Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 6
6 | | 15. apríl 2021
Heimilið á Látrum í Vest-
mannaeyjum var venjulegt
alþýðuheimili Jóns Lóðs og
Klöru og var skreytt að hætti
tímans, Bing & Grøndahl
keramik á borðum og hillum
í stofunni en í innri stofunni
skreyttu veggi málverk
eftir Engilbert Gíslason frá
Vestmannaeyjum, Eyja-
fjallajökull og brimmynd
frá Ofanleitishamri, vestur
á Eyju. Í hinni stofunni var
eftirprentun af verki eftir
Jóhannes Kjarval, þar sem
listamaðurinn hafði skrifað
torlesinn texta á spássíuna,
„Herra Snyllingur Jón Ísak
Sigurðsson Hafnsögumaður.
Myndin heitir „Strákar í fjöru“
eða „Það er gaman að lifa“
Jóhannes Kjarval.“ Önnur
eftirprentun var á öðrum
vegg, þar sem listamaðurinn
hafði skrifað nafn lista-
verksins, „Fjallamjólk“. Hafði
listamaðurinn gefið hafn-
sögumanninum, sem jafnan
gekk undir nafninu „Jón Lóðs“
þessar árituðu eftirprentanir
eftir að þeir höfðu kynnst í
Vestmannaeyjum á fimmta
áratug síðustu aldar.
Kjarval á flakkinu
Söguna um komu Kjarvals til
Vestmannaeyja, kunningsskap
hans og Kjarvals og þessar
eftirprentanir heyrði ég í æsku
frá föður mínum, Jóni Lóðs.
Kjarval fór sínar eigin leiðir í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur.
Á ferðum sínum um landið tók
hann stundum leigubíl, jafnvel
í langar ferðir. Leigubíllinn var
oft látinn bíða uns listamaðurinn
hafði lokið erindi sínu. Milli
landa ferðaðist hann oft með
Gullfossi og innanlands með
skipum Skipaútgerðar ríkisins.
Skipaútgerð ríkisins, kölluð
Ríkisskip, var stofnuð 29.
desember 1929.
Annaðist útgerðin strandsiglingar
með farþega og vöruflutninga við
Ísland, auk Norðurlandasiglinga
um tíma, allt til lokunar í maí
1992. Skipin voru nefnd eftir
þekktum íslenskum fjöllum s.s.
Herðubreið, Esja og Hekla.
Í skipafréttum ríkisútvarpsins
mátti oft heyra hvar skipin voru
stödd og væntanlega komutíma
til hinna mismunandi hafna við
ströndina. Kjarval fór víða um
landið og málaði og teiknaði
fegurð fjalla og allt það sem
honum hugnaðist. Hann var oft
og lengi á Norðausturlandi, þar
sem hann hafði alist upp frá 5
ára aldri. Þá voru trönurnar oft
reistar nálægt hinum tignarlegu
Dyrfjöllum og fest á striga,
teiknuð eða máluð.
Lóðs um borð
Jón Lóðs var hafnsögumaður í
Vestmannaeyjum í meira en hálfa
öld. Starfið fólst í því að koma
skipum sem komu til Eyja að
bryggju, þ.e. lóðsa að bryggju
við komu og síðan frá bryggju
og út innsiglinguna við brottför.
Innsiglingin inn í höfnina gat
verið varasöm. Ytri höfnin, Víkin
var opin fyrir SA áttinni og gat
innsiglingin verið torfær eða
ófær og hættuleg ókunnugum.
Öllum skipum var því gert að
taka hafnsögumann um borð inn
og út leiðina. Á þessum tíma
var öllum skipum skylt að taka
lóðsinn um borð og fá leiðsögn
Jóhannes Kjarval
týndist í Vestmannaeyjum
Sagan af kynnum Jóns Lóðs og Kjarvals
T E X T I :
RAGNAR JÓNSSON
M Y N D I R :
SIGURGEIR JÓNASSON
Hluti af einu margar bréfa sem Kjarval sendi Jóni Lóðs.
Jón Ísak Sigurðsson Lóðs.