Víkurfréttir - 22.02.2023, Page 9
„Ég grét úr mér augun og teygði mig svo í gítarinn og rifjaði upp
stefið sem ég hafði spilað inn á símann deginum áður og það smell-
passaði við textann,“ segir grindvíski tónlistarmaðurinn Grétar Lárus
Matthíasson, sem gaf út sitt fyrsta lag á dögunum.
Lagið heitir Barnið mitt en Kristín
systir hans samdi textann. „Ég var
ekki með neitt í huga en fann svo
þegar ég var að fara að sofa að
andinn var að koma yfir mig,“ segir
hún. Textann samdi hún eftir að
hafa hitt Grétar bróður sinn en fyrr
um daginn hafði hann fengið hug-
mynd að lagi. Hvorugt systkinanna
vissi af sköpun hins og lag og texti
féllu eins og flís við rass.
Grétar sem hefur hingað til verið
meira þekktur sem gítarleikari, er
nýlega byrjaður að gera meira með
þá tónlist sem hann hefur samið í
gegnum tíðina. Hann fékk fjóra
hljóðverstíma í afmælisgjöf frá
kærustunni sinni, í stúdíó Paradís
sem er í Sandgerði og er í eigu feðg-
anna Jóhanns Ásmundssonar og
Ásmundar Jóhannssonar. Við það
virtist eitthvað losna úr læðingi,
fjórir hljóðverstímarnir eru orðnir
að hátt í þrjátíu og nokkur lög
bíða útgáfu en allt í allt eru lögin
orðin það mörg að þau fylla plötu.
Sagan á bak við þetta fyrsta lag sem
Grétar gefur út er ansi mögnuð.
Fyrr um daginn hafði Grétar fengið
hugmynd að lagi í kollinn, tók það
upp á símann sinn og viti menn,
lagið smellpassaði við textann.
Ótrúleg atburðarás
Grétar fór yfir þessa ótrúlegu at-
burðarás. „Ég kíkti í heimsókn til
Kristínar systur í nóvember, við
vorum ekki búin að hittast í svo-
lítinn tíma en ég bý á Selfossi, hún
í Grindavík. Ég tók gítarinn með
mér og við ræddum um daginn og
veginn eins og gengur og gerist. Á
einhverjum tímapunkti skaut laga-
hugmynd upp í kollinn á mér. Ég
spilaði hana inn á símann minn
svo ég myndi ekki gleyma laginu,
Kristín var ekki viðstödd á meðan
ef ég man rétt. Við héldum áfram
að spjalla og Kristín sagði mér að
hún hefði tekið mömmu og frænku
okkar í heilun deginum áður og
spurði hvort hún mætti líka heila
mig. Ég hélt það nú og lagðist á
bekkinn hjá henni, ég hafði aldrei
áður prófað þetta og fannst þetta
mögnuð upplifun, fann mikinn
hita í líkamanum og vellíðunar-
tilfinningu. Eftir heilunina borð-
uðum við kvöldmat og svo fór ég
heim á Selfoss. Morguninn eftir var
ég úti í bílskúr með gítarinn þegar
Kristín hringir. Hún sagðist hafa
samið texta sem hún yrði að fá að
senda mér og sagði að ég þyrfti að
semja lag við textann. Hún sagðist
hafa samið textann út frá mínu
hjarta, hugmyndin hefði fæðst
kvöldið áður og hún hefði klárað
textann þegar hún vaknaði. Hún
sagði mér að textinn fjallaði um
barnsmissinn en ég missti annan
tvíburann minn árið 2008. Berta
Sóley og Elsa Björt fæddust fyrir
tímann, fengu mikla sýkingu og
því miður þá lifði Elsa ekki af.
Ég las textann og brotnaði alger-
lega saman, þetta var eins og talað
úr mínu hjarta. Ég grét úr mér
augun og teygði mig svo í gítarinn
og rifjaði upp stefið sem ég hafði
spilað inn á símann deginum áður
og það smellpassaði við textann.
Lagið kláraðist á fimm mínútum
eftir þetta, ótrúleg lífsreynsla.“
Afmælisgjöf frá kærustunni
Grétar lærði ungur að spila á gítar
og er mjög frambærilegur sem
slíkur, hefur spilað með mörgum
tónlistarmönnum í gegnum tíðina
og er þessa dagana að undirbúa
80’s-tónleika í Hörpu með söng-
konunni Guðrúnu Árnýju Karls-
dóttur. Undanfarin ár hefur hann
gert meira af því að syngja og
koma fram sem trúbador en það
er ekki fyrr en nú sem hann gerir
meira við þá tónlist sem hann
hefur samið í gegnum tíðina. „Ég
hef alltaf eitthvað verið að semja,
fann t.d. tuttugu ára gamalt demó
um daginn. Ég hef bara aldrei gert
neitt meira við þetta og það var
ekki fyrr en í ágúst í fyrra þegar ég
átti afmæli og Karen Dögg, unn-
usta mín, gaf mér fjóra stúdíótíma,
sem eitthvað losnaði úr læðingi.
Ég var þá með lag í huga sem við
tókum upp en svo hafa þau komið
eitt af öðru og ég er í raun kominn
með efni á heila plötu. Venjulega
kemur lagahugmyndin fyrst og svo
sem ég textann en ég mun pottþétt
prófa hina leiðina líka. Hvernig
þetta lag, Barnið mitt, varð til er
mér hulin ráðgáta en svona gerast
töfrarnir stundum og við systkinin
munum pottþétt gera meira saman
í tónlistinni í framtíðinni,“ sagði
Grétar.
Systkinasamstarf
Kristín sem hafði aldrei verið við-
loðandi tónlist á neinn hátt, kom
mörgum í opna skjöldu þegar hún
skaust fram á sjónarsviðið fyrir
stuttu sem fullskapaður laga- og
textahöfundur. Hún hefur verið
að semja fyrir Kvennakór Grinda-
víkur að undanförnu og verða
lögin frumflutt á tónleikum þann
12. mars næstkomandi. „Ég get
ekki útskýrt þetta, allt í einu kom
þessi gáfa til mín og ég gat farið
að semja lög og texta. Lögin koma
einhvern veginn til mín, ég kann
ekki að spila á neitt hljóðfæri svo
ég get ekki skýrt þetta almennilega
út. Það gerðist eitthvað magnað á
milli okkar Grétars þennan dag.
Ég var ekki með neitt í huga en
fann svo þegar ég var að fara að
sofa að andinn var að koma yfir
mig. Ég er alltaf með stílabók við
hendina og fyrsta erindið fæddist
um kvöldið áður en ég sofnaði og
þegar ég vaknaði fann ég að ég
þyrfti að klára þetta og hætti ekki
fyrr en allur textinn var kominn.
Þetta er í raun alveg mögnuð til-
finning, ég finn að ég þarf að
túlka þessar tilfinningar og losna í
raun ekki úr þessu ástandi fyrr en
textinn er fæddur. Þannig var þetta
þennan umrædda morgun og ég
hringdi í Grétar um leið og textinn
var fæddur og hér erum við í dag,
með þetta æðislega lag Grétars
við textann minn. Við eigum svo
sannarlega eftir að gera meira
saman í tónlistinni í framtíðinni,“
sagði Kristín að lokum.
Töfrum líkast hvernig lag varð til
Systkinin Grétar og Kristín sömdu lag og texta í sitthvoru lagi án vitneskju um að hinn aðilinn væri að semja.
Það hafa mjög margir komið að
þessari vinnu, ekki aðeins nefndir
bæjarins heldur einnig starfsfólk
íþróttamiðstöðvarinnar, íbúar
bæjarins og ungmennaráð. Fram-
kvæmdin mun ekki aðeins taka
tíma heldur mun hún einnig verða
kostnaðarsöm en bæjarstjórn
Grindavíkur hefur gert áætlun um
að setja einn og hálfan milljarð í
verkið næstu þrjú árin. Það er
alveg ljóst að íbúar Grindavíkur
vilja fá almennilega sundlaugaað-
stöðu í bæjarfélagið. Ég hef fulla
trú á því að hér verði besta sund-
laug landsins, það eiga allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Að-
gengið verður líka til fyrirmyndar.
Þetta er mikið gleðiefni og bæjar-
búar eru spenntir fyrir verkefninu,“
sagði Sigríður Etna.
Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri
skipulags- og umhverf issviðs
Grindavíkurbæjar, segir að næstu
skref gagnvart deiliskipulaginu
verði að kynna vinnslutillögu þar
sem öllum verðum boðið að koma
með athugasemdir, það kemur
fram á heimasíðu Grindavíkur-
bæjar hvernig það er hægt og er
skilafrestur til 26. febrúar. „Í kjöl-
farið verður haldið áfram með
deiliskipulagsvinnuna og deili-
skipulagið sett í formlegt auglýs-
ingarferli. Vonir standa til að deili-
skipulagið taki gildi á seinni hluta
þessa árs. Vinna við forhönnun
á sundlaugarsvæðinu er hafin
en eftir að hún verður samþykkt
má gera ráð fyrir að vinna við
fullnaðarhönnun taki sex til átta
mánuði. Svo er verkið boðið út.
Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar
gerir ráð fyrir að framkvæmdir við
sundlaugarsvæðið hefjist á næsta
ári en gert er ráð fyrir 500 millj-
ónum króna við framkvæmdirnar á
ári á næstu þremur árum. Hvenær
ráðist verður í aðrar framkvæmdir
á svæðinu, eins og gervigras á fót-
boltavöllinn svo dæmi sé tekið, er
síðan undir pólitíkinni komið,“
sagði Atli.
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Grétar og fjölskylda:, f.v.: Grétar, Berta Sóley Grétarsdóttir, Anita Björt
Arnarsdóttir, Karen Dögg Bryndísar- og Karlsdóttir og Elsa Kristín Grétarsdóttir.
Grétar með dætrum sínum, Bertu Sóley
og Elsu Kristínu, við leiði Elsu Bjartar.
Grétar og Kristín .
Það ætti ekki að væsa um sundlaugargesti
þegar framkvæmdum verður lokið.
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 9