Veiðimaðurinn - 01.06.2019, Síða 113
112 Veiðimaðurinn 113 Nafnlaus fluga er ónothæf
eftirminnilegastir voru bræðurnir Ernest
og Shetney Crosfield, sem komu til Íslands
til veiða og iðulega vegna áhuga þeirra á
því að veiða Elliðaárnar. Pétur nefndi að
þeir bræður hefðu verið frábærir veiði-
menn og veiddu eingöngu á flugu. Aðrar
heimildir sem eru nærtækar nefna reyndar
Ernest sem einhvern snjallasta veiðimann
á sinni tíð, og mun Shetney ekki hafa
staðið honum langt að baki í þeirri list að
veiða á flugu. Shetney þessi kenndi Pétri
að kasta flugu en drap sig úr reykingum
langt fyrir aldur fram. Hann mun aldrei
hafa tekið út úr sér vindling nema til að
kveikja í öðrum, nema þá að hann væri
að rýma um fyrir pípunni.
Flugan Crosfield mun hafa orðið til við
Elliðaárnar, en leggfjöður af reykvískum
stokkandarstegg mun hafa fætt þessa
flugu af sér. Hún kallaðist reyndar í upp-
hafi, og lengst af, Gulhöfði (Yellow Head)
eftir gulum haus en Crosfield löngu síðar,
en þá er hausinn hafður svartur.
Þessi saga varð til þess að ég leitaði uppi
Crosfield fluguna með ærinni fyrirhöfn.
Ég fann hana í örfluguútgáfu með gulum
haus. Þetta er víst frábær haustfluga en
hentar líka vel í miklu sólskini. Ég hef
aldrei kastað henni fyrir lax.
Ellefu laxar í bók
Einhverju sinni kom ég niður í veiðihúsið
við Elliðaárnar til að fletta veiðibókinni.
Þetta var um haust og miklar rigningar
búnar að standa í nokkra daga. Eitthvað
höfðu menn sett þetta fyrir sig ólíkt
ónefndum árnefndarmanni sem hafði
náð ellefu löxum á land um morguninn.
Það eitt og sér fannst mér fréttnæmt -
vægast sagt - en kannski ekki síður að
laxarnir ellefu voru allir teknir á sömu
fluguna. Ally‘s Shrimp númer 8.
Það þarf víst ekki að taka það fram að ég
varð friðlaus, enda átti ég vakt í ánum
daginn eftir. Eftir að hafa þrætt flugu-
barina alla fann ég nokkrar slíkar, en þó
ekki áttuna. Ég lét tólfuna duga. Auðvitað
á ég að vita betur en að elta flugur sem
hafa gefið laxa á öðrum degi og af öðrum
veiðimanni, en ég gerði það nú samt.
Flugan gaf mér svo laxa þennan dag. Ég
hef aldrei kastað henni síðan.
En ég fletti því upp að flugan heitir eftir
höfundi sínum, Skotanum Ally Gowans.
Hann hnýtti hana fyrst árið 1979, eftir túr
á togara. Að eigin sögn hafði hann séð
nýétnar rækjur sem komu úr þorskkjafti,
og tók þar eftir því hvernig gráir litir voru
Það er of stór hluti af ástríðu veiðimanns að velja flugur,
til þess að svipta megi hann þeirri ánægju.
ráðandi á rækjunni en appelsínugulir
greinilegir samt. Hann ýkti gulu litina
við að hnýta fluguna sem sat svo í boxinu
hans í langan tíma áður en henni var
kastað. En hún gaf strax vel og á stuttum
tíma varð hún heimsfræg og það þekkja
hana allir. Einhvern veiðifélagann heyrði
ég svo kalla hana írskan frances, en þá var
verið að vitna til þess hversu gjöful hún er
á Bretlandseyjum.
Það má bæta því við
að veiðimenn kusu
Ally‘s Shrimp sem
„flugu aldarinnar“
á einhverjum vett-
vangi. Ekki vegna
þess hversu veiðin
hún hafði reynst,
heldur vegna þess
að Ally Gowans
hafði hnýtt hana
frá upphafi sem
Longtail – fyrstur
manna til að hnýta
f lugur með þeim
hætti, er haldið
fram.
Eins og allir vita
hafa síðar komið
ótal útgáfur af
flugum sem hnýttar
eru í Longtail-út-
gáfum. Önnur frá
hendi Ally Gowan
sem upphaf lega
var hnýtt með þessum hætti er Cascade
– sem ýtti systur sinni til hliðar á ein-
hverjum tímapunkti og er fjölskipaðri í
boxum veiðimanna en Ally í seinni tíð.
Ég á Cascade í nokkrum útgáfum – ég hef
aldrei kastað henni fyrir lax.
Blind eða sjáandi
Eitt virðast allir veiðimenn eiga sam-
merkt, og það er að eiga einhverja eina
flugu sem þeir telja óbrigðula. Auðvitað
má nefna svarta og rauða Frances sem
menn elska að hata. En ég hef hins vegar
heyrt fleiri en einn veiðimann lýsa því yfir
að Undertaker sé sú fluga sem fari oftast
undir í upphafi veiðitúrs, og sé stundum
alltaf höfð undir á
einni stöng. Flugu-
skipti fari fram á
hinni eða hinum
stöngunum sem er
slegið undir.
Undertaker er
fluga sem hentar
vel allt árið, les
ég. Mörgum finnst
það reyndar duga
til að setja hana
undir fyrir það
hvað hún er skratti
falleg. Hún, eins
og Ally‘s Shrimp
reyndar, var hnýtt
í fyrsta skipti árið
1979, en þessi af
náunga sem heitir
Warren Duncan
– þekktum flugu-
hnýtara og veiði-
manni frá Kanada.
Dunc, eins og
hann var alltaf kallaður, segir frá því í
viðtali hvernig Undertaker varð til. Það
sem er óvenjulegt við þessa flugu er að hún
fékk nafnið áður en hún var hnýtt í fyrsta
skipti. Dunc hafði fyrir löngu ákveðið að
hanna og hnýta flugu með þessu nafni
Eitt virðast allir
veiðimenn eiga
sammerkt, og það er
að eiga einhverja eina
flugu sem þeir telja
óbrigðula. Auðvitað má
nefna svarta og rauða
Frances sem menn
elska að hata.