Vesturland - 26.05.1984, Page 2
2
ÚTGEFANDI: Kjördæmisráö Sjálfstæðisflokksins
í Vestfjaröakjördæmi.
BLAÐNEFND: Sigrún Halldórsdóttir, ísafiröi.
Herdís Þorsteinsdóttir, fsafirði.
Eiríkur F. Greipsson, Flateyri.
Valgeröur Jónsdóttir, ísafirði.
Einar K. Guðfinnsson, Bolungarvík
AFGREIÐSLA: Á II. hæð, Sjálfstæðishúsinu, ísaf., s:'mi 4232
RITSTJÓRI: Einar K. Guðfinnsson, ábm.
Prentstofan ísrún hf., ísaflrði.
Hátíðisdagur
Laugardagurinn 12. maí
1984, var hátíðisdagur hjá
Vestfirðingum. Þann dag var
tekin í notkun Bræðratunga,
fyrsta þjáifunar og þjónustu-
miðstöð þroskaheftra á Vest-
fjörðum. Með opnun
Bræðratungu var brotið blað
í þjónustu við þroskahefta I
fjórðungnum.
Hvar í flokki sem menn
standa og hver sem lífshug-
sjón þeirra er, hljóta allir að
geta staðið saman um jafn
sjálfsagt verkefni og bygging
þjónustumiðstöðvarinnar er.
I heigri bók standa þessi orð:
„Það sem þér gjörið einum
mínum minnstu bræðrum
það gjörið þér mér einnig“.
Þessi kunnu orð ritningar-
innar, segja allt sem segja
þarf um nauðsyn þess mann-
bótastarfs sem vinna á í
Bræðratungu.
Það er því ánægjulegt til
þess að vita að Vestfirðingar,
einstaklingar sem og fyrir-
tæki hafa sýnt í verki hug
sinn til þessarar merku stofn-
unar, með höfðinglegum
gjöfum.
Vesturland sendir öllum
þeim sem hlut hafa átt að
máli, hugheilar árnaðaróskir
í tilefni þessara merku tíma-
móta.
Komið er að
kaflaskiptum
Þjóð sem býr við óðaverð- mælikvörðum í vanda stödd.
bólgu, gjaldeyriseyðslu langt Hún á ekki ýkja margra
umfram gjaldeyristekjur og kosta völ. Síst að minnsta
uppsöfnun erlendra skulda, kosti, ef að baki eru velmeg-
er samkvæmt öllum heimsins unarár sem fyrst og síðast
BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIROI
SÝSLUMAÐURINN (ÍSAFJARÐARSÝSLU
Auglýsing
um bann við veiði og meðferð skotvopna í
friðlandinu á Hornströndum.
Hvers konar meðferð skotvopna og veiði er
stranglega bönnuð í friðlandinu á Horn-
ströndum í Norður-ísafjarðarsýslu nema
samkvæmt sérstökum heimildum.
Þeim, sem rjúfa grið í friðlandinu á Horn-
ströndum, verður gert að sæta viðurlögum
lögum samkvæmt.
21. maí 1984
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Pétur Kr. Hafstein.
Laust starf
Á skrifstofu embættisins er laust til umsóknar
starf skrifstofumanns frá 1. júlí 1984.
Góð vélritunarkunnátta er áskilin.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknum skal skila til skrifstofu minnar eigi
síðar en 1. júní 1984.
21. maí 1984
Bæjarfógetinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Pétur Kr. Hafstein.
hafa einkennst af efnahags-
sóun, gæluverkefnafjárfest-
ingum og skeytingarleysi
gagnvart grundvallarhags-
munum heilbrigðs atvinnu-
og efnahagslífs.
Fyrir ári bjuggu íslending-
ar einmitt við framangreinda
háttu. Efnahagslífið var á
hverfanda hveli. Ýmis teikn
voru á lofti um pólitíska upp-
lausn og vaxandi vantrúar
gætti meðal almennings á
getu stjórnvalda til að snúa
óheillaþróuninni við.
Sú ríkisstjórn sem mynduð
var fyrir tæpu ári, fékk það
hlutverk að söðla um. Hverfa
frá efnahagsupplausninni og
stefna að heilbrigðari háttum
í efnahagslífi okkar. í veiga-
miklum þáttum hefur henni
tekist vel til.
Megin árangur þessarar
ríkisstjómar er vitaskuld sá
að hafa barið niður verð-
bólgudrauginn. Verðbóigan
var fyrir ári á flugstigi
bananalýðveldanna. Dýrtíðin
núna er viðlíka og í sam-
keppnislöndum okkar. Hið ó-
trúlega hefur gerst. Verðlag
hefur staðið í stað lang tím-
um saman og jafnvel lækkað.
Orkureikningarnir sem í tíð
verðbólgustjórnanna hækk-
uðu um allt að að þriðjung
ársfjórðungslega, hafa ekki
hækkaðsíðan á miðju síðasta
ári og vonir eru til að við svo
búið megi standa áfram.
Það er afleiðing þessa ár-
angurs að hér hefur tekist að
viðhalda góðu atvinnustigi.
Þvert ofan í hrakspár stjóm-
arandstæðinga, hefur vinna
verið ærin. Og segja má með
Framhald af bls. 1
og 1980 aö orkunotkun fór víða
langt upp fyrir þetta.
I Bolungarvík voru dæmi um
að orkunotkunin væri rösklega
tvöfalt meiri á hvern rúmmetra á
ári. Á Raufarhöfn voru dæmi um
þrefalt meiri orkunotkun á hvern
rúmmetra á ári, svo dæmi séu
tekin.
Til þess að auðvelda íbúöar-
eigendum sparnaðaraðgerðir,
er ætlunin að ríkið grípi inn í. í
fyrsta lagi með því að veita hús-
eigendum sérfræðilega aðstoð
við skipulagningu og mat á end-
urbótum. Verður Rannsóknar-
stofnun Byggingariðnaðarins
falið að annast fræðilegan og
tæknilegn undirbúning.
í öðru lagi verður húseigend-
um gefinn kostur á lánafyrir-
greiðslu til endurbótanna. Gert
er ráð fyrir að veitt verði lán í
samræmi við lög um Húsnæðis-
stofnun ríkisins og er stefnt að
því að lánin verði til 16 ára.
Lánin verða afborgunarlaus
fyrstu 3 árin. Mega þau nema
allt að 80 prósentum af kostnaði
við endurþætur. Lánin eru nú
VARÚÐ
ÁVEGUM
sanni að víða í sjávarplássum
kring um landið hafi hún
veríð gott betur en það. Eng-
um blöðum er um það að
fletta að ekki hefði reynst
kleyft að viðhalda fullri at-
vinnu í því ringulreiðará-
standi sem hér ríkti fyrír ári.
Óðaverðbólga og full at-
vinna, geta einfaldlega ekki
gengið saman.
Á öllu ríður nú að þessum
árangrí verði viðhaldið.
Menn þurfa að átta sig á því
að verðbólgan verður aldrei
sigruð í eitt skipti fyrir öll.
Það má hvergi slaka á, svo
að árangrinum verði ekki
telft í tvísýnu.
Það er rétt sem forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokks hafa bent
á, að komið er að kaflaskipt-
um í starfi ríkisstjómarinnar.
Að baki er áfangasigur í
glímunni við dýrtíðina. Af
þeim sjónarhóli þarf að líta
fram á veginn.
Ljóst er að betur má ef
duga skal, til að ráða við
útgjöld. Hinn svokallaði fjár-
hagsvandi ríkissjóðs, hefur
ekki verið leystur til neinnar
framdbúðar. Enn má búast
við „gati“ á fjárlögunum
næsta ár, nema að hugað
verði að grondvallaruppbygg-
ingu þeirra. Ljóst er að ýmsir
þættir fjárlaganna hafa þan-
ist út undanfarin ár. Gildir
það einkum um svo kallaða
þjónustuþætti. Á sama tíma
hafa fjárveitingar til fram-
kvæmda dregist saman svo
að til hreinna vandræða horf-
ir. Auga leið gefur, að ekki er
um þann kost að ræða lengur
að ganga lengra í átt til nið-
verðtryggð með o,5% vöxtum.
— ,,Með því að hafa lánin af-
borgunarlaus fyrstu þrjú árin
gefst húseigendum ráðrúm til að
greiða kostnað af eigin fram-
lagi", segir í greinargerð frum-
varpsins, orðrett.
urskurðar á framkvæmda-
sviðinu.
Brýnt er eigi að viðhalda
og bæta þann árangur sem
ríkisstjórnin hefur náð að ná
betri tökum á ríkisfjármálun-
um. ískyggilega horfir um
erlendar lántökur. Brýnasta
verkefni nánustu framtiðar
er því, eins og Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæð-
isflokksins sagði í útvarps-
umræðunum á dögunum að
„grynna á þeim skuldum sem
safnast hafa upp á meðan
tekjur hafa ekki mætt gjöld-
um“. Og eins og formaður
Sjálfstæðisflokksins sagði
ennfremur ber að gera það
með „lækkun útgjalda“.
Á næstu vikum mánuðum
og misserom þarf að skapa
atvinnufyrirtækjum viðun-
andi skilyrði. Rekstrarskil-
yrði sjávarútvegsins eru nú
með öllu óviðunandi. Lang-
varandi skuldasöfnun hefur
þrengt mjög svigrúm þessar-
ar atvinnugreinar. Aflabrest-
urinn nú til viðbótar hefur
gert það að verkum að búast
má við, að við verðum að
horfa upp á meiri háttar
eignatilfærslur í þessari at-
vinnugrein, verði ekkert að
gert. Einstaklingsframtakið í
sjávarútvegi býr nú víða við
hin verstu skilyrði og mun
ekki geta keppt til lengdar
við opinbera og hálfopinbera
rísa.
Sú nýsköpun, sem þarf að
eiga sér stað í íslenskum sjá-
varútvegi, er því aðeins
möguleg að áfram ríki festa
og stöðugieiki í íslensku
efnahagslífi. Það ríður því á
miklu að vel takist til á
næstu vikum og mánuðum.
íslenskt atvinnulíf hefur ekki
efni á frekari ringulreið né
upplausn í efnahagslífi og
stjórnarháttum.
EKG.
á
k
Vorum
að
taka
upp
/ GARÐ- \
ÁHÖLD
mikið magn af garðáhöldum og garðsláttu-
vélum ■ Margar gerðir af hreinlætis- og
blöndunartækjum ■ Baðmottusett og bað-
hengi ■ Allt efni til pípulagna, úti sem inni
■ METABO rafmagnshandverkfæri
Verslun, Fjarðarstræti 16
ísafirði — Sími 3298
— Þak á húshitunarkostnað