Víkurfréttir - 22.02.2023, Síða 16

Víkurfréttir - 22.02.2023, Síða 16
Mundi Verður Vatnsnes er eins og Manhattan með Central Park? Opinn kynningarfundur Íbúum og öllu áhugafólki um atvinnu- uppbyggingu á svæðinu er boðið að mæta svo að sjónarmið sem flestra komi fram. Samherji fiskeldi býður til kynningarfundar í tilefni af skilum á umhverfismatsskýrslu Eldisgarðs í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi. Fundurinn verður í formi opins húss og boðið verður upp á léttar veitingar. Courtyard by Marriott, Reykjanesbæ fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17–19 Nánar um Eldisgarð Ný deiliskipulagstillaga fyrir Vatnsnes og Hrannargötu 2-4 gerir ráð fyrir 339 íbúðum í fimm til sex hæða húsum og sam- einingu lóða í samræmi við upp- drætti JeES arkitekta ehf. Um- hverfis- og skipulagsráð Reykja- nesbæjar veitti heimild til að auglýsa deiliskipulagstillöguna samhliða auglýsingu á endur- skoðun aðalskipulags. Tvær athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna en haldinn var íbúafundur á auglýsingatíma hennar. Vegagerðin gerði athuga- semd og varaði við að skyggt yrði á ljósmerki vita. Merkið var fært í samráði við Vegagerðina og hafn- arstjórn. Vegagerðin staðfesti að breytingin væri fullnægjandi. Andmæli bárust frá nágranna sem varaði við að uppbygging næst þeirra fasteign drægi úr mögu- leikum uppbyggingar á þeirra lóð. HS Veitur gerðu jafnframt athuga- semdir við að breyta þurfi og bæta veitukerfi fyrir reitinn. HS Veitur þurfa að hanna dreifiveitulagnir til samræmis við kröfur notenda og fjármagna það með sínum til þess ætluðu tekjustofnum í samræmi við þarfir lóðarhafa og landnotkun. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að senda tillöguna til Skipulagsstofn- unar til endanlegrar afgreiðslu. Reglur um gistiheimili í íbúðahverfum Reykjanesbæjar samþykktar Tillaga að reglum um gistiheimili á íbúðasvæðum var lögð fram á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar og samþykkt. Rekstrarleyfisskyld gististarf- semi hefur verið bönnuð á íbúða- svæðum skv. aðalskipulagi en með endurskoðun aðalskipulags er vikið frá þeirri stefnu og slík starfsemi heimiluð uppfylli hún sett skilyrði eins og nánar kemur fram í tillögu að reglugerð um gistiheimili á íbúðasvæðum í Reykjanesbæ. Atvinnuleysi var mest á Suður- nesjum í desember 2022, eða 6%, en meðalatvinnuleysi var 3,4% á landsvísu. Vert er þó að geta að atvinnuleysi á Suður- nesjum var 9,3% í desember 2021. Atvinnuleysi meðal karla var 5,7% en 6,3% meðal kvenna á Suðurnesjum. Aðeins voru auglýst sex laus störf í desem- bermánuði á Suðurnesjum hjá Vinnumálastofnun. Atvinnuleysi 6% Ný deiliskipulagstillaga fyrir Vatnsnes og Hrannargötu 2-4 gerir ráð fyrir 339 íbúðum í fimm til sex hæða húsum og sameiningu lóð. Á tölvuteikningunni má sjá hvernig umhverfi strandlengjunnar við Vatnsnesvita mun breytast verði þetta að veruleika. 339 íbúðir í fimm til sex hæða húsum á Vatnsnesi Hestamannafélagið Máni hefur óskað eftir því við Reykjanesbæ að farið verði sem fyrst í gerð deiliskiplags á félagssvæði fé- lagsins við Mánagrund ásamt því að Reykjanesbær taki yfir allar götur félagsins á svæðinu. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti á síð- asta fundi sínum að unnin sé til- laga að deiliskipulagi fyrir svæðið í samráði við skipulagsfulltrúa. Þeim hluta erindis sem fjallar um gatna- gerðargjöld og yfirtöku sveitar- félagsins á gatnagerð er vísað til bæjarráðs. Reykjanesbær taki yfir allar götur í hest- húsahverfi Mána

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.