Veiðimaðurinn - 01.06.2019, Qupperneq 64
64 Vænir urriðar í hjarta borgarinnar
F yrst var veitt frá 1. maí til 31. maí,
en í dag er veitt fimm dögum
betur. Þegar þessar veiðar hófust
var jafnhliða farið í rannsóknir á því
hversu stór urriðastofninn væri og ekki
síður hver fæða hans væri. Jafnframt var
horft til þess að kanna hvort urriðastofn-
inn hefði bein áhrif á laxastofninn, enda
lífseig sú saga að urriðinn æti laxaseiðin
grimmt
Það er skemmst frá því að segja að í ljós
kom að stærð stofnins á svæðinu frá útfalli
Elliðavatns og niður að Hrauni er um það
bil 1.000 fiskar og hann er íhaldssamari
en margir halda. Þannig reyndist lítið um
flakk fiska milli Elliðavatns og straum-
vatnsins og yfirgnæfandi meirihluti þeirra
urriða sem veiddist og voru merktir, veidd-
ust aftur á sömu stöðum og áður. Urriðinn
er vænn á þessu svæði og í rannsókn sem
gerð var á magainnihaldi hans kom í ljós
að helmingur fæðunnar var bitmýsfluga og
aðeins fannst fiskur í maga tveggja fiska
- og þá var um hornsíli að ræða. Urriðinn
virðist því ekki leggjast á laxaseiði af krafti
eins og margir óttuðust, þó vissulega geti
einstaka seiði endað í urriðakjafti.
Veitt er á tvær stangir í vorveiðinni og
er selt í hálfs dags veiði. Skipulagt veiði-
svæðið í urriðanum á vorin nær frá Höf-
uðhyl rétt neðan stíflunnar og niður að og
með Hrauni. Veiðinni er skipt í tvö svæði.
Annars vegar Höfuðhylur niður að gömlu
brúnni rétt fyrir neðan og hins vegar þaðan
og niður að göngubrú í Víðidal, ofan við
Heyvað. Svæðið frá göngubrúnni og niður
að Hrauni er svo frjálst.
Séu veiðimenn ekki með báðar stangir
þurfa þeir að koma sér saman um skiptingu
stanganna og er algengasta skiptingin sú
að önnur stöngin sé ofan gömlu brúar en
hin neðan. Svo er skipt á klukkustundar
fresti. Óskrifuð regla er að fulltrúar beggja
veiðileyfa séu mættir áður en veiði hefst,
annars vegar kl. 07.00 að morgni og hins
vegar kl. 15.00. Fyrir hádegi er veitt til
13.00 en síðari vakt veiðir til kl. 21.00. Sé
önnur stöngin ekki mætt þegar veiði hefst,
getur sú stöng sem fyrir er valið á hvoru
svæðinu byrjað er. Einhverjir hafa séróskir
um á hvoru svæðinu betra er að byrja,
en nægilegt pláss er fyrir báðar stangir.
Yfirgnæfandi meirihluti veiðinnar er á
tveimur stöðum, annars vegar í Höfuðhyl
Veiðimenn eru vanari að sjá fyrir sér blómlegan gróð-
ur, iðandi fuglalíf, suð flugna og léttklætt göngufólk
meðan þeir kasta sjálfir fyrir lax í Elliðánum frekar
en urriðaveiði í köldu vorveðri, jafnvel snjó og frosti.
Staðreyndin er hins vegar sú að hálfur annar áratugur
er liðinn frá því að stangveiðar á urriða hófust að vori í
efri hluta Elliðaánna.
Eɷir
Steingrím Sævarr Ólafsson
“Frá brú og nær upp að stíflu er
fjöldi veiðisvæða. Í straumnum
upp að hólmanum, beggja
vegna hólmans og að
sjálfsögðu í Höfuðhylnum
sjálfum.“
Veiðimaðurinn 65