Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 8
8 | | 15. apríl 2021 Mikilvægi hreyfingar Í því ástandi sem skekur sam- félagið hefur gildi og mikilvægi hreyfingar sjaldan verið jafn augljóst. Á tímum þar sem fjölmennar gleðistundir, veislur og samkomur virðast fjarlægur draumur er mikilvægt að hlúa m.a. að andlegri heilsu til að draga úr áhrifum félagslegrar einangrunar á almenna líðan. Styrkir ónæmiskerfið Fjölmargir þættir hafa áhrif á andlega heilsu og er líkamsrækt og almenn hreyfing stór þáttur í geðrækt. Þar sem hefðbundið íþróttastarf liggur niðri, líkams- ræktarstöðvar og sundstaðir eru lokaðir hefur sjaldan verið jafn mikilvægt að fólk sinni hreyfingu í frítímanum. Regluleg hreyfing eflir ekki síður líkamlega heilsu og m.a ónæmiskerfi líkamans sem styrkir varnir hans gegn óvelkomnum boðflennum á borð við veirur, sýkingar og áhrifa streitu ásamt því að vera þekkt meðferðarúrræði við ýmsum sjúkdómum á borð við hjarta- og æðasjúkdóma, kvíða og þunglyndi og vinnur gegn neikvæðum áhrifum öldrunar. Göngur ódýrar og náttúran eykur vellíðun Þrátt fyrir lokanir heilsueflinga- stöðva í sóttvarnarskyni eru möguleikar til hreyfingar nokkuð fjölbreyttir í Vestmannaeyjum. Göngur eru ódýr og einfaldur möguleiki þar sem góðir skór og klæðnaður eftir veðri er það eina sem þarf. Stórtbrotin náttúran sem mætir manni á hverju götuhorni gefur svo heilanum ákveðna gleðisprautu en það að búa í návist við græn svæði hefur verið vísindalega sannað að dragi úr streitu og líkum á hjarta- og æðasjúkdómum. Heilsuefling möguleg víða Búið er að koma upp líkams- ræktartækjum utandyra á lóð Barnaskólans og fyrir utan inngang að Íþróttamiðstöðinni sem ætluð er til heilsueflingar fyrir almenning og er kjörið að grípa í þau styrktartæki þegar veður leyfir en mikilvægt að hafa spritt eða hanska með í för. Fjallgöngur eru góður kostur og góðar gönguleiðir fyrir byrjendur t.d. Upp á Eldfell, Hildur Sólveig Sigurðardóttir sjúkraþjálfari AÐSEND GREIN: Eyjamenn á öllu aldri hafa nýtt fannfergi undanfarinna vikna og dregið fram lítið notaðar snjóþotur og sleða og herjað á brekkur víðs vegar um Eyjuna. Stakkagerðistún og Herjólfsdalur eru vinsælir staðir til slíks bruns. Gestir í Herjólfsdal ráku þó upp stór augu þegar þau sáu mann bruna á skíðum niður af toppi Dalfjalls í dymbilvikunni sem leið. Ævintýramaðurinn sem um ræðir er ekki óvanur því að koma niður í Herjólfsdal eftir óhefðbundnum leiðum svo eftir er tekið, en þar var á ferðinni Bjartur Týr Ólafsson sem hefur meðal annars sýnt bjargsig undan farin ár á Þjóð- hátíð í Herjólfsdal. Við heyrðum í Bjarti og spurðum hann út í þetta uppátæki hans. Stóðst því ekki mátið þegar ég sá skafl í Dalnum „Þetta var nú bara smá fíflagangur í mér. Mig hefur lengi langað að skíða í Vestmannaeyjum en eins og gefur að skilja er vanalega ekki nægur snjór til þess að stunda þá iðju. Nú var það svo að ég tók skíðin með í stutta heimsókn til Eyja á leiðinni austur þar sem ég varði páskunum á fjallaskíðum upp á Vatnajökli. Ég stóðst því ekki mátið þegar ég sá þennan skafl í Herjólfsdal og hreinlega varð að prófa hvort hægt væri að skíða þar.“ Það eru engin venjuleg skíði sem Bjartur brúkar við þessa ævintýraiðju sína heldur sérstök fjallaskíði sem hafa fjölþætt notagildi. „Þau hafa notið gífurlega vinsælda hér á landi undanfarin ár. Þau virka á þann hátt að ég lími sérsniðin skinn undir skíðin sem gerir mér kleift að ganga upp á þeim. Hárin á skinnunum gefa mér grip í snjóinn og ég get gengið upp brekkurnar á svipaðan hátt og ég myndi gera ef ég væri á snjóþrúgum. Skórnir eru líka sérhannaðir fyrir þetta sport og ég get gengið upp með hælinn lausan og aðeins tánna fasta í skíðunum. Þegar upp er komið ríf ég skinnin af skíðunum og smelli hælnum föstum í skíðin rétt eins og á hefðbundnum svigskíðum og renni mér niður.“ Auðveldar leiðina niður Bjartur er fjallaleiðsögumaður og kynntist skíðunum í gegnum þá iðju. „Ég er búinn að stunda þetta undanfarin 5-6 ár og farið mikið á fjöll með þessum hætti bæði hérlendis og í Ölpunum. Fjallaskíða sportið er stór partur af fjallaleiðsögninni sem ég vinn við svo ég leiðist inn í þetta í gegnum það. Hef t.a.m. farið nokkrar ferðir upp á Hvannadalshnjúk á fjallaskíðum. Þessi íþrótt hefur gjörbreytt hugarfari mínu til fjallamennsku því þetta auðveldar niðurferðina töluvert og eykur skemmtanagildið umtalsvert. Er þetta ekkert hættulegt í þessum brekkum inni í Dal með grjót og girðingar? „Jú auðvitað er alltaf einhver hætta sem fylgir en ég reyni þó að fara með gát. Í þessu tilfelli var ekkert rosalega mikið af snjó yfir brekkunni svo á leiðinni upp reyndi ég að finna út hversu mikið var snjó, hvort það sé grjót undir honum og hvort hægt sé að skíða hann yfir höfuð Ég skíðaði svo niður sömu leið og ég gekk upp því mér er annt um skíðin mín og reyni að rispa þau ekki. Brekkan var frekar brött en snjórinn mjög góður til að skíða á, ég fór bara hægt yfir og passaði mig á þeim steinum sem stóðu upp úr. Varðandi girðinguna þá stoppaði ég áður en ég kom að henni, tók af mér skíðin og klifraði yfir. Þaðan náði ég svo að skíða alla leið niður í bíl sem var framar mínum vonum.“ Bjartur sagðist ekki hafa farið víða um í Vestmannaeyjum á skíðunum en það vonaðist til að geta gert meira af því í framtíðinni og sagðist að lokum hlakka til að hitta Eyjamenn á fjöllum. Á fjallaskíðum í Herjólfsdal Bjartur Týr Ólafsson brunar í brekkunum Bjartur brunar niður í Dal. Fjallaskíðin með Blátind í bakgrunni.Bjartur Týr Ólafsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.