Víkurfréttir - 22.02.2023, Blaðsíða 12
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Fjármála- og stjórnsýslusvið - Rekstrarfulltrúi
Garðasel - Leikskólakennari
Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu?
Stapaskóli - Þroskaþjálfi
Velferðarsvið - Búsetuþjónusta fatlaðs fólks
Velferðarsvið - Dagdvalir aldraðra
Velferðarsvið - Félagsráðgjafi/Sérfræðingur
Velferðarsvið - Heimaþjónusta/stuðningsþjónusta
Velferðarsvið - Starf á heimili fatlaðrar konu
Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna.
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Vinnuskóli Reykjanesbæjar/Sumarstörf - Flokkstjórar
Vinnuskóli Reykjanesbæjar/Sumarstörf - Flokkstjórar fyrir
ungmenni með sértækar stuðningsþarfir
Vinnuskóli Reykjanesbæjar/Sumarstörf - Yfirflokkstjórar
Vinnuskóli Reykjanesbæjar/Sumarstörf – Skrifstofa
Vinnuskóla Reykjanesbæjar
Deiliskipulag
í Reykjanesbæ
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti 17. janúar 2023
að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Efnislosunarsvæði –
Njarðvíkurheiði skv. 41. gr skipulagslaga nr 123/2010
Reykjanesbær undirbýr jarðefnamóttöku á svæði sunnan
Reykjanesbrautar sem í aðalskipulagi er skilgreint fyrir
efnislosunarsvæði (E5) á Njarðvíkurheiði. Skipulagssvæðið
er tæpir 5 hektarar og heimil losun 500.000 rúmmetrar.
Heimilt verði að losa efni til geymslu.
Tillögurnar eru til sýnis frá og með 23. febrúar til 12. apríl
2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér
með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. apríl 2023.
Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu
Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Eða á
netfang skipulagsfulltrúa skipulag@reykjanesbaer.is
Reykjanesbær 22. febrúar 2023
Skipulagsfulltrúi
Eftirlosunarsvæði
á Njarðvíkurheiði
Elskulegur pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi,
GUÐJÓN EINARSSON
Skipstjóri
Víkurhópi 30, Grindavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 11. febrúar.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 23. febrúar klukkan 14.
Ingólfur Guðjónsson Guðbjörg Þórisdóttir
Ingvar Guðjónsson Steinunn Óskarsdóttir
Einar Guðjónsson Ástrún Jónasdóttir
Leifur Guðjónsson Guðrún María Brynjólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjanesbæjar hefur tekið fyrir
erindi frá Guttormi Guttorms-
syni þar sem m.a. er fjallað um
lagningu bifreiða í göturamma
Furudals í Innri-Njarðvík. Í
erindi Guttorms segir að íbúar
að Dalsbraut 30 noti götuna
Furudal sem bílastæði að stað-
aldri. Almennt er fimm til níu
bílum lagt samsíða í götunni
fyrir undan Furudal 30, utan
lóðarmarka lóðarinnar. Þetta
skapar m.a. hættu fyrir almenna
bílaumferð um Furudal og
óþarfa þrengsli í götunni. Svipað
vandamál er upp á teningnum
fyrir framan Reynidal 1.
Mikil vandræði sköpuðust t.d.
nú í vetur við snjóhreinsun og
-mokstur, þar sem nokkrum bílum
var lagt í göturammanum framan
við húsið að Furudal 30. Þetta
ástand varð m.a. til þess að þessi
gatnamót voru alveg lokuð um
tíma og einnig var mjög þungfært
um gatnamótin Geirdal/Grenidal
og voru íbúar hverfisins nánast
lokaðir inni.
Óskað er eftir að settar verði
upp merkingar um bann við að
leggja í götunni með viðeigandi
merkingum og gulum kantsteini.
Þetta á bæði við um Dalsbraut og
Reynidal.
Í afgreiðslu umhverfis- og skipu-
lagsráðs segir að bifreiðastöður eru
þegar óheimilar á hluta Reynidals,
stækkun á því svæði verður ekki
að sinni. Unnið er að stofnun bíla-
stæðasjóðs en með honum á að
vera betra tækifæri til að fylgja eftir
bílastæðamálum.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Bolafót 21, 23 og 25 í Njarðvík hefur
verið lögð fram. Þar er lagt til að lóðirnar verði sameinaðar í eina.
Á lóðina komi tvö þriggja til fjögurra hæða fjölbýlishús. Íbúðafjöldi
verði allt að 35, nýtingarhlutfall 0,51 og bílastæði á lóð verði 54, með
hlutfallið 1,5 á íbúð. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar
hefur veitt heimild til að auglýsa deiliskipulagstillöguna.
Í greinargerð aðalskipulags Reykja-
nesbæjar kemur m.a. fram sú
stefnumörkun bæjaryfirvalda að
svæðið verði endurskipulagt með
íbúðarhúsnæði í huga í bland við
atvinnustarfsemi. Byggingar á
svæðinu geti verið þriggja til fimm
hæða með mögulegri atvinnustarf-
semi á neðri hæðum. Fram kemur
að vanda skuli ásýnd, hönnun og
frágang á svæðinu vegna nándar
við nærliggjandi íbúðarbyggð.
Einnig skal huga að hljóðvist vegna
nálægðar við Keflavíkurflugvöll en
deiliskipulagssvæðið er í fluglínu
austur–vestur flugbrautar vall-
arins, í um 1,8 km fjarlægð frá
brautarendanum.
„Með breytingu á deiliskipulagi
við Bolafót er verið að auka við
íbúðarbyggð á svæðinu og um leið
að styðja við þá byggð sem fyrir
er, eins og í miðbænum. Þannig
er verið að stuðla að skynsamlegri
og hagkvæmri nýtingu svæðisins
sem og styrkja innviði og grunn-
kerfi bæjarhlutans. Með nýbygg-
ingum við Bolafót er verið að
bæta ásýnd svæðisins og um leið
hverfisbraginn, svo og gefa fleirum
tækifæri til að búa á góðum stað
og það miðsvæðis. Vel hönnuð og
glæsileg fjölbýlishús munu jafn-
framt styrkja bæjarmynd Reykja-
nesbæjar. Ósnortin náttúra er í
næsta nágrenni sem býður upp á
fjölbreytta möguleika til útivistar
á svæðinu,“ segir í tillögunni.
Tvö fjölbýli með 35
íbúðum við Bolafót
Svona sjá menn fyrir sér tvö fjölbýlishús á lóðinni við Bolafót.
Íbúar að Dalsbraut
30 nota götuna
Furudal sem bíla-
stæði að staðaldri
vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
Þessi skemmtilega mynd er úr safni eldri mynda hjá Víkurfréttum.
Fiski úr Barentshafi var landað í Keflavíkurhöfn úr rússnesku flutn-
ingaskipi árið 1990, eða fyrir rúmum þrjátíu árum. Rússarnir notuðu
ferðina til að fylla skipið af eldri bifreiðum sem framleiddar höfðu
verið í Rússlandi. Eðalvagnar á heimleið. Þarna má sjá Lödubifreiðar
vel skorðaðar uppi á brúarvængnum, aftan við stýrishúsið.
Lödur fluttar
í heimahagana
G AML A V F -M YND I N
12 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM