Skutull

Árgangur

Skutull - 01.12.1987, Blaðsíða 7

Skutull - 01.12.1987, Blaðsíða 7
SKUTTJLL 7 Erindi flutt í Alþýðuhúsi fsfírðinga á vegum Rannsóknastofnunar físk- iðnaðarins og Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda, um rækjuveiðar, vinnslu og rannsóknir. Flutningsmaður: Halldór Hermannsson. Þann 21. feb. árið 1937 birtist á forsíðu blaðsins Skutuls á ísafirði grein sem ber fvrirsögnina ..Rækjuverksmiðjan" og hefst hún með þessum orðum: „Kvikindi það sem kallað hefur verið kampaíampi. en nú er vfirleitt nefnt rækja. þótti hér áður t'rekar ómerkilegt. ósjálegt og heidur óþarft. Þorskurinn hafði það til að gefa svo mikinn gaum að kampalampatorfunum. að ha.m sinnti ekki hinu Ijúfengasta agni. Og svona hagaði hann sér kannske vikum saman. Fengist svo dráttur og dráttur. þá var hann úttroðinn af þessu rauða kvikindi. og lögðu margir bátasjómenn hér á fjörðunum fæð á skepnuna- og enn hvggur Skutull að hún gjaldi hjá sumum gamalla væringja." Svo segir ennfremur í Skutli: ..Það var svo fvrir nokkrum árum að Sveinn nokkur Sveinsson hér í bæ. maður sem við margt bdur fengist. fór að leggja rækt við þetta kvikindi- fékk sér tæki til að veiða það og revndi að fá fólk til að leggja sér það til munns. Hvort tveggja gekk heldur illa. og varð Sveinn að hætta veiðiskapnum. Sagði þá margur: ,.Já einstakur er Sveinn." Svo bvrjuðu Norðmennirnir Símon Olsen og G.O.Syre á samskonar veiði árið 1935. en í Noregi hafa menn um langan aldur gert sér mat úr humri og rækjum. Veiðin gekk vel hjá þeim félögum. og svo var á síðastliðnu vori stofnuð hér verksmiðja til niðursuðu á rækjum og er ísafjarðarbær eigandinn. Ætla má. þá er önnur lönd hafa með fullu áttað sig á hinni ágætu vöru sem ísfirzku rækjurnar eru. þá verði þau mun betri og hagkvæmari markaður en Danmörk. Hafa revnslusendingar fengið hina beztu dóma. ..Afurðirnar voru aðallega seldar til Danmerkur, en þar var sala samt nokkuð óhagstæð vegna tolla og innflutnings- og gjaldevrishindrana. Síðan skýrir blaðið frá því að varðbáturinn framkvæmi nú mæl- ingar hér í Djúpinu og úti á hafi. og er það gert að ósk Árna Friðrikssonar til þess að fá vitn- eskju um hitastig í sjónum. bæði við vfirborð og botn. Þá telur hann einnig að rækjuveiðimenn þurfi að framkvæma hitamæl- ingar alltaf jafnframt veiði- skapnum. ..Af þessu sem nú hefur verið sagt." segir ritstjóri Skutuls. sem þá er Hannibal Valdimarsson. ..virðist fullljóst að ekki dugar að bvggja einvörðungu á rækjustofn- unum inni á fjörðum. heldur verður að bvggja á honum sem varasjóði og beina veiðunum öðrum þræði til hafs." Á því átti eftir að verða bið. 25 ár liðu þar til rækjuveiðar hófust á öðrum svæðum en ísafjarðar- djúpi og Arnarfirði. en þar hófust þær 1938. Hiklaust má telja Þann 4. des. sama ár. þ.e. 1937. er enn forsíðugrein í Skutli þar sem stendur í fvrirsögn: ..Árni Friðriksson fiskifræðingur hefur verið hér nokkra undanfarna daga að ósk Rækjuverksmiðjustjórnar til þess að rannsaka ýmislegt í sambandi við rækjurnar og lifnaðarháttu þeirra. Áður en Árni Friðriksson fór. hitti ritstjóri Skutuls hann að máli og þar sem almenningur óttast það mjög að rækjurnar séu að eyðast vegna þeirrar veiði. sem nú hefur verið stunduð um tveggja ára skeið. spurðum vér hann fvrst af öllu þessarar spurningar. ..Eru rækjumiðin okkar að eyðast?" ..Nei. það held ég ekki. af því að mér finnst það ekki líklegast að firðirnir sem rækjur hafa veiðst í. ali sérstaka stofna. heldur séu rækjurnar þar hluti af þeim rækjustofni sem er umhverfis allt ísland." ..Endurnýjast þá rækjurnar í fjörðunum með löngu millibili. þannig að auðn geti orðið á milli?" ..Það er fvrst að segja. að aðalrækjutegundin sem veiðist hér við land, lifir einkum í köldum sjó og fvlgir því köldu straumunum. Af því leiðir svo að ekki er von á rækjum af hafi inn á firði. nema á veturna. þegar kaldi sjórinn kemst þangað. Þess vegna er líklegt að rækjumagnið á fjörðum inni endurnýjist á veturna, þegar kaldast er í sjónum. Að öllum líkindum slíta veiðarnar svo þessum rækjum einum. þangað til nvjar göngur koma úr hafi með köldum straumum veturinn eftir. Hér er algerlega vfirgnæfandi stóri kampalampinn. en hér við land eru til tvær aðrar náskyldar tegundir. sem augljóslega hafa minni þýðingu. Vitanlega er þessi veiði eins og öll önnur veiði háð margvíslegum sveitlum í sjónum, eins og mönnum er kunnugt frá þorskveiðum. kolaveiðum, vsuveiðum og hvaða veiðum sem vera skal. En seinast vil ég segja það að mér finnst engin ástæða til kvíða í sambandi við framtíð rækjuveiðanna." Norðmanninn ~ Simon Olsen brautryðjanda rækjuveiða á ís- landi. Hann ásamF G. O. Syre komu þessum veiðum' af stað. Þótt hlé yíði á veiðunum eins og t.d. á stríðsárunum, þá hóf Símon ótrauður veiðar á ný. Hann bjó til rækjutrollin fyrir sig og félaga sína á öðrum bátum. a.m.k. all- mörg fyrstu árin. Sagt er sam- kvæmt heimildum Ásgeirs Jakobssonar að fvrst hafi Símon komið hér til lands og farið á bát sem Hrönn nefndist. ca. 40 tonna skip. ásamt tveimur öðrum Norð- mönnum þeim Haraldi Hake og Ole Amundsen og nokkrum ís- lendingum öðrum í áhöfn. Hafi þeir haft rækjutroll Norðmenn- irnir í sínum fórum. sem þeir reyndu á ísafjarðardjúpi þá um haustið. Árangur hafi þá verið lítill. Þetta troll mun hafa orðið eftir á Isafirði og skömmu fvrir 1930 hafi svo Sveinn nefndur braskari fengið trollið og Ole Amundsen hafi þá verið í skips- rúmi hjá Sveini honum til leið- sagnar. Eftir að veiðar hófust reglulega voru þær aðallega stundaðar á 5-8 tonna mótor- bátum. var svo hátt á þriðja áratug. T.d. átti Símon Olsen sinn bát Karmov sem. var 7 tonn. allt þar til hann fórst með honum ásamt svni sínum 1961. Fvrstu árin voru 3-4 bátar sem öfluðu hráefnis fvrir rækjuverk- smiðjuna var rækjan þá öll pilluð í höndum. Fljótlega eftir stríð fór bátum fjölgandi. Árið 1960 voru 14 bátar með rækjuveiðilevfi á ísafjarðardjúpi. Samkvæmt lög- um þurfti sérstakt levfi til tog- veiða innan landhelgi. Árið 1961 var svo til engin veiði í ísafjarðardjúpi. Þetta afla- levsi varaði hartnær 4 ár. Haustið 1958 voru veidd um 2.000 tonn af þorski í net. Var þorskgengd mikil í Djúpinu um þessar mundir. Enda telja sjó- menn að þorskurinn éti umtals- vert magn af rækju. Aðrir vildu kenna um ofveiði, sem tæpast getur staðist, þar sem bátum átti síðar meir eftir að fjölga þrefallt. en þrátt fyrir það jókst veiðin. Ekki má í þessu sambandi glevma að nefna það. sem líklegt er að valdi mestu um. á hvern hátt og í hve miklu magni fiskur og krabbadýr hafast við og ganga á hinar ýmsu veiðislóðir. en það er að sjálfsögðu hitaskilyrði sjávar. sem eru afar breytileg hér við land. yfir skemmri eða lengri tímabil. ásamt veðurfari. Orðið ofveiði sem notað er í tíma og ótíma yfir aflatregðu er oft á tíðum óraunhæft. þar sem það er slitið úr samhengi við skilyrðin í sjónum. Gangi fiskur dræmt á mið sökum skilvrða í náttúrunni er að sjálfsögðu hægt að ofveiða það litla magn sem fyrir er. eða kannske frekar að segja ofelta hann því að fiskur flýr frekar undan mörgum veiðarfærum en að hann ofveiðist. Haustið 1960 fundu Ólafur Sigurðsson og Hjörtur Stapi rækju á Ingólfsfirði á bát Ólafs. Ásdísi. Þetta var að heita mátti fvrsta rækjuveiðin fvrir austan Horn. 1966 glæddist afli í ísafjarðar- djúpi verulega á ný. og fvrir 1970 voru bátar orðnir 30. 1964 veiddust í ísafjarðardjúpi eftir aflaleysis árin, 447 tonn. Bestur varð aflinn 1971 en hann komst í 2915 tonn. Mestur fjöldi rækjubáta var árið 1973. 54. En næsta áratug dalaði það aftur í ca. 30 báta. Var það vegna afkomuleysis, lágs verðs á rækju og stöðvunar veiða vegna seiða- gengdar ásamt fleiru. f Arnarfirði hefur veiðin yfirleitt talist nokk- uð prugg. um 8-10 bátar hafa verið þar við veiðar. 1964 má telja að rækjuveiðar hefjist inni í Húnaflóanum. Svo má heita að afli hafi verið þar mjög stöðugur og góður og ávalt vaxandi þar til í fvrra að tölu-

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.