Mosfellspósturinn - 12.12.1980, Blaðsíða 8
Reykjavíkurborg ræður
verði á heita vatninu
þau skilyrði fylgja annars hagstæðum samningi um kaup
Mosfellinga á heitu vatni úr iðrum Mosfellssveitar!
Flestum húsráðendum í Mos-
fellshreppi hefur blöskrað sú
hækkun, sem orðið hefur á hita-
veitureikningunum á liðnu tólf
mánaða tímabili, svo ekki sé talað
um lengra aftur í tímann. Þó Mos-
fellingar eigi við góðan kost að búa
að því er snertir upphitun húsa, þá
leituðum við skýringa á hinum öru
hækkunum á heita vatninu sem úr
iðrum Mosfellssveitar kemur.
„Það var á árunum 1973 eða
1974 sem leitað var eftir og samn-
ingar tókust um kaup Mosfells-
hrepps á heitu vatni frá Reykjavík-
urborg, eða réttara sagt vatni frá
borholum borgarinnar í Mosfells-
sveit,” sagði Jón M. Guðmunds-
son oddyiti í samtali við M-póst-
inn. „Vatnið er-keypt á heildsölu-
verði, þ.e. að frádregnum dæling-
arkostnaði. Samningurinn gerir
ráð fyrir að Mosfellshreppur fái
vatn eftir þörfum og sé það afgreitt
úr stútum á ákveðnum stöðum.”
„En það skilyrði setti Reykjavík-
urborg fyrir þessari vatnssölu, að
taxtar til notenda í Mosfellssveit
yrðu er fram liðu stundir þeirsömu
og í Reykjavík gilda,” sagði Jón.
Oddvitinn sagði að síðan heíði
verð heita vatnsins í Mosfellssveit
hækkað í takt við allar gjaldskrár-
hækkanir í Reykjavík. Auk þess
heíði á tímabilinu orðið að hækka
vatn meira hér en í borginni, því
um það leyti sem samninurinn var
gerður og nokkuð á eftir voru taxt-
ar á heitu vatni í Mosfellssveit um
60% af því sem verðið var í
Reykjavík. Þetta hil varð að vinna
upp til að uppfylla skilyrðin í
samningunum um aukið vatn til
Mosfellssveitar.
„Ætla mætti því að hagur Hita-
veitu Mosfellshrepps væri góður,”
sagði Jón, „og víst má telja hann
það miðað við aðrar hitaveitur. En
mörg verkefni þurfti að leysa.
Fyrstu götuæðar fyrir heitt vatn
áttu húseigendur sjálfir. Það var í
Hlíðartúni og t.d. við Markholt og
Lágholt. Þessi heimæðakerfi voru
yfirtekin af hreppnum, sum þurfti
að endurnýja og leggja þurfti nýjar
leiðslur um ótal götur í nýjum og
dreifðum hverfum. Mosfellssveit á
við þann ókost að stríða að byggðin
er dreifð, en sé ekki verið að ræða
um hitaveitumál er slík dreifing yf-
irleitt mikill kostur,” sagði Jón1
od^viti.
Hagnaðurinn sem Hitaveita
Mosfellssveitar hefur haft af hag-
stæðum kaupum á heitu vatni, hef-
ur því öllum verið varið til eflingar
hitaveitunni og að búa í haginn
fyrir ný og gömul hverfi. Mosfell-
ingar geta því hugsanlega sætt sig
við það að láta hitaveitureikning-
ana hækka, þó þeir búi í mestu
heitavatnslind sem enn er virkjuð í
heiminum að því bezt er vitað. En
undarlegt finnst sumum þó, að það
sé Reykjavíkurborg sem ákveði
verð vatnsins í þessari sveit.
12. desember Í980
Golfklúbbur
stomaður í
Mosfellssveit
— Yfir 50 mættu á
stofnfundi
Stofnfundur gollklúbbs í Mos-
fellssveit var haldinn s.l. sunnudag
og þar skráðu sig yfir 50 manns sem
stofnendur. Orn Höskuldsson var
kjörinn formaður en aðrir í stjórn
eru Einar Tryggvason, Hilmar Sig-'
urðsson, Georg Tryggvason, Gísli
Arnason, Sigrún Ragnarsdóttir og
Valgerður J akobsdóttir.
Þar sem fundarboð fóru seint og
illa út var ákveðið að hafa stofn-
skrána opna til áramóta. Nýja
stjórnin hefur ástæðu til að ætla að
margir fieiri vilji gerast stofnfélagar.
Getur fólk snúið sér til hvers sem er
af stjórnarmönnum.
Farið er að huga að landi fyrir
golfvöll og stefnt er að því að klúbb-
urinn komi sér upp aðstöðu fyrir
vorið.
Handboltavertíðin er á fullu og þar eru lið Aftureldingar í eldlínunni um helgina. Meistara-
flokkur kvenna leikur við þær úr Fylki að Varmá á sunnudaginn kl. 17.15. Meistaraflokkur
karla un etja kappi við ÍR-inga í annarri deildinni í Laugardalshöllinni klukkan tvö á
morgun, laugardag. — Viðtal við forráðamenn Aftureldingar er á bls. 2
Á skiptimiða hvert sem
£ T> — Samvinnasérleyfís
er í Keykjavik og Svr
Eitt þeirra vandamála íbúa í
Mosfellssveit sem brýnast kallar á
lausn eru áætlunarferðir milli
byggðarlagsins og Reykjavíkur.
Umferðarnefnd sveitarfélagsins hef-
ur unnið að lausn þessara mála í
sumar og er þess nú að vænta, að
lausn sé í sjónmáli.
Umferðarnefndin hefur m.a. tekið
upp viðræður við ráðamenn Strætis-
vagna Reykjavíkur og það með góð-
um árangri.
Stefnt er nú að því að koma því
kerfi á að „sérleyfisferðir” til og frá
Mosfelissveit hefjist og endi á Bæjar-
hálsi, þ.e. við gatnamót Höfða-
bakka, Arbæjar- eða Suðurlands-
vegar og Vesturlandsvegarins.
Þar er rætt um að kerfi Strætis-
vagna Reykjavíkur taki við. Gildi í
strættsvognunum serstakt skipti-
miðakeríi, þannig að hver sem vill
komist í eða úr Mosfellssveit og
hvert sem er í Reykjavík á einum og
sama miðanum.
Þetta nauðsynjamál getur M-
pósturinn væntanlega tekid betur
fyrir í næsta blaði.
Einn á atvinnu-
leysisskrá í
Mosfellshreppi
Einn karlmaður var a atvmnu-
leysisskrá í Mosfellshrepi síðasta
dag nóvembermánaðar og atvinnu-
leysisdagar í mánuðinum urðu 18
hjá þessum eina manni.
Samkvæmt skrá félagsmálaráðu-
neytisins er hér um iðnaðarmann að
ræða.
Mega Mosfellingar vel við una
hvað atvinnuástand snertir, að hér
skuli aðeins vera einn án atvinnu af
405 á öllu landinu og atvinnuleysis-
dagar 18 af 5884 dögum á öllu land-
inu í nóvember.
Jólasala Geysis um helgina
Kiwanisklúbburinn Geysir
gengst fyrir árlegri jólasölu sinnt
nú um helgina. Félagar í Geysi
munu fara í öl! hús Mosfells-
sveitar og bjóða til sölu jólatré,
greinar og jólapappír. Að venju
er öllum ágóða varið til styrktar
góðum málefnum. Formaður
KiWanisklúbbsins Geysis er
Hreinn Pálsson Aspartetg 2.
Jólasalan hefst í kvöld og held-
ur síðan áfram á morgun laug-
ardag og sunnudag.