Skutull

Árgangur

Skutull - 01.12.1987, Síða 19

Skutull - 01.12.1987, Síða 19
SKUTULL 19 Við óskum landsmönnum gleðilegra jóla, árs og friðar og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Skurðstofan í sjúkrahúsinu á ísafirði. lækni læknisstörfin með sér. Með þessu móti átti reksturinn að vera traustari bæði hvað viðkom heilsu sjúklinganna og rekstri spítalans, en ýmsum þótti sem verið væri að bola öðrum læknum frá. Sjúkrahúslæknir frá upphafi var Vilmundur Jónsson. Nokkrum árum seinna var reglugerðin gefin út og má þar finna klausu sem lýsir vel hugsun þeirra sem reistu þetta glæsilega hús, og til hvers þeir ætluðu það. Engan mannamun má gera á sjúklingum í sjúkrahúsinu eftir efnum þeirra eða stöðu, en leitast við að hafa aðbúðina þannig, að öllum sé boðlegt. Einbýlisstofur eru engum falar né heldur auka- hjúkrun, þó að þeir bjóði hærra gjald. Má læra af sögunni? I ljósi þess sem fram hefur komið. gerist sú spurning áleitin, hvernig ísfirðingar gátu byggt á rúmu ári stærsta sjúkrahús á landinu, en nú sér enn ekki fyrir endann á því nýja, þótt brátt sé liðinn einn og hálfur áratugur frá því framkvæmdir hófust. Þessi upprifjun gæti vissulega vakið upp ýmsar spurningar um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga, eða um starfsaðferðir embættis- og stjórnmálamanna, þá og nú. Hinu meiga menn ekki gleyma, að fyrir meir en hálfri öld, var þjóðfélagið um margt öðruvísi en nú er. Viðfangsefni ríkis og sveitarfélaga færri en einfaldari, og kröfur á hendur þeim minni. Nú eru breyttir tímar. Bygging nýja sjúkrahússins hefur tekið fleiri ár en mánuðina sem tók að reisa hið gamla. í ljósi þess hversu nýja byggingin hefur dregist á langinn, er því fróðlegt að bera saman sögu þessara húsa. Hvaða lærdóm má af þeirri upp- rifjun draga, dæmir hver fyrir sig. • • 1 Ævintýralegir vinningsmöguleikar gefast nú hjá Happdrætti SIBS. Hvorki rneira né minna en 3. hver miði vltmur — vinningslíkur sem enj einsdæmi hjá stóru happdrætti. Og nú eru aukavinningamir 27. Par af eru 3 rennilegar hifreiúar, Citroén AX14, sem aðeins eru dregnar úr seldurn miðum. Pað em ótmlega miklir möguleikar á vinningi hjá SIBS. Ævintýralegar vinmngslíkiir TU Starfsfólk sjúkrahússins við Mánagötu. Talið frá vinstri: 1) Kristín Ólafsdóttir læknir, eignikona Vilmundar Jónssonar læknis. 2) Guðbjörg Gestsdóttir, kona Kristjáns Bjarnasonar. 3) Ókunn. 4) Jóna Guömundsdóttir, var lengi á Hernum. 5) Ókunn. 6) Elín Jónatansdóttir, kona Bjarna Gunnarssonar, þau bjuggu á Torfnesinu. 7) Jóna Guðmundsdóttir, yfirhjúkrunarkona. Því miður tókst ekki að fá upp nöfn tveggja. hæsta liðlega 200 þús. krónur. Lægsta boð var tekið, en það áttu Asgeir G. Stefánsson húsa- smíðameistari og fleiri iðnaðar- menn úr Hafnarfirði. Sumarið 1924 hófust fram- kvæmdir og var orð á gert þeim vinnubrögðum sem þar voru við höfð, svo vel gekk verkið. Var húsið komið undir þak fyrir áramót, og síðan unnið að inn- réttingum og frágangi fram á næsta sumar. Húsið er tv'ær hæðir, kjallari og ris, og var herbergjaskipan þessi: í kjallara var eldhús, matar- geymsla. þvottarhús, sótt- hreynsunarklefi, geðveikraklefar, líkhús, og vel útbúnir baðklefar sem leigðir voru íil almennings- nota í mörg ár, enda engin sund- laug í bænum þá. Gat almenn- ingur bæði fengið þar sturtubað og kerlaug. Á fyrstu hæð voru sex sjúkra- stofur, skurðstofa, rannsóknar- stofa, lyfjaherbergi, dauð- hreynsunarklefi og læknisher- bergi, en á efri hæð stórar sjúkrastofur til endanna, en auk þess tvær minni. Þá voru dag- stofur á báðum hæðum. Á efsta lofti var ljóslækningastofa og íbúð fyrir starfsfólk. Á teikn- ingum var gert ráð fyrir fjörutíu sjúkrarúmum, en frá upphafi var þeim fjölgað í fimmtíu. Heildar- kostnaður við bygginguna var 248.107,82 krónur. Framlag ríkisins var 75 þúsund krónur, en afgangurinn lagði bærinn fram, þar fékk hann lán upp á 100 þúsund krónur. Innréttingar og húsgögn smíðaði Guðni Bjarnason tré- smíðameistari, og einnig vann Jón H. Sigmundsson að lagfær- ingum eftir að húsið var afhent, en hann var eftirlitsmaður bæjarins meðan á framkvæmdum stóð. Innanstokksmunir og tæki hins nýja sjúkrahúss voru metin á 50 þúsund krónur og var það mest fjármagnað af sérstökum áhaldasjóði, en annað var auð- vitað til á gamla sjúkrahúsinu. Áhaldasjóður sjúkrahússins fékk allan ágóða af hátíðar- höldum sem ísfirðingar héldu ár hvert hinn 17. júní, til að minnast fæðingardags Jóns Sigurðssonar, í fyrsta sinn árið 1920. Sjúkrahúsið vígt Sjúkrahúsið var vígt þann 17. juní sumarið 1925 við hátíðlega athöfn. Guðmundur Björnsson landlæknir vígði húsið, ræður voru fluttar, sungið og farið í leiki. Um kvöldið var haldin skemmtun. Sjúklingar voru fluttir í nýja húsið 28. júlí. og voru þeir þrjátíu að tölu. Gamla sjúkrahúsið var hins vegar dubbað upp og gert að elliheimili, fyrir 20 vistmenn. og þjónar því hlutverki enn. Áður var elliheimilið í kjallara Hjálp- ræðishersins frá árinu 1922 er bærinn stofnaði það. Var það fyrsta elliheimili á landinu og rekið algerlega á reikning bæjarins. - Sjúkrahúsið var glæsilegasta hús sinnar tegundar hér á landi á sínum tíma og bar vitni um stórhug og djörfung þeirra er að því stóðu. Það var eign ísafjarð- arkaupstaðar og rekið að öllu leyti fyrir hans reikning og á hans ábyrgð, eins og sagði í reglugerð sem bæjarstjórnin setti um það. Reglugerð gegn misimmun I bæjarstjórninni urðu nokkrar deilur út af reglugerðinni, eins og svo mörgu á þeim árum. Minni- hlutinn setti helst út á það að bæjarstjórnin yrði að samþykkja sjúkrahússlækninn. og hann einn átti að bera ábyrgð á öllum sjúk- lingunum, en mátti fela öðrum 4 BHinRBðrareuiG ísunps Bl LÍFTRYGGING GAGNKV€MT TRYGGINGAFELAG

x

Skutull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.