Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 15.04.2021, Blaðsíða 11
15. apríl 2021 | | 11 Skyndibitastaðurinn ÉTA opnaði aftur um síðustu mánaðarmót, nú inni á ölstofu The Brothers Brewery. Aðspurður segist Gísli Matthías Auðunsson, mat- reiðslumeistari og eigandi ÉTA, vera hæstánægður með velheppnaða opnun.Opnunin hafi staðist væntingar, og vel það, þrátt fyrir faraldur og sóttvarnarráðstafanir. „Fyrra húsnæði og fleira gerði það að verkum að þetta var ekki að fúnkera eins vel og við vildum, þannig að þegar hugmyndin kom að færa okkur yfir á Brothers þá mátum við það kjörið tækifæri. Maturinn okkar hentar mjög vel með bjórnum og öfugt. Þetta er búið að vera frábært ferli.“ Maturinn er aukaatriði Fleiri sæti fyrir gesti ásamt stemningunni sem ölstofan hefur náð að byggja upp er eitt af því sem Gísli segist kunna að meta umfram fyrri staðsetningu ÉTA. „Þeir töluðu lengi vel um að það vantaði alltaf eitt inn á Brothers sem var matur. Við erum að reyna að hanna þetta svo það sé ekki eins og verið sé að koma á veitingastað heldur frekar eins og maturinn sé aukaatriði, en hann er þó virkilega vel gerður og unninn frá grunni eins og á fínum veitingastað.“ Vonar að veiran verði til friðs „Ég er bjartsýnn, mjög bjartsýnn“ segir Gísli er spurður út í komandi sumar og bætir við að flestir í ferðaþjónustunni í Eyjum séu að búa sig undir starfsamt og gjöfult tímabil. „Maður bara vonar að þetta ástand verði til friðs.“ Hann vill hvetja Eyjamenn að koma á ölstofuna og minnir bæði á pöntunarkerfi ÉTA á netinu sem og kerfið sem þau hafa innleitt innan ölstofunnar sem gerir viðskiptavinum kleift að panta og greiða fyrir matinn snertilaust með aðstoð tækninnar. Matarmiklir þorskvængir á matseðlinum Blaðamanni þótti merkilegt að sjá þorskvængi á matseðlinum. Þeir eru gerðir úr klumbu þorsksins, en Gísli og teymið hans vilja meina að sá vöðvi sé verulega vannýttur og að almennt megi nýta fiskafurðir betur. „Klumban er eins og tveir uggar aftan við hausinn“ segir Gísli og bætir við að það sé hellingur af kjöti í henni. „Til þess að hún sé ekki full af beinum þá þarf að verka hana á vissan máta og reyna að útfæra eins og kjúklingavængi.“ Hráefnin eru hágæða og koma frá Ísfélaginu. Fiskurinn er saltaður til þess að hann grafist, síðan fer hann í súrmjólkurdeig og er loks djúpsteiktur. Honum er velt upp úr sterkri sósu og borinn fram með límónu og kóríander. Kóríanderspretturnar eru ræktaðar hér í Eyjum af Einari og fyrirtæki hans, Aldingróðri, en Gísli segist reyna að versla eins mikið og hægt er frá honum. Áður hefur verið boðið upp á svipaðan rétt á Slippnum. „Viðskiptavinir hafa tekið afskaplega vel í vængina enda henta þeir frábærlega með bjór og eru skemmtileg tilbreyting frá þessum klassíska bjórmat.“ Nemendur 10. bekkjar við Grunn- skóla Vestmannaeyja héldu af stað í skólaferðalag á meginlandið sl. 24. mars. Áformað hafði verið að taka upp skíðin og gista tvær nætur í Bláfjöllum. Stuttu fyrir ferðina var þó ljóst að ekki myndi vera farið á skíði vegna snjóleysis. Tekin var rúta frá Landeyjum í höfuðborgina þar sem byrjað var að fara í FlyOver Iceland þar sem krakkarnir fengu einstaka flugupplifun með hjálp tækninnar. Þegar komið var í trampólíngarðinn Rush í Kópa- vogi bárust þeim þær fréttir að halda þyrfti heim samdægurs vegna nýrra sóttvarnarreglna. Þetta var mikið högg fyrir bekkjarfélagana sem voru gráti nær að sögn Hrafnhildar Óskar, umsjónarkennara, enda höfðu þeir hlakkað mikið til þess að gista saman upp í skála við Bláfjöll og halda kvöldvöku. Þó hafi verið aðdáunarvert hversu fljótt krakkarnir voru að gíra sig upp og einblína sig að því að njóta sem eftir var af ferðinni. Árgangurinn spreytti sig því næst í minigolfi og á skautum. Haldið var heim með síðustu ferð Herjólfs. Éta í ölstofu bræðranna Verkar kjötmikla klumbu Vinnur allt frá grunni Óvenju stutt vorferð 10. bekkjar Gísli Matthías Auðunsson og Einar Sigurður Einarsson stóðu vaktina á laugardaginn þegar blaðamaður leit við. Stelpurnar voru ánægðar með daginn þrátt fyrir allt. Klumban er matarmikill hluti þorsksins sem hingað til hefur verið vannýttur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.