Vesturbæjarblaðið - apr. 2023, Síða 9

Vesturbæjarblaðið - apr. 2023, Síða 9
9VesturbæjarblaðiðAPRÍL 2023 Þann 10. maí nk. verða 83 ár liðin frá því að þrjú bresk herskip 1940 komu til Reykjavíkur og lögðust að br ygg ju. Bresku hermennirnir gengu á land og gáfu út tilkynningu um að þeir væri komnir til að verja landið gegn innrás Þjóðverja og báðu um vinsamlegar móttökur. Fjöldi Reykjavíkurbúa fór niður að höfn til að fylgjast með þessum nýju gestum. Mörgum mun hafa létt þegar ljóst var að um breska hermenn væri að ræða en ekki þýska enda heimsstyrjöld í fullum gangi. Lítið var um mótmæli. Land­ inn virtist nokkuð ánægður með þessa sendingu þótt sumir væru óhressir með hversu nær göngular sumar íslensku stelpnanna voru við hermennina. Í Alþýðublaðinu var varað við þessari hættu og hvatt til þess að lögreglan fengi aukið vald til þess að bregðast við henni. Magnús Erlendsson fyrrum framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi man þessa þessa atburði vel enda er hann á 93. Magnús er Reykvíkingur að ætt og uppruna. Fæddur á Njálsgötu 10 klukkan tíu árdegis þann 10 maí 1930. Hann sagði í viðtali við Nesfréttir fyrir skömmu 10. maí 1944 vera merkisdag fyrir margra hluta sakir. Þar vísaði hann meðal annars til þess að Bretar gengu hér á land og hersettu landið 10 maí 1944. Magnús tengist Bretlandi. Hann sótti þangað nám sem ungur maður á þeim tíma sem fátíðara var en í dag að menn færu til náms erlendis. Hann fékk áhuga á Winston Churchill, stjórnmála manninum sem stýrði Bretlandi á tíma annarrar heimsstyrjaldarinnar sem jafnan hefur verið kölluð hin síðari og er enn þann dag í dag einn þekktasti stjórnmálamaður heimsveldisins breska. Magnús á fjölda bóka um Churchill og tímabil hans í breskum stjórnmálum og átti um tíma í bréfasambandi við yngstu dóttur hans Mary Soames. Hann nefndi börn hans Randolp, Söru, Margot, Dianu og Mary. Kann sögu þeirra sem sum er þyrnum stráð einkum vegna alkóhólisma og of langt yrði að rekja hér. Þeim fer fækkandi sem muna komu breska hersins og hersetuárin sem settu mikinn svip á íslenskt samfélag. Hersveit í Reykjavíkurhöfn. Þessi mynd er líklega tekin í Slippnum í Reykjavíkurhöfn. Bresk herdeild á mótorhjólum til í slaginn við ysta haf sem reyndar aldrei kom sem því til sem betur fer. 83 ár frá því að Bretar komu Magnús Erlendsson heima í stofu við Sævargarða á Seltjarnarnesi. KLAPPARSTÍG 29ÍSLENSK HÖNNUN Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Netverslun: systrasamlagid.is

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.