Veiðimaðurinn - 01.06.2019, Page 27
26 Veiðimaðurinn 27 Kveðjur frá formönnum SVFR
S tangaveiðifélag Reykjavíkur er
nú orðið 80 ára gamalt. Á tíma-
mótum sem þessum, er gott að líta
til baka og rifja upp tilgang og markmið
félagsins. Það var stofnað til að gæta hags-
muna veiðimanna varðandi stangaveiði í
Elliðaám. Félagið hefur þróast og dafnað
og nú eru markmið þess heldur víðtæk-
ari en var í upphafi, en megin markmið
félagsins er að efla hróður stangaveiði og
styrkja stöðu hennar sem almennings- og
fjölskylduíþróttar.
Félagið hefur staðið vörð um hin gömlu
góðu gildi stangaveiðinnar, um hóflega
veiði, um náttúruvernd og að stangaveiði
sé fjölskylduíþrótt þar sem þátttaka barna
og unglinga er lykilatriði. Sjálfur hef ég
verið félagsmaður í nærri 40 ár, unnið
fyrir félagið og stangaveiðimenn í 30 ár og
upplifað bæði góða og erfiða tíma. Þegar
erfiðleikarnir er sem mestir, þá eru það
félagarnir sem eru okkar styrkur, það hefur
margsinnis sýnt sig og því mega þeir sem
stýra félaginu aldrei gleyma.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur lifað
og dafnað í öll þessi ár, vegna þess að
félaginu hefur tekist að breyta sér í takt
við breytingar í þjóðfélaginu. Það eru ekki
mörg félög sem hafa náð áttræðisaldrinum,
en eins og stemmingin er hjá félaginu í
dag þá er ég þess fullviss að félagið verður
hundrað ára og gott betur!
Afmæliskveðjur. Bjarni Júlíusson,
formaður 2004-2007 og 2010-2014
Til hamingju með afmælið
Gildi stangaveiðinnar
Kveðjur frá formönnum SVFR
Ó neitanlega fer hugurinn á flug
þegar hugsað er til sögu SVFR.
Þetta félag sem hefur staðið
sig mjög vel og staðið af sér stór áföll og
náð að rétta sig við. Stærsta áfallið var
við hrunið þegar eigið fé félagsins hvarf
í kjölfar hrunsins. Þrátt fyrir það hefur
samhentum stjórnum tekist að snúa vörn
í sókn og við horfum fram á bjarta tíma
enn og aftur.
Það er aðdáunarvert hversu vel félagið
hefur náð að gæta hagsmuna félagsmanna
sinna. Félagsstarfið hefur verið sterkt og
félagsskapurinn góður. Það hafa orðið
miklar breytingar á framboði á veiði-
svæðum og ársvæði komið og farið. Það
er óhjákvæmilegt í samkeppnisumhverfi
eins og félagið starfar í.
Enn á ný er félagið í sókn og horfum við
félagsmenn til bjartrar framtíðar þar sem
unnið er sameiginlega að því markmiði
að félagið haldi stöðu sinni sem málsvari
veiðimanna og er áfram félag okkar sem
hafa ástríðu fyrir stangveiði.
Það er ekkert eins skemmtilegt og að vera
við árbakka í góðum félagsskap og á SVFR
miklar þakkir skildar fyrir margar af þeim
ánægjustundum sem ég og mínir hafa
notið við veiðar. Félagsmönnum sendi ég
mínar bestu hamingjuóskir með áfangann
og veit að félagið verður sterkt áfram.
Guðmundur Stefán Maríasson,
formaður 2007-2010.
Félag í sókn