Skutull - 01.12.1987, Qupperneq 10
10
SKUTULL
flutti í nýtt húsnæði á Torfnesi.
Böðvar telst því helsti braut-
ryðjandi í rækjuverkun á íslandi,
en þeim störfum sinnti hann í um
40 ár. Árið 1947 hefur Jóhann
Jóhannsson og Guðmundur
Karlsson rækjuvinnslu í húsi við
Mjósund. Árið 1956 keyptu þeir
vél til pillunar á rækju af gerðinni
Peelers frá The Laitrans corpor-
ation í Bandaríkjunum, eftir að
útbúin var forsjóðari til þess að
sjóða rækjuna áður en hún fór
inná vélina og í valsa hennar. Fór
fljótlega að ganga vel að vinna
hráefnið.
Uppfrá þessu fór framleið-
endum og bátum sem veiðar
stunduðu mjög fjölgandi. Bættust
nú fimm nýjar verksmiðjur við frá
1959-70 í ísafjarðardjúpi auk
þeirra þriggja sem fyrir voru á
Isafirði og Bolungarvík. Rækju-
öflun byggðist öll á veiði úr
Djúpinu. Árið 1938 reisti Gísli
Jónsson alþingismaður rækju-
verksmiðju á Bíldudal til niður-
suðu á rækju. Um 1970 hefst þar
vélpillun á rækju. Árið 1962 hófu
bræðurnir Ingólfur og Gunnar að
verka rækju í smáum stíl í
Ingólfsfirði, fyrst með handpillun,
en síðan með lítilli vél, danskri að
gerð, Matthiesen. Var þar vinnsla
á meðan byggð hélst í firðinum.
Árið 1964 hefst vinnsla á
Hólmavík og síðar á Drangsnesi,
Skagaströnd, Hvammstanga og
loks á Blönduósi í kringum 1970,
en þá mætti segja að vélvæðing
færi fram víðast hvar á Húnaflóa-
svæði.
Ætla má að velta rækjuverk-
smiðjanna hér á ísafirði hefi verið
nálægt 1 milljarður á síðasta ári.
Láta mun nærri að verðmæti
verkaðs sjávarafla hér sé um 50%
rækjuútflutningur eða ríflega
það. Á síðastliðnu ári var heildar-
rækjuveiðin yfir landið 35.831 t.
Par af var úthafsveiðin með
30.397 t. og innfjarðaveiði 5.434
t. Heildarverðmæti voru rúmir 2
milljarðar, útgefin rækjuveiðileyfi
nálgast nú óðum töluna 200.
Innfjarðaveiðin er nú minnkandi
þáttur í starfsemi verksmiðjanna
enda þótt þær brúi bil á erfiðum
ársíma þ.e. yfir haust og vetrar-
mánuði. Jafnframt því sem
stjórnvöld veittu fleiri verk-
smiðjum leyfi til vinnslu, en það
hefur gerst nú á síðustu árum í
miklum mæli, hafa þau verið and-
stæð því að leyfa innflutning
skipa til veiða.
Ef við snúum okkur nú að
verði á rækju erlendis eftir upp-
sveifluna 1986 þá hefur verðið
verið of hátt á mörkuðunum.
Kaupendur hafa snúið sér að
heitsjávarrækju sem er á mun
lægra verði. T.d. er samdráttur á
mörkuðunum í Bretlandi í fram-
boði á kaldsjávarrækju um 30%.
Hins vegar vonast menn til að
þróunin komi aftur til baka og
kaldsjávarrækjan nái sér á strik
nú, enda er hún betri og heil-
næmari vara.
Leikmannsþankar
Nú nálgast sá tími óðum að
rækjuflotinn er að verða full-
nýttur eða þau skip sem tiltæk
eru á þær veiðar nema að loðnu-
veiðar bregðist þá munu þau skip
snúa sér að rækjuveiðum í
auknum mæli. Frystiskipum fer
fjölgandi á miðunum og rækja
verður keypt af þeim skipum í
vaxandi mæli bæði innlendum og
erlendum, til vinnslu í landi.
Allt of mikil spenna hefur
myndast í sambandi við kaup á
frystri rækju milli verksmiðja, og
það sem af er þessu ári virðist
verð á henni fari nokkuð yfir það
sem markaðsmöguleikar gefa
kost á sem stendur. Rækjumiðin
á úthafinu hafa verið notuð sem
nokkurs konar almenningsbithagi
fyrir þá sem hafa verið að spara
þorskkvóta sína. Stjórnvöld hafa
óspart gefið út bréf upp á þetta.
Þessi bithagi getur þurft á hvíld
að halda á næstunni enda þótt að
fá kvikindi á jarðríki telji meiri
Halldór Hermannsson, Óskar Jóhannsson
/safirð'
mergð en rækjan nema ef vera
skyldi krilláta í suðurhöfum. Elta
má svo rækjustofninn hér við
land að veiðar gerist óarðbærar.
En hvað sem öðru líður verður
markaðssetningin mesti vandi
rækjuiðnaðarins í framtíðinni.
Æskilegt væri að þar dragi úr
spennu og menn vöruðust að
troða skóinn hver niður af
öðrum.
ísafjörður er vagga rækju-
iðnaðarins og mun hann vonandi
verða þar þróttmikill áfram í
framtíðinni, enda þótt aðrir staðir
á landinu sæki nú fram í auknum
mæli með bjarta framtíð fyrir
augum.
Starfsfólk FerJaskrifstofu ríkisins 09 Edduhótelanna
'idskiptai/inum sínum árs 09 fridar. þökkum samskiptin
^ Roteí
eddá
Ferðaskrifstofa
ríkisins
óskar
á lidnu ári.
r
Oskum
öllum Vestfirðingum
til lands og sjávar
gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs.
Þökkum viðskiptin
á líðandi ári.
Fiskiðjan Freyja
Suðureyri