Víkurfréttir - 22.02.2023, Side 4
Lyfjaval Apótek Suðurnesja hefur flutt starfsemi sína frá Hring-
braut í Keflavík í nýtt og glæsilegt húsnæði við Aðaltorg í Keflavík,
efst á Aðalgötu við Courtyard by Marriott hótelið. Þar hefur verið
opnað svokallað bílaapótek sem er opið alla daga vikunnar frá níu á
morgnana til níu á kvöldin.
Tanja Veselinovic lyfjafræðingur
er lyfsalinn hjá Lyfjavali Apóteki
Suðurnesja í Reykjanesbæ og hefur
verið það í um ellefu ár, frá því Þor-
valdur Árnason, sem þá átti Apótek
Suðurnesja, fékk Tönju til Suður-
nesja þegar Apótek Suðurnesja var
enduropnað. Hún hafi fengið góða
niðurstöðu úr meistaraverkefni
sínu í lyfjafræði og ætlaði að fara í
doktorsnám þegar Þorvaldur kom
að máli við hana og vildi að hún
myndi sjá um apótekið í Reykja-
nesbæ. Það varð úr og Tanja hefur
skotið rótum í Reykjanesbæ með
fjölskyldu sinni. Tanja ólst upp á
Akranesi og gekk þar í barnaskóla
og framhaldsskóla en upprunalega
kom hún til Íslands sem innflytj-
andi þegar stríð braust út í hennar
heimalandi, Króatíu. Hún fór svo í
háskólanám í Reykjavík og þaðan
drógu örlögin hana til Reykjanes-
bæjar.
„Það er skemmtilegt að vera
komin hingað á Aðaltorg. Þetta
er bara allt annað og sérhannað
húsnæði fyrir þessa starfsemi sem
bílaapótek. Vinnuaðstaða er til
fyrirmyndar og húsnæðið bjart
og gott,“ segir Tanja í samtali við
Víkurfréttir.
Hjá apótekinu eru í dag sextán
starfsmenn og þar af eru sex lyfja-
fræðingar. Ekki veitir af, því apó-
tekið er í dag opið í tólf tíma á sól-
arhring, alla daga vikunnar. Opið
er inn í búðina frá níu að morgni
og til klukkan sex síðdegis en lúg-
urnar eru opnar áfram til klukkan
níu á kvöldin.
Aðspurð hvernig reynslan sé
búin að vera fyrstu dagana, sagði
Tanja að hún væri æðisleg. Allir
gömlu viðskiptavinirnir hafi fylgt
þeim á nýjan stað og þá hafi starfs-
fólkið einnig verið að sjá mikið af
nýjum andlitum koma í lúguna eða
inn í búðina.
„Eldri viðskiptavinirnir hafa
verið að koma inn í búðina til að
heilsa upp á okkur á nýjum stað
og svo eru þeir sem koma bara í
lúguna og finnst það æðislegt að
fá afgreiðslu á öllu beint í bílinn.
Ég er líka svolítið hissa á hvað fólki
finnst þetta spennandi þegar það
kemur í lúguna. Það eru allir að
prófa sig áfram. Þetta er líka mikil
breyting fyrir okkur með lengri
opnunartíma. Við erum líka að
sjá fólk koma hingað til okkar úr
Grindavík og Vogum, viðskipta-
vinir sem hafa ekki verið að koma
á Hringbrautina.“
Tanja segir að þörfin fyrir lengri
opnunartíma hafi greinilega verið
til staðar og það hafi verið mjög
mikið að gera frá því það var opnað
síðasta föstudag.
„Þessi staðsetning á apótekinu er
á aðaltorgi bæjarins til framtíðar.
Hérna mun opna annar verslunar-
kjarni í framtíðinni, heilsugæslan
er að koma hérna í næsta hús, hér
er nálægð við flugstöðina og Suður-
nesjabæ. Það er mikil umferð um
þetta svæði,“ segir Tanja.
Bílaapótek hefur mikla kosti
fyrir viðskiptavini, sem þurfa ekki
að fara út úr bílnum til að fá af-
greiðslu á lyfseðilsskyldum lyfjum
eða aðra vöru. Fólk sem á erfitt
með gang tekur þessari þjónustu
fagnandi. Lúgurnar á apótekinu
eru fjórar og í góðu skjóli fyrir veðri
og vindum. Það sé því þægilegt að
geta bara setið í heitum bílnum á
meðan beðið er eftir því að lyfin
séu afgreidd. Þá getur fólk farið inn
á lyfjaval.is og gengið frá pöntun
á lyfjaafgreiðslu þar og komið í
lúguna og sótt. Send er staðfesting
til fólk þegar lyfin eru tilbúin til af-
greiðslu.
„Þá sagði viðskiptavinur við
okkur að næðið í lúgunni væri
meira en inni við afgreiðsluborðið.
Einnig er þetta þægileg leið fyrir
fólk með börn, að þurfa ekki að
taka þau úr bílstólnum og koma
inn,“ segir Tanja Veselinovic lyfja-
fræðingur í samtali við Víkurfréttir.
w
Áratuga reynsla Sjónmælingar
Góð þjónusta Linsumælingar
Falleg vara Sjónþjálfun
Nýjungar í sjónglerjum og tækjum
Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is
Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Við erum á Aðaltorgi - verið velkomin!
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Litla brugghúsið í Garðinum sem hóf starfsemi árið 2020, heldur
áfram að vaxa og dafna en von er á glænýjum bjór sem mun verða
með skírskotun í eldgosin á Reykjanesi.
Fyrirtækið hlaut á dögunum styrk
frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja
til að gera eldgosabjórinn en hann
bætist í hóp þeirra fjögurra sem nú
þegar hafa litið dagsins ljós. Litla
brugghúsið framleiðir einnig árs-
tíðabjóra fyrir tvö hótel í Reykja-
nesbæ. Þá verður páskabjórinn,
Hippitus Hoppitus einnig settur á
flöskur á næstu dögum og verður
fáanlegur í Litla Brugghúsinu, Vín-
búðunum og í Bjórlandi.
„Vegna mikillar eftirspurnar
eftir þeim fjórum tegundum bjóra
sem við höfum nú þegar sett á
markað, þurftum við að bæta
tækjakostinn til að ná hagræðingu
og betri nýtingu í framleiðslunni.
Þá lá beinast við að koma með
fimmtu tegundina en við stefnum
á að hann verði kominn á markað
innan tveggja mánaða. Þessi
bjór mun draga nafn sitt af eld-
gosunum en við erum ekki alveg
búnir að ákveða endanlegt nafn og
eins er þróun enn í gangi. Hvernig
bjórinn verður á enn eftir að koma
í ljós í þeim prufusuðum sem eru
og verða í gangi á næstunni. Ég er
mjög spenntur að smakka þessar
prufur en stefnan er síðan að koma
endanlegri uppskrift í framleiðslu,
vonandi eigi síðar en eftir mánuð,“
segir Kristján Carlsson Gränz,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Litla brugghúsið með eldgosabjór
Nýtt bílaapótek við Aðaltorg fær góðar móttökur
Tanja Veselinovic lyfjafræðingur hjá Lyfjavali Apóteki
Suðurnesja í einni bílalúgunni. VF/Hilmar Bragi
Hjá Lyfjavali Apóteki Suðurnesja starfa samtals sextán manns á mörgum vöktum. Ljósmyndari
Víkurfrétta náði að smella myndum af nokkrum starfsmönnum nú í vikunni.
Húsnæði bílaapóteks Lyfjavals Apóteks Suðurnesja við Aðaltorg í Reykjanesbæ.
Davíð Ásgeirsson, Kristján Carlsson Gränz og Kristinn Bergsson. VF/pket
4 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM