Víkurfréttir - 22.02.2023, Blaðsíða 10
Hvað einkennir góð samskipti á vinnustað og hvað er vinnustaða-
menning? Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum stóð fyrir
erindi um vinnustaðamenningu. Steinunn Snorradóttir, félagi í FKA
Suðurnes, er lærður grunnskólakennari og hefur lokið meistaranámi
í náms- og starfsráðgjöf. Hún vann í Heiðarskóla í Reykjanesbæ í tíu
ár, fyrst sem náms- og starfsráðgjafi og síðar sem deildarstjóri. Nú
vinnur hún sem námsbrautarstjóri flugverndarbrautar hjá Isavia.
Á kynningarfundi FKA Suðurnes sagði hún frá verkefni sem Isavía
vinnur nú að um vinnustaðamenningu þar sem búið er að skipta
hegðu upp í þrjá flokka.
Hvað getur þú sagt okkur um
vinnustaðamenningu. Ég get
ekki séð að þetta hafi verið stórt
atriði í atvinnulífinu fyrir tíu til
tuttugu árum síðan.
„Sem betur fer þá hefur nú
margt breyst. Vinnustaðamenning
gengur út á það hvernig samskipti
við erum að eiga hvert við annað,
sama hvort það er í atvinnulífinu,
heima eða í tómstundum. Þá
skiptir máli hvernig samskiptin
eru okkar á milli. Við erum að ræða
það hvernig við getum átt sem best
samskipti í vinnunni, talað saman
og haft sama skilning á hlutunum
og rætt þá á uppbyggilegan máta.“
Er þetta vandamál víða í fyrir-
tækjum og stofnunum á Íslandi,
að það sé ekki nógu góð vinnu-
staðamenning? Er samvinnan
ekki nógu mikil?
„Nú þekki ég ekki fyrirtæki al-
mennt á Íslandi en ég held, alveg
sama hvert við förum, við getum
alltaf gert eitthvað betur. Við
getum alltaf grætt á þessu.“
Í þessu erindi sem þú fluttir hjá
FKA Suðurnes varst þú að ræða
um fas og framkomu, augnsam-
band, góð ráð í samskiptum, fullt
af mjög góðum ábendingum.
„Þetta gengur helst út á það að
við séum að skoða okkur sjálf.
Eina manneskjan sem við getum
borið ábyrgð á erum við sjálf. Þetta
gengur út á hvað ég geti gert til að
stuðla að góðum samskiptum við
þá sem ég er að vinna með og er í
kringum. Þannig erum við svolítið
í naflaskoðun. Hvernig er traust á
milli fólks og hvernig getum við eflt
það? Einnig hvernig við tölum við
hvort annað, þannig að allir séu
jafnir og geti talað við hvort annað
á jafningjagrundvelli og að allir fái
að koma sínum skoðunum á fram-
færi.“
Að viðra skoðanir án þess
að særa eða meiða
Á þínum vinnustað, Isavia í flug-
stöðinni á Keflavíkurflugvelli,
hafið þið verið að skipta hegðun
upp í þrjá flokka. Getur þú sagt
okkur hvernig þið gerðuð þetta?
„Það eru rannsóknir á bak við
þetta sem við erum að fara eftir.
Það er búið að skipta samskipta-
minstrinu upp í þrjá flokka. Það er
þessi drottnandi menning þar sem
fólk er svolítið að sýna hver ræður
og er með svolítil yfirráð. Þá eru
það þeir sem eru hörfandi og ekki
alltaf til í að segja sína skoðun og
fara frekar til baka. Við erum líka
með þessa uppbyggjandi menn-
ingu sem við viljum helst vera í
þar sem við getum talað við hvert
annað og sagt skoðanir án þess
að særa eða meiða og að allir séu
jafnir.“
Hvernig hefur þetta gengið hjá
ykkur? Þið eruð stór vinnu-
staður.
„Já, þetta er stór vinnustaður og
það eru um 800 manns sem eru að
taka þátt í þessu verkefni og það
er heljar mikið verkefni að halda
utan um það. Þetta hefur gengið
mjög vel og það var alveg skýrt frá
upphafi að það þyrfti að byrja á
efsta laginu. Það var byrjað á því
að forstjóri og framkvæmdastjórar
fóru í þessa vinnu og vinnustofur.
Fyrst var gerð könnun á því hvernig
vinnustaðamenningin var í upphafi
verkefnisins fyrir einu og hálfu ári
síðan. Þá var kannað hvert við
vildum fara. Efsta lagið var tekið
og það var farið í vinnustofur,
þjálfun og naflaskoðun; hvað við
getum gert. Allir sem eru fram-
kvæmdastjórar og forstjóri fengu
niðurstöður úr skoðanakönnun um
hvernig þeir væru í samskiptum.
Allir þurftu að meta sjálfan sig og
fá tíu til tólf einstaklinga sem eru
í kringum þig til að meta. Þetta
var langur spurningalisti að fara í
gegnum og svo fengu þeir niður-
stöðuna; hvernig fólk var að sjá sig
sjálft og einnig hvernig hinir voru
að sjá samskiptaminstrið hjá fólki.
Þetta gengur fyrst og fremst út á
naflaskoðun. Við erum að skoða
hvað við getum gert, hvað ég get
gert, til að vera betri í samskiptum.“
Forstjórinn sýnir gott fordæmi
Þú nefndir í erindi þínu að for-
stjórinn hafi gengið fremstur í
flokki og jafnvel stoppað fund
því það vantaði að taka öndun,
því það hjálpaði til.
„Auðvitað hjálpar það til að
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri
fyrirtækisins, gengur á undan með
mjög góðu fordæmi. Hann hefur
verið ótrúlega virkur og flottur
þátttakandi í þessu. Við reynum
að byrja fundi þannig að við jarð-
tengjum okkur og tökum þá létta
öndun eða förum léttan hring um
það hvernig við erum stemmd í
dag. Sem betur fer hefur hann og
aðrir framkvæmdastjórar gengið á
undan með góðu fordæmi“.
Er gott að taka öndun á undan
upphafi fundar og jarðtengja
sig?
„Mér finnst jóga mjög skemmti-
legt og þeir sem hafa farið í jóga
líður vel á eftir. Maður er slakur og
skilur eftir fyrir utan fundinn það
sem á ekki að vera með manni á
fundinum. Öndun er mjög góð og
það er alltaf þannig að ef manni
líður ekki nógu vel þá fer maður í
grunna öndun. Það er því gott að
taka djúpa öndun til að jafna sig
og að líkaminn fái það súrefni sem
hann þarf og þá vinnur heilinn
betur.“
Getur þú sagt okkur hverjar
voru helstu niðurstöðurnar hjá
ykkur, án þess að nefna persónur
og leikendur. Hvað hefur þessi
könnun ykkar leitt í ljós, var
hægt að bæta vinnustaðamenn-
inguna hjá Isavía?
„Það er alltaf hægt að bæta, það
er alveg sama hversu góð vinnu-
staðamennningin er, það er alltaf
hægt að bæta hana og geta eitthvað
betur. Þessi könnun var gerð fyrir
einu og hálfu ári síðan og niður-
staðan var að það var svolítið um
drottnandi menningu og eins líka
þeir sem voru að hörfa til baka og
þora ekki að segja. Við viljum fara
meira í þessa uppbyggjandi menn-
ingu. Það hefur ekki verið gerð
könnun aftur en hún er fyrirhuguð
á þessu ári og það verður gaman
að sjá niðurstöðurnar. Okkar til-
finning er tvímælalaust sú að þetta
er að hafa góð áhrif og fólk er virki-
lega að vanda sig.“
Að við getum treyst hvort öðru
Þú ert með dæmi um að að
fundur hafi gengið illa, því
andinn var ekki nógu góður á
fundinum og núningur. Eftir
fundinn hafi svo einn fundar-
manna sagt að fundurinn hafi
ekki gengið nógu vel og það þyrfti
að endurtaka fundinn.
„Ég var ekki sjálf á þessum fundi
en hef heyrt svona dæmi. Einn
starfsmaður sagði við annan að
þetta hafi ekki gengið vel og fund-
urinn var því bara endurtekinn og
þá gekk mun betur.“
Þið talið um að bæta samskipti
sem leiði þá til betri samvinnu
og árangurs. Það eru því öll
þessi grunngildi sem allir eiga
að temja sér.
„Þetta snýst fyrst og fremst um
traust, þannig að við getum treyst
hvort öðru og á þann hátt að ég
þori að segja það sem mér liggur
á hjarta, hafa skoðanir og að við
séum að fá þá bestu niðurstöðu
sem við mögulega getum í hverju
og einu verkefni.“
Að lokum. Lykilorð fyrir góð
samskipti?
„Það er að sjálfsögðu traust
og heiðarleiki, gagnvart bæði
sjálfum sér og öðrum. Og að sjálf-
sögðu gleðin. Við verjum ótrúlega
miklum tíma í vinnunni og ef það
er ekki gaman í vinnunni, þá eigum
við væntanlega ekki mjög spenn-
andi daga. Gleðin er númer eitt, tvö
og þrjú.“
Hvað get ég gert til að vera betri í samskiptum?
SJÁIÐ VIÐTÖL Í SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA Á VF.IS
Við reynum að byrja fundi þannig
að við jarðtengjum okkur og tökum
þá létta öndun eða förum léttan
hring um það hvernig við erum
stemmd í dag.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Frá fundi Félags kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum þar sem rætt var um vinnustaðamenningu. VF/Hilmar Bragi
Steinunn Snorradóttir.
10 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM