Veiðimaðurinn - 01.06.2019, Side 80
80 Ást við fyrstu sýn – Aron Jóhannsson
sá allt magnið af fiski í Strengjunum, á
Breiðunni og í Dyrfljótinu þá trylltist hann.
Það voru laxar stökkvandi út um allt, þvers
og kruss og ég þurfti nánast að toga hann
upp í bíl þegar veiðinni lauk um kvöldið.
Hann ætlaði bara ekki að vilja fara. Hann
endaði með 16 laxa í túrnum og hafði þar
með hækkað heildarveiðina sína um þriðj-
ung. Við verðum saman aftur í sumar í
Langánni.”
Örkeilan Golli
Aron segist hnýta nánast allar sínar flugur
sjálfur og hefur hann meðal annars hnýtt
flugu sem margir þekkja og nefnist golli.is
eða bara Gollinn. „Ég á nú ekki heiðurinn
af samsetningunni. Ingólfur Þor björnsson,
minn gamli yfirmaður á Iðntæknistofnun,
hnýtti Snælduútgáfu, sem var bastarður af
Skógá blá og Snældu. Búkurinn kóngablár,
kraginn svartur og skottið eins og í Snældu
nema með kóngabláum glysræmum. Það
sem ég gerði var að ég smækkaði þessa
flugu niður í tungsten-örkeilu. Ég prófaði
þessa flugu fyrst í Elliðaánum og síðan
þá höfum við saman ekki litið tilbaka.
„Ætli ég hafi ekki landað
sjötíu eða áttatíu löxum á Gollann.“ Þú finnur mig á
thorbjorn@re idaondin . is - Þorbjörn He lgi Sími: 896-0058
Ætli ég hafi ekki landað sjötíu eða átta-
tíu löxum á Gollann. Það er eitthvað
við þessa flugu en hún gefur samt ekki
við allar aðstæður og er til dæmis ekki
góð í dauðu vatni, það þarf helst að vera
straumur. Þegar ég veiði á Golla þá er ég
ekki að strippa neitt heldur læt ég hana
bara dóla á dauðarekinu. Símastrengur-
inn í Elliðaánum er t.d. klæðskerasniðinn
fyrir Gollann. ”Aron segist almennt vera
hrifinn af litlum tungsten örkeilum og
sem dæmi segist hann veiða mikið á
Frances-útgáfuna af slíkum flugum.
„Annars nota ég allskonar flugur. Avatar,
Iðu, Sunray Shadow í örtúpuformi og Col-
burn Special hafa til dæmis lengi verið í
uppáhaldi og þá má ég til með að benda
þeim sem eru á leiðinni í Laugardalsá
að taka með sér Teal and Black hnýtta
á krók númer 14 eða smærri. Hún getur
gefið feyki góða veiði og er fræg á þessum
slóðum.
Annars breytist fluguvalið eftir því á hvaða
tíma er veitt. Maður er duglegri að prófa
sig áfram á haustin þegar maður veit að
laxinn er búinn að sjá rauðan Frances sigla
yfir sig þúsund sinnum og það er kominn
tími á að sýna honum eitthvað annað.“
Aron segist vera bjartsýnn á gott veiði-
sumar. „Ef maður er ekki bjartsýnn að
eðlisfari þá getur maður gleymt því að vera
í stangaveiði,” segir hann. „Ég hef trú á því
að stórlaxinn muni skila sér vel í sumar.”