Víkurfréttir - 22.02.2023, Blaðsíða 6
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
Deildir Dagsetning Dagur Tími Staður
1. deild 2. mars 2023 Fimmtudagur Kl. 17:00 Krossmóa 4, 5. hæð
Keflavík norðan Aðalgötu
2. deild 2. mars 2023 Fimmtudagur Kl.17:00 Krossmóa 4, 5. hæð
Keflavík sunnan Aðalgötu
3. deild 2. mars 2023 Fimmtudagur Kl. 17:00 Krossmóa 4, 5. hæð
Njarðvík, Hafnir, Vogar
4. deild 28. febrúar 2023 Þriðjudagur Kl. 17:00 Sjómannastofan Vör
Grindavík
5. deild 1. mars 2023 Miðvikudagur Kl. 18:00 Efra Sandgerði
Sandgerði
6. deild 1. mars 2023 Miðvikudagur Kl. 17:00 Réttarholtsvegi 13, Garði
Garði
8. deild 27. febrúar 2023 Mánudagur Kl. 17:00
Hafnarfjörður, Garðabær,
Álftanes, Kópavogur,
Seltjarnarnes, Reykjavík
FUNDABOÐ
AÐALFUNDIR DEILDA KAUPFÉLAGS SUÐURNESJA VERÐA
HALDNIR SAMKVÆMT SAMÞYKKTUM FÉLAGSINS SEM HÉR SEGIR:
Krossmóa 4 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 421 5409
Dvergholti 1, Hafnarfirði, 3. hæð,
bláa húsinu.
Síðasti pistill var svona í ansi
styttra lagi, enda var þá búin að
vera mikil og leiðinleg tíð og bát-
arnir höfðu lítið sem ekkert getað
komist á sjóinn. Ég endaði reyndar
þann pistil á að segja að það mætti
búast við því að það yrði góð veiði
loksins þegar gæfi á sjóinn.
Og já, það má heldur betur segja
að það hafi ræst því það gerði sjó-
veður þrjá daga í röð og það var
mokveiði hjá bátunum, sérstak-
lega þeim sem réru frá Sandgerði
á línu. Þar ber hæst Helgi Þór Har-
aldsson skipstjóri á Margréti GK
frá Sandgerði, hann ásamt áhöfn
sinni komst í þessa þrjá róðra og
var með fullfermi í þeim öllum, alls
var 55 tonnum landað í þessum
þremur róðrum. Einn af þessum
róðrum, sem var róður númer tvö,
kom Margrét GK til Sandgerðis
drekkhlaðin og með þessum pistli
fylgir mynd af bátnum koma til
Sandgerðis drekkhlaðinn, um
borð voru samtals 20,6 tonn og
var þetta mesti afli sem að Mar-
grét GK hefur komið með í einni
löndun frá því að báturinn hóf
veiðar. Áhöfn bátsins var að vonum
í skýjunum með þennan risaróður
og í raun hefði hann getað verið
örlítð stærri því að þeir gátu ekki
dregið alla línuna og skildu eftir
u.þ.b. þrjá bala í sjó (Margrét GK
er beitningavélabátur en þarna er
ég búinn að umreikna línuna yfir
í bala).
Þessi mokveiði hjá Helga dró að
sér báta frá Grindavík og má til
dæmis nefna að Daðey GK kom
með 14 tonn, Óli á Stað GK með
13,4 tonn og Geirfugl GK tæp 12
tonn. Róðurinn hjá Geirfugli GK
vekur nokkra athygli því að bát-
urinn fór lang síðastur á sjóinn og
fór utar en hinir og var í raun í 4
mílunum frá Sandgerði, náði samt
sem áður svo til fullfermi.
Allur þessi afli var tekinn innan
við 4 mílurnar en ansi margir 29
metra togarar hafa verið að toga
þarna fyrir utan núna í febrúar, til
að mynda togarar frá Grundarfirði.
Þessi góða tíð þýddi það líka
að nokkrir færabátar gátu róið
og fóru allavega fjórir bátanna
á ufsann í Röstinni, Agla ÁR var
með 2,6 tonn í einum róðri og Gísli
ÍS með 1.3 tonn, báðir lönduðu í
Grindavík. Dímon GK var með 1.4
tonn í einum róðri og Guðrún GK
3,2 tonn í tveimur, báðir lönduðu
í Sandgerði. Líf NS er kominn
með 6,9 tonn í sex róðrum núna í
febrúar en báturinn hefur verið á
færaveiðum við Garðskagavita og
landað bæði í Keflavík og Sand-
gerði.
Dragnótabáturinn Sigurfari GK
sem er búinn að vera stopp allan
febrúar útaf sviptingu á veiðileyfi,
hóf aftur að róa núna í vikunni
og var reyndar ekki með mikinn
afla, aðeins um 3 tonn í tveimur
róðrum. Benni Sæm GK er með 48
tonn í fimm, Siggi Bjarna GK með
44 tonn í fimm róðrum, Aðalbjörg
RE með 18 tonn í fjórum, allir
lönduðu í Sandgerði.
Svo til allir stóru línubátarnir
eru komnir norður eða í Breiðar-
fjörðinn og til að mynda er Sig-
hvatur GK kominn með 361 tonn
í þremur túrum og Páll Jónsson
GK með 270 tonn í tveimur, báðir
landa á Skagaströnd. Reyndar var
fyrsta löndunin hjá Sighvati GK
uppá 124 tonn í Grindavík.
Það er stutt í lokin á þessum
stormasama febrúarmánuði en
miðað við hversu góð veiði var
þessi fáu daga sem gaf á sjóinn, þá
má búast við því að við eigum eftir
að sjá meira af fullfermisróðrum
hjá bátunum.
aflafrÉttir á SuðurNeSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Stormasömum
mánuði að ljúka
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Suðurnes eru einstakur
alþjóðaflugvöllur fyrir farfugla
Sölvi Rúnar Friðriksson, fuglafræðingur og
doktorsnemi hjá Þekkingarsetri Suðurnesja,
í næsta Suðurnesjamagasíni.
6 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM