í veg fyrir blöðru
bólgu/þvagfærasýkingu, sem er
ein algengasta bakteríusýkingin
og algengari hjá konum en körlum.
En ein af hverjum fimm konum
upplifir að minnsta kosti eina þvag
færasýkingu á ævinni,“ segir Freydís
Hjálmarsdóttir, næringarfræðingur
að mennt, með BSc og meistara
gráðu í næringarfræði.
„Einstaklingur sem hefur fengið
þvagfærasýkingu er í aukinni
hættu á að fá sýkingu aftur og talið
er að um fjórðungur fái endur
tekna sýkingu innan sex mánaða
og þriðjungur innan árs. Þar af
leita hundruð sýklalyfjameðferðar
við þvagfærasýkingum á Íslandi
á hverju ári. Yfir 80% þvagfæra
sýkinga eru taldar vera af völdum
þarmabakteríunnar e.coli, en aðrar
bakteríur, sveppir og sníkjudýr geta
líka valdið þvagfærasýkingum.“
Fyrirbyggjandi er lykilatriði
Þvagfærasýkingar geta verið afar
óþægilegar en eru þó oftast skað
lausar að sögn Freydísar. „Einstaka
sinnum nær sýkingin til efri þvag
færa eins og nýrna, en það er afar
óalgengt. Til að mynda verða 30%
þvagfærasýkinga einkennalausar á
innan við viku án meðferðar. Hins
vegar getur verið erfitt að eiga við
síendurteknar sýkingar. Þótt þær
séu meðhöndlaðar á áhrifaríkan
hátt með sýklalyfjum, getur óhófleg
notkun sýklalyfja leitt til skaðlegra,
heilsufarslegra afleiðinga.
Til að forðast of mikla útsetningu
fyrir sýklalyfjum leita margir til
fæðubótarefna og náttúrulyfja.
Rannsóknir þar að lútandi eru af
skornum skammti og sumar mis
vísandi, en nokkur fæðubótarefni
gefa góða raun þegar kemur að
því að koma í veg fyrir þvagfæra
sýkingu.“
Fjögur virk efni
ComfortU inniheldur fjögur efni
sem rannsóknir hafa sýnt fram
á að geti hjálpað til við að fyrir
byggja þvagfærasýkingar. Það eru
einsykran Dmannóse, þarma
gerillinn Lactobacillus rueteri og
svo virku efnin í trönuberjum og
sortulyngslaufum (e. bearberry
leaf). „Trönuberin eru frægust, en
eitt virku efnanna í þeim er ein
mitt „Dmannóse“. Sortulyngslauf
þekkja flestir undir nafninu uva
ursi og „Lactobacillus rueteri“ er
einn af góðgerlunum sem finna má
til dæmis í ABmjólk.
Af þessum fjórum efnum hefur
Dmannóse komið hvað best út úr
þeim rannsóknum sem hafa verið
gerðar með tilliti til forvarna vegna
þvagfærasýkinga. Rannsóknir á
Dmannóse sýna fram á marktæka
minnkun á endurteknum þvag
færasýkingum hjá þeim sem fá þær
reglulega. Til þess að sýking nái
fótfestu í þvagfærum þarf e.coli eða
önnur örvera að ná að festast við
blöðruvegginn. Virkni Dmannóse
er sú að bindast til dæmis e.coli
bakteríum, skola þeim út með þvagi
og koma þannig í veg fyrir sýkingu.
Trönuber innihalda meðal
annars Dmannóse, hippúrsýru
og anthósýanín, sem eru talin
torvelda e.coli að festast við þvag
blöðruvegginn. Þrátt fyrir að ekki
séu allir á eitt sáttir, sýnir saman
tekt margra rannsókna fram á
verndandi áhrif Dmannósa gegn
þvagfærasýkingum hjá konum sem
fá þær reglulega. Ekki skemmir fyrir
að trönuber hafa líka marga aðra
heilsubætandi kosti.
Lauf sortulyngs, (önnur nöfn:
uva ursi, bjarnaber, fjallatrönuber)
hafa í árþúsund verið notuð til að
meðhöndla þvagfærasýkingar. Nú
benda rannsóknir til þess að það sé
svo sannarlega eitthvað til í því og
kallað hefur verið eftir fleiri rann
sóknum. Sortulyngið inniheldur
örverueyðandi efnasambönd
sem vinna gegn óvingjarnlegum
bakteríum og hjálpa við upptöku
á efnum úr trönuberjum. Efna
sambönd í laufunum, svo sem
Arbutinin, eru talin vinna gegn
útbreiðslu e.coli meðal annars og
trufla viðloðun bakteríunnar við
blöðruvegginn,“ segir Freydís.
Hjálplegar örverur
Jafnvægi í þvagkerfisflórunni er
svo viðhaldið með hjálp gagn
legu bakteríunnar Lactobacillus
rueteri. „Hjálplegu örverurnar í
líkamanum kallast góðgerlar og er
fjöldinn allur af þeim í meltingar
kerfinu. Við getum bætt um betur
með trefjaríku fæði, abmjólk og
skyldum vörum, súrsuðum mat og
bætiefnum.
Sumir góðgerlar viðhalda
jafnvægi í þvagi, leggöngum og
meltingarvegi með því að fram
leiða efnasambönd sem leyfa ekki
óvinveittum bakteríum að vaxa. Sá
stofn sem er talinn hvað mikilvæg
astur fyrir þvagfærakerfið er Lacto
bacillus rueteri. Þessi bakteríustofn
getur endurheimt náttúrulegt
örverujafnvægi í þvagfærum og
getur myndað efnasambönd sem
leyfa ekki óvinveittum bakteríum
að vaxa og dafna.“
Fjölþætt fyrirbyggjandi virkni
Í ComfortU koma saman þrjú virk
innihaldsefni sem eru studd af
rannsóknum, ásamt Lactobacillus
rueteristofni. Saman eru þessi efni
talin geta stutt heilbrigði þvag
færa og veitt fjölþætta vörn gegn
þvagfærasýkingum. „Til eru margir
mismunandi stofnar góðgerla og
fjöldi þeirra í hverjum skammti
er merktur með einingunni CFU
sem stendur fyrir „colony forming
unit“, eða nýlendumyndandi
stofn. Í ComfortU er réttur stofn í
nægilegu magni til að hafa tilskilin
áhrif án þess að valda skaða, enda
er þetta verðlaunuð formúla. Com
fortU er náttúrulegt bætiefni sem
kemur í pillu og belgjaformi.
Forvörn er alltaf best og Com
fortU hefur það fram yfir sýklalyf
að vera laust við aukaverkanir
eins og ógleði og magaeinkenni.
ComfortU skaðar ekki vinveittu
þarmaflóruna sem er einn helsti
ókostur sýklalyfja. Hins vegar er
sýklalyfja alltaf þörf ef sýking er
staðfest í efri hluta þvagfæra eins og
nýrum og ávallt skal fylgja læknis
ráði. Þegar stór hluti kvenna er með
endurteknar þvagfærasýkingar,
fögnum við því þegar vara á borð
við ComfortU kemur á markað.“ n
Good Routine fæst í Lyfjum og
heilsu, Apótekaranum, Hagkaup,
Nettó og Krónunni.
Fjölþætt og fyrirbyggjandi vörn gegn þvagfærasýkingum
Freydís fagnar því að vara eins og
Comfort-U sé komin á markað fyrir
íslenskar konur. Myndir/aðsendar
Comfort-U inni-
heldur fjögur
efni sem rann-
sóknir hafa sýnt
fram á að geti
hjálpað til við
að fyrirbyggja
hinar hvimleiðu
þvagfærasýk-
ingar.
Spurt og svarað
Hvernig kemur þú þér í gírinn fyrir mót?
Fyrir keppni hlusta ég á góða tónlist, les
kannski bók og reyni að slaka á. Svo þegar mótið
byrjar smelli ég í rétta gírinn.
Hver er uppáhaldsæfingin og sú sem er í
minnstu uppáhaldi?
Í augnablikinu er uppáhaldsæfingin mín bekk-
pressa. Í minnstu uppáhaldi er hné-
beygjur, en það er bara vegna þess
að ég fæ illt í bakið af þeim.
Hvað færðu þér oftast í
morgunmat?
Ég fæ mér sama morgun-
mat alla daga: 4 soðin egg, 1
appelsínu og ristað brauð með
smjöri.
Hvað finnst þér gott að fá
þér í kvöldmat?
Ég er með algjört æði fyrir
öllum súpum.
Hvað finnst þér gott að fá þér í
millimál?
Hreint skyr með frosnum
berjum, eplamauki og smá salti.
Flatkökur eru líka æði.
Hvað gerir þú til að halda
andlegu heilsunni í jafnvægi?
Ég reyni að hugleiða dag-
lega í tíu mínútur og stunda
núvitund. Það hefur hjálpað
mér mikið til að minnka streitu
og til að vera jákvæðari.
Hverjar eru helstu fyrirmyndir
þínar í íþróttum og í lífinu?
Ég er mjög heppin að hafa
margar íslenskar fyrirmyndir
sem hafa komist langt í kúlu-
varpi. Þar má nefna Gunnar
Huseby, Guðmund Hermanns-
son, Hrein Halldórsson, Óskar
Jakobsson, Pétur Guðmunds-
son og Óðin Björn Þorsteins-
son. Ísland á svo frábæra sögu í
kúluvarpi og það er stórt mark-
mið hjá mér að halda áfram
með þá sögu.
Ólympíuleikunum í Peking árið
2008. Eftir það æfði ég frjálsar á
sumrin og handbolta yfir vetur
inn. Þegar ég var fimmtán ára
sneri ég mér alfarið að frjálsum
íþróttum. Á þeim tímapunkti fór
mér að ganga mjög vel í kúluvarpi
og í kjölfarið bauðst mér skóla
styrkur við Rice University í Texas
í Bandaríkjunum.“
Eftir það hefur allt verið á upp
leið að hennar sögn. „Það sem ég
elska við kúluvarp er að geta séð
vinnuna sem ég legg í íþróttina
með hversu langt ég kasta. Ég get
auðveldlega sett mér mark
mið og séð bætingar ár eftir
ár. Mér finnst líka frábært
hversu einstaklingsbundin
íþrótt þetta er og ég æfi eftir pró
grammi sem er algjörlega sniðið að
mér. Í gegnum kúluvarp hef ég líka
kynnst frábæru fólki og upplifað
margt magnað.“
Finnst gaman að læra
Erna stundar mastersnám í
alþjóðasamskiptum en fyrir hafði
hún lokið BA námi í hreyfifræði (e.
kinesiology). „Ég stefni á útskrift
í maí ef allt gengur vel. Mér finnst
mjög gaman í náminu og gaman
að læra yfirhöfuð en er þó ekki
alveg búin að ákveða við hvað ég
ætla að starfa í framtíðinni. En
ásamt því að vera í íþróttum væri
ég til í að vinna að einhverju sem
mér finnst skipta máli. Íþróttir
munu án efa fylgja mér þangað
til ég dey og vonandi næ ég að
verða bocciameistari á
elliheimilinu þegar ég verð
eldri. Utan íþrótta finnst
mér líka mjög gaman að ferðast og
prófa alls konar mat.“ n
4 kynningarblað A L LT 15. febrúar 2023 MIÐVIKUDAGUR