Víkurfréttir - 25.02.2023, Qupperneq 6
MARON HEFUR FARIÐ Í
FLESTA RÓÐRA Í JANÚAR
Þar kom að því að það kom bræla
hérna sunnanlands, því að veður-
farið frá áramótum er búið að vera
mjög gott og það gott að minni bát-
arnir, eins og t.d. færabátarnir, hafa
getað róið núna í janúar.
Veiðin hjá bátunum er búin að
vera nokkuð góð og má segja að
flestir bátanna séu á veiðum hérna
við Suðurnesin af þeim bátum sem
eru gerðir út frá Suðurnesjum.
Ef við lítum á togarana þá er
Pálína Þórunn GK með 124 tonn
í tveimur löndunum en athygli
vekur að togarinn hefur landað
í Grindavík og í Reykjavík, ekki í
sinni heimahöfn Sandgerði. Áskell
ÞH 131 tonn í tveimur í Grindavík,
Vörður ÞH 178 tonn í tveimur í
Grindavík, Sturla GK 237 tonn í
fimm í Grindavík, Sóley Sigurjóns
GK 262 tonn í tveimur og mest 132
tonn og Jóhanna Gísladóttir GK 352
tonn í fimm löndunum.
Hjá netabátunum er Grímsnes
GK með 84 tonn í sjö löndunum,
Maron GK 63 tonn í þrettán en
hann er sá netabátur á landinu
sem hefur farið í flesta róðra núna
í janúar. Halldór Afi GK 12 tonn í
fimm og Hraunsvík GK 6,9 tonn í
tveimur í Grindavík.
Kap VE hefur reyndar sést liggja
í höfninni í Keflavík en hann hefur
verið með netin utan við Sandgerði
og við Garðskagavita og veiðir í sig,
siglir síðan til Vestmannaeyja með
aflann. Hefur landað þar 93 tonn í
tveimur róðrum.
Hjá dragnótabátunum er Sigur-
fari GK með 155 tonn í þrettán
róðrum og er aflahæstur yfir landið
þegar þetta er skrifað, mest 25 tonn
í róðri. Siggi Bjarna GK 106 tonn í
tólf og mest 14 tonn, Benni Sæm
GK 91 tonn í ellefu og mest 16 tonn
og Aðalbjörg RE 28 tonn í þremur
og mest 14 tonn, allir í Sandgerði.
Þangað er líka kominn Maggý VE
en báturinn var í klössun í slippnum
í Njarðvík.
Einn bátur er að veiða sæbjúgu
við Ísland núna í janúar og er það
báturinn Jóhanna ÁR. Þessi bátur á
sér mjög langa sögu í Sandgerði því
að í um 30 ár var báturinn gerður
út frá Sandgerði og hét þá Sigurfari
GK, Jóhanna ÁR er kominn með 10
tonn í þremur róðrum af sæbjúgu.
Langflestir bátanna sem eru að
landa núna á Suðurnesjum eru á
línuveiðum. Sighvatur GK er með
264 tonn í þremur löndunum,
Valdimar GK 263 tonn í þremur,
Fjölnir GK 242 tonn í tveimur, Páll
Jónsson GK 203 tonn í tveimur,
allir í Grindavík.
Minni bátarnir hafa líka veitt
vel, t.d. Óli á Stað GK 124 tonn í
sautján róðrum og hefur hann róið
oftast allra línubátanna, landað í
Grindavík og Sandgerði. Kristján
HF 121 tonn í níu, Sævík GK 111
tonn í tólf, Margrét GK 111 tonn
í þrettán, Daðey GK 104 tonn í
þrettán, Vésteinn GK 88 tonn í átta,
Gísli Súrsson GK 73 tonn í fimm en
hann hefur verið á veiðum í Breiða-
firðinum og landað í Ólafsvík,
Auður Vésteins SU 65 tonn í sex
og er þetta eini báturinn sem er að
landa fyrir austan af bátunum sem
eru gerðir út frá Suðurnesjum en
Einhamar ehf. í Grindavík á bátinn.
Hulda GK 61 tonn í níu, Hópsnes
GK 36 tonn í sjö, Katrín GK 33
tonn í fjórum, Gulltoppur GK 26
tonn í fimm og er hann að landa á
Skagaströnd og er eini báturinn frá
Suðurnesjum sem landar þar, Geir-
fugl GK 23 tonn í fjórum.
Flestir af minni bátunum hafa
skipst á að landa í Sandgerði og
Grindavík en þó eru nokkrir sem
hafa haldið sig við einstakar hafnir,
t.d. Vésteinn GK í Grindavík,
Katrín GK og Geirfugl GK í Sand-
gerði. Reyndar hafa Margrét GK og
Kristján HF landað mestum hluta
af afla sínum í Sandgerði. Óli á
Stað GK, Daðey GK og Hulda GK
hafa landað mestum hluta sínum
í Grindavík og Sævík GK var að
mestu að landa í Þorlákshöfn.
aFlaFrÉttir á SuðurnESjuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll
Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
Linde Gas ehf. hefur sótt um
byggingarleyfi fyrir fjórum nýjum
tönkum á lóðina Heiðarholt 5 í
Sveitarfélaginu Vogum, sunnan
megin við núverandi tanka. Einnig
er sótt um stækkun byggingarreits
um 150 fermetra.
Samkvæmt umsókninni er fyrir-
hugað að reisa gámaskrifstofur
með tengigang við núverandi þjón-
ustuhús. Að auki óskar Linde gas
eftir afnotum af lóðinni Heiðarholti
3 en fyrirhugað er að nýta lóðina
sem geymslusvæði fyrir lárétta
tanka. Afgreiðsla skipulagsnefndar
Sveitarfélagsins Voga er sú að í ljósi
þess að fallið hafi verið frá uppbygg-
ingu samkvæmt viljayfirlýsingu við
sveitarfélagið telur nefndin réttast
að málið fái umfjöllun í bæjarráði/
bæjarstjórn áður en niðurstaða
nefndarinnar liggi fyrir.
Afgreiðsla bæjarráðs er að bæj-
arráð felur bæjarstjóra að vinna
málið áfram.
Samningur um útleigu á verslunar-
húsnæði í Iðndal 2 var lagður fyrir
bæjarráð Sveitarfélagsins Voga á
dögunum. Bæjarráð hefur staðfest
fyrirliggjandi samning við við Gro-
cery Market ehf. um leigu á versl-
unarrýminu.
Bæjarráð fagnar því að tekist hafi
samningar við rekstraraðila um
rekstur matvöruverslunar í Vogum
og óskar nýjum rekstraraðilum góðs
gengis, segir í gögnum bæjarráðs frá
18. janúar.
Verkefnið Bjartur lífsstíll
miðar að því að efla hreyfingu
fyrir eldri borgara. Verkefnið
er unnið í samvinnu Sveitar-
félagsins Voga og UMF Þróttar,
og er sett upp þannig að hver
eldri borgari í Sveitarfélaginu
Vogum getur nýtt sér allt að
fjórar klukkustundir á viku í
ýmis konar hreyfingu. UMF
Þróttur mun sjá um nám-
skeiðin.
Frístunda- og menningarnefnd
Sveitarfélagsins Voga leggur til
við bæjarráð að skoða hvort nýta
megi fjármuni sem áætlaðir hafa
verið í frístundastyrk til eldri
borgara til að greiða kostnað
vegna verkefnisins en hann er
áætlaður að hámarki 1,3 milljónir
króna á ári. Sérstaklega í ljósi
þess að mjög fáir eldri borgarar
hafa nýtt sér styrkinn hingað til.
Menningarverð-
laun Voga afhent á
sumardaginn fyrsta
Menningarverðlaun Sveitar-
félagsins Voga eru að jafnaði veitt
árlega samkvæmt reglum þar um.
Frístunda- og menningarnefnd
sveitarfélagsins samþykkti á síð-
asta fundi sínum að auglýst skuli
eftir tilnefningum til menningar-
verðlauna Sveitarfélagsins Voga
samkvæmt reglum þar um og for-
stöðumanni stjórnsýslu falið að
auglýsa eftir tilnefningum. Menn-
ingarverðlaun verða afhent við há-
tíðlega athöfn í Tjarnarsal fimmtu-
daginn 20. apríl, sumardaginn
fyrsta.
Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins
Voga ákvað á fundi sínum 17. janúar
að óska eftir áliti Skipulagsstofn-
unar á því hvort endurskoða þurfi
umhverfismat í heild eða hluta,
vegna fyrirhugaðs framkvæmda-
leyfis vegna Suðurnesjalínu 2, í
ljósi þess að goshrina er nú hafin
á Reykjanesi.
Á fundinum var jafnframt bókað
að óskað væri eftir upplýsingum
frá Landsneti um hver kostnaðar-
munur er á valkosti B (jarðstreng
með Reykjanesbraut) og valkosti C
(loftlínu meðfram núverandi línu)
og nánari gagna sem geri á hlut-
lægan hátt grein fyrir þeim áhrifum
á kerfi Landsnets að leggja Suður-
nesjalínu 2 sem jarðstreng þ.m.t.
upplýsingum um hvar þörf sé á að
leggja slíka strengi í framtíðinni sem
mögulega geti haft áhrif á ráðstöfun
jarðstrengja vegna Suðurnesjalínu 2.
Þá segir í bókuninni: „...Landsnet
hf. er opinbert fyrirtæki, stofnað
með lögum, starfar samkvæmt sér-
leyfi og er háð opinberu eftirliti.
Fyrirtækið er í eðli sínu einskonar
stjórnvald. Félaginu ber að koma
fram í samræmi við það í sam-
skiptum sínum aðra og gæta að
jafnræði og hlutlægni. Félagið á ekki
að reka einhverskonar áróðursher-
ferð. Framganga fyrirtækisins gagn-
vart sveitarfélaginu, sem m.a. felst
í því að halda fram órökstuddum
fullyrðingum um að samfélagið á
Suðurnesjum hafi orðið fyrir millj-
arða tapi, sem ætla má að fyrirtækið
telji á ábyrgð leyfisveitanda, er því
ekki til sóma og skapar vantraust og
ótrúverðugleika. Eðlilegt væri að til
þess bærir aðila s.s. Umboðsmaður
Alþingis, aðrar eftirlitsstofnanir eða
eigendur Landsnets könnuðu fram-
göngu félagsins í málinu.“
Bókunina má sjá í heild sinni á vef
Víkurfrétta, vf.is.
Óska álits Skipulagsstofnunar um endurskoðun
á umhverfismati vegna Suðurnesjalínu 2
Bjartur lífsstíll er
hreyfiúrræði eldri
borgara í Vogum
Linde Gas ekki í uppbyggingu í sam-
ræmi við viljayfirlýsingu og umsókn
því vísað til bæjarstjórnar
Grocery Market opnar
matvöruverslun í Vogum
Verksmiðja Linde Gas ehf. í Sveitarfélaginu Vogum. VF-mynd: Hilmar Bragi
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM