Víkurfréttir - 25.02.2023, Side 4
w
Áratuga reynsla Sjónmælingar
Góð þjónusta Linsumælingar
Falleg vara Sjónþjálfun
Nýjungar í sjónglerjum og tækjum
Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is
Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Við erum á Aðaltorgi - verið velkomin!
Starfshópur sem skipaður var
vegna lokunar Reykjanesbrautar í
desember sl. telur að ekki hafi verið
hægt að koma í veg fyrir lokun
brautarinnar en hefði getað varað
styttra. Hópurinn kemst einnig
að þeirri niðurstöðu að þótt Vega-
gerðin hafi fullnýtt mannskap og
tæki til snjómoksturs á tímabilinu
hefði mátt betur átt standa að snjó-
mokstri á Reykjanesbraut.
Lagðar hafa verið fram sex úrbóta-
tillögur til að tryggja snör og fum-
laus viðbrögð við erfiðar veðurað-
stæður, líkt og þær sem sköpuðust í
desember sl. Tillögurnar eru settar
fram í skýrslu starfshóps, sem Sig-
urður Ingi Jóhannsson, innviðaráð-
herra, skipaði en hlutverk hópsins
var að greina atburðarásina 19. og
20. desember og hvað hefði betur
mátt fara.
Tillögur starfshópsins eru í sex
liðum:
• Áætlun verði gerð um hvaða
tækjabúnaður er nauðsynlegur
við aðstæður sem þessar og
um samnýtingu tækjabúnaðar
ólíkra aðila á svæðinu.
• Vaktstöð Vegagerðarinnar fái
heimild til nauðsynlegra fram-
kvæmda innan fyrirfram skil-
greinda marka þegar aðstæður
eru illviðráðanlegar.
• Vegagerðin, í samráði við ríkis-
lögreglustjóra, setji saman
verkferla um ákvarðanatöku
og framkvæmd lokunar og
opnunar vega, við aðstæður
þegar lögregla ákveður að beita
heimildum til lokunar.
• Vegagerðin setji saman verk-
ferla um miðlun upplýsinga
til almennings, hagaðila og
viðbragðsaðila, hvort sem
samhæfingarstöð hefur verið
virkjuð eða ekki.
• Ráðherra veiti Vegagerðinni
skýra heimild til að fjarlægja
ökutæki sem hindra snjó-
mokstur, trufla umferð eða
vinnu við veg.
• Gerðar verði tilteknar breyt-
ingar á viðbragðsáætlun Vega-
gerðarinnar vegna Reykja-
nesbrautar í ljósi reynslunnar
í desember. Í skýrslunni eru
tiltekin nokkur atriði, s.s. að
endurmeta þurfi staðsetningu
lokunarpósta, skilgreina eigi
skilvirkara samstarf við lög-
reglu og kanna eigi hvort skil-
greina þurfi varaleiðir til að
halda opnum þrátt fyrir lokun
Reykjanesbrautar.
Sigurður Ingi
Jóhannsson, inn-
v i ð a rá ð h e r ra :
„Tillögur starfs-
hópsins eru gagn-
legar og munu
nýtast þegar í stað
við að gera nauð-
synlegar breytingar á viðbragðsá-
ætlun og skipulagi samskipta.
Þá hyggst ég virkja heimild um-
ferðarlaga sem veitir Vegagerðinni
heimild til að láta færa ökutæki sem
valda truflunum við snjómokstur. Í
skýrslunni er farið vel yfir atburða-
rásina og fulltrúar Vegagerðarinnar
og lögregluyfirvalda hafa lagt sitt
að mörkum til að finna leiðir til að
bæta viðbragð við aðstæður sem
þessar. Með samvinnu að leiðarljósi
er það verkefni okkar að lágmarka
eins kostur er þau áhrif sem válynd
veður hafa óhjákvæmilega á sam-
göngur um hávetur.“
Ekki hægt að koma í veg fyrir
lokun – en betur hefði mátt
standa að snjómokstri
Í skýrslunni segir að starfshópurinn
telji að ekki hefði verið hægt að
koma algerlega í veg fyrir lokun
Reykjanesbrautarinnar, þegar horft
væri til veðuraðstæðna á umræddu
tímabili, og lögbundinna hlutverka
Vegagerðarinnar og lögreglu er snúa
að öryggi vegfarenda.
Starfshópurinn kemst á hinn
bóginn að þeirri niðurstöðu að þótt
Vegagerðin hafi fullnýtt mannskap
og tæki til snjómoksturs á tímabilinu
„hefði mátt betur átt standa að snjó-
mokstri á Reykjanesbraut. Með fleiri
tiltækum snjómoksturstækjum og
snarpara viðbragði við að fjarlægja
bíla sem sátu fastir í snjó hefði
mátt stytta þann tíma sem brautin
var lokuð. Þá hefði jafnframt mátt
stytta lokunartímann ef til staðar
hefðu verið tæki sem henta betur í
að ryðja vegamót á brautinni en þau
tæki sem Vegagerðin hafði yfir að
ráða í slíka vinnu.“
Starfshópurinn telur að mögulega
hefði verið hægt að opna Reykjanes-
braut fyrr á mánudeginum ef sér-
staklega hefði verið auglýst að leiðir
til Grindavíkur og Voga væru ófærar
þar sem öll áhersla hafði tímabundið
verið lögð á að halda leiðinni til
flugstöðvarinnar opinni á kostnað
moksturs leiða til aðliggjandi byggð-
arlaga. Til þess hefði þó þurft mjög
markvissa upplýsingaveitu til veg-
farenda ásamt skýrri umferðarstjórn
inn á og út af Reykjanesbrautinni.
Í skýrslunni telur starfshópurinn
mikilvægt að halda því til haga að
um leið og Reykjanesbraut þjónar
stærsta alþjóðaflugvelli landsins
þjóni hún einnig byggðarlögum sem
tengjast brautinni. Á sama tíma og
barist hafi verið við að halda Reykja-
nesbrautinni opinni voru vegir að og
í byggðarlögum við brautina ófærir.
Starfshópurinn bendir á að þegar
veðuraðstæður væru með þessum
hætti væri þörf á að forgangsraða
snjómokstri. Eðlilegt væri að skil-
greina og skýra hversu mikil áhersla
skuli vera á að halda leiðinni að flug-
stöðinni opinni, jafnvel á kostnað
annarra verkefna.
Sem dæmi megi nefna að á meðan
veðrið gekk yfir voru sjúkrabílar og
lögregla kölluð til í hús sem ófært var
að og þurftu viðbragðsaðilar m.a. að
nýta sér aðstoð snjóbíls björgunar-
sveitar til að sinna útköllum. Við
forgangsröðun snjómoksturs verði
að huga að getu viðbragðsaðila til
að bregðast við neyðaraðstæðum.
Hugsanlegt væri að minni tæki sem
henti betur til snjómoksturs í hring-
torgum gætu tryggt öryggi að þessu
leyti með betri hætti.
Um starfshópinn
Starfshópurinn var skipaður full-
trúum frá Vegagerðinni, Ríkislög-
reglustjóra, lögreglustjóranum á Suð-
urnesjum og innviðaráðuneytinu.
Fulltrúi ráðuneytisins stýrði vinnu
hópsins. Hópurinn var skipaður
fyrir jól strax eftir ófærðina 19. og
20. desember og átti að skila niður-
stöðum innan mánaðar.
Samráð var haft við fjölmarga
hagaðila við undirbúning skýrsl-
unnar, þ.á m. fulltrúa Isavia, Lands-
bjargar, Lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, sveitarfélaga á svæðinu,
Samtaka ferðaþjónustunnar. Þá var
leitað sérfræðiálits hjá Einari Svein-
björnssyni, veðurfræðingi.
Hefði mátt standa betur að snjómokstri og
lokun Reykjanesbrautar getað varað skemur
Undirritaður þjónustusamningur
dagsettur 9. janúar 2023 ásamt
viðauka um samræmda móttöku
flóttafólks. og yfirlýsing um að
vinna að sameiginlegum mark-
miðum var lagður fyrir síðasta
fund bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar. Kjartan Már Kjartansson
fylgdi málinu úr hlaði á fundinum
og kynnti efni samningsins.
Margrét Þórarins-
dóttir og lagði fram
eftirfarandi bókun:
„Umbót greiðir
ekki atkvæði við af-
greiðslu þessa máls.
Ég tel að sú aðferða-
fræði sem ráðuneytið
hefur viðhaft gagnvart sveitar-
félaginu í jafnstórum málaflokki
og málefni flóttafólks eru orðin sé
ámælisverð. Margsinnis hefur ráðu-
neytið orðið uppvíst af samráðsleysi
við Reykjanesbæ. Ég ítreka það sem
ég hef áður sagt hér og fjölmargir
sem til þekkja hafa bent á að Reykja-
nesbær er komin að þolmörkum við
móttöku flóttafólks. Við hér í Reykja-
nesbæ höfum svo sannarlega staðið
okkur vel í móttöku flóttafólks. Við
vorum frumkvöðlar og boðin og búin
að aðstoða flóttafólk. Ríkisvaldið
þakkar hins vegar fyrir sig með
því að senda enn fleira flóttafólk
til okkar án nokkurs samráðs. Þrátt
fyrir að sveitarfélagið sé komið að
þolmörkum. Ráðuneytið hefur tekið
á leigu heilu fjölbýlishúsin í bæjar-
félaginu fyrir flóttamenn án nokkurs
samráðs við sveitarfélagið. Við
þekkjum þetta öll. Þessir nýju íbúar
þurfa síðan margvíslega þjónustu
sem Reykjanesbær hefur þurft að
standa straum af. Nú er ráðuneytið
loks tilbúið að greiða fyrir þessa
þjónustu gegn því að bæjarfélagið
taki við enn fleiri flóttamönnum.
Hér er einfaldlega verið að stilla
okkur upp við vegg. Mér hugnast
ekki svona vinnubrögð og greiði því
ekki atkvæði.
Í bæjarstjórn samþykkti ég
þennan samning með fyrirvara um
að útbúin yrði yfirlýsing sem fæli í
sér að aðgerðaráætlun fyrir svæðið
m.t.t. móttöku flóttafólks og fækkun
þeirra á svæðinu. Hér kemur svo
yfirlýsingin, þar segir að það eigi að
greina þær áskoranir sem Reykja-
nesbær glímir við vegna aukins
fjölda flóttafólk sem býr í úrræðum
á vegum ríkisins. Greina hvað, ég
spyr. Það þarf ekki að greina neitt.
Þetta liggur fyrir, það eru einfald-
lega of margir flóttamenn á könnu
Reykjanesbæjar. Við erum komin
að þolmörkum. Skólarnir, félags-
þjónustan og húsnæðismarkaðurinn.
Þetta vita allir. En ráðuneytið vill
ekki skilja þetta. Í yfirlýsingunni eru
svo nokkur falleg orð um samstarf og
samvinnu. Eitthvað sem hefur ekki
staðist af hálfu ráðuneytisins hingað
til gagnvart Reykjanesbæ.
Í þessari yfirlýsingu er ekkert
minnst á tímafresti eins og lagt var
upp með. Ekkert fjallað um það
hvenær fækkun flóttamanna í þjón-
ustusamningi á að hefjast. Ekki einu
orði. Bara einhver greiningarvinna.
Að fenginni reynslu treysti ég ein-
faldlega ekki ríkisvaldinu í þessum
málaflokki, þegar kemur að sam-
skiptum við Reykjanesbæ,“sagði
Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi
Umbótar, í bókun sinni.
OF MARGIR FLÓTTAMENN Á
KÖNNU REYKJANESBÆJAR
Kort Vegagerðarinnar frá 19. desember í fyrra sem
sýnir lokanir og ástand vega á Suðurnesjum.
Lögreglubifreið á Reykjanesbtaut við Rósaselstorg.
„Með framlengdum samningni um
samræmda móttöku flóttafólks
vill velferðarráð Reykjanesbæjar
leggja aðaláherslu á að senda skýr
skilaboð til félags- og vinnumark-
aðsráðherra um að í lok ársins
2023 verði ljóst að markmið samn-
ingsins standi um að ná fjöldanum
úr 350 manns niður í 150 manns,“
segir í bókun ráðsins 18. janúar sl.
Í bókuninni segir einnig að
starfsfólk Reykjanesbæjar, helst
ráðgjafar, kennarar og leikskóla-
kennarar hafi staðið sig með ein-
dæmum vel í því að taka á móti
fólki á flótta en með þessum mikla
fjölda fólks hafi verið gríðarlegt
álag á félagsþjónustu sveitar-
félagsins. „Það gefur augaleið að
innviðir okkar munu til fram-
tíðar ekki ráða lengur við þetta
umfangsmikla verkefni, sér í lagi
ef fjöldinn eykst meira í sveitar-
félaginu á næstu misserum. Með
innviðum erum við að vísa í fé-
lagsþjónustu sveitarfélagsins, heil-
brigðisþjónustu, menntastofnanir
(fjölbrautaskólann, grunnskólana
og leikskólana) auk löggæslunnar.
Velferðarráð mun fylgja verk-
efninu vel eftir á árinu og upplýsa
bæjarstjórn um framgang samn-
ingsins og vonast eftir góðu sam-
starfi við félags- og vinnumarkaðs-
ráðuneytið.“
Undir bókunina rita:
Sigurrós Antonsdóttir, Birna
Ósk Óskarsdóttir, Andri Fannar
Freysson, Rannveig Erla Guðlaugs-
dóttir og Eyjólfur Gíslason.
Mikilvægt að
ná niður fjölda
flóttafólks fyrir
lok árs
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM