Fréttablaðið - 28.02.2023, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 28. febrúar 2023
Það er mikilvægt að huga vel að
tannhirðu barna. fréttablaðið/GEttY
gummih@frettabladid.is
Foreldrar og aðrir umönnunar
aðilar, eins og leikskólakennarar
og dagforeldrar, gegna lykilhlut
verki í tannvernd barna og þurfa
að kunna réttu handtökin við
tannhirðu þeirra. Það er mest
undir þessum aðilum komið hvort
börn vaxi úr grasi með heilar
tennur eða skemmdar en þeir
bera ábyrgð á því hvað og hvenær
börnin borða og á tannhirðu
þeirra. Þessi tvö atriði eru lykil
atriði í að halda tönnum heilum.
Mikilvægt er að huga vel að
tannhirðu hvort sem börn eru
alin á brjóstamjólk eða þurrmjólk.
Góð tannhirða er nauðsynleg og
hreinsa þarf barnatennur þó svo
að það sé ekki alltaf auðvelt. Best er
að yngstu börnin séu vel skorðuð
og liggi á bakinu í fangi foreldris
eða á skiptiborði. Notið lítið af
tannkremi því barnið kyngir því
tannkremi sem upp í það fer.
Bursta tennur fyrir nóttina
Nauðsynlegt er að bursta tennur
fyrir nóttina því munnvatns
framleiðsla er í lágmarki að nóttu
til sem eykur til muna hættu á
tannskemmdum ef tannhirðu
er ábótavant. Aldrei ætti að gefa
barni hreina ávaxtasafa eða aðra
sæta drykki í pela, hvorki að nóttu
né degi því sykurinn skemmir
tennurnar og ávaxtasýra eyðir
glerungi tannanna. Mjólk og vatn
er það eina sem gefa á börnum að
drekka úr pela.
HEimild: HEilsuvEra.is
Góð tannhirða
er nauðsynleg
Vill mála allt sem ekki er bleikt
Erla Jónsdóttir býr í sjarmerandi 100 fermetra íbúð í Efra-Breiðholti ásamt fimm öðrum
fjölskyldumeðlimum. Hún segist hætt að hræðast liti. Nú er hún hægt og rólega að bæta
meiri lit inn á heimilið og dauðlangar að mála einn skenkinn bleikan. 2
Erla Jónsdóttir er óhrædd við að mála húsgögn, veggi og skrautmuni svo allt passi vel saman í íbúðinni. fréttablaðið/valli
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is