Feykir - 12.01.2022, Qupperneq 6
Prótís á Blönduós
Vilko ehf. á Blönduósi og Nátt-
úrusmiðjan ehf. keyptu allt
hlutafé í íslenska líftæknifyrir-
tækinu Prótis sem hefur verið
í eigu Kaupfélags Skagfirðinga
frá upphafi. Í tengslum við
viðskiptin verður Kaupfélag
Skagfirðinga fimmtungshlut-
hafi í Vilko ehf. Eitt af mark-
miðum þessara viðskipta er
að auka samstarf milli aðila.
Protis ehf. sérhæfir sig í þróun,
framleiðslu og sölu á lífvirku
fiskprótíni úr villtum íslensk-
um þorski, eða svokölluðu
IceProtein® og afurðum sem
innihalda IceProtein®.
„Það er mikið fagnaðarefni
að fá Protís inn í eignasafn
fyrirtækisins og ekki síður
að fá Kaupfélag Skagfirðinga
inn í eignarhaldið. Með bæði
nýju vörumerki sem og að fá
Kaupfélag Skagfirðinga að rekstri
Vilko fæst auðvitað mikil reynsla
og þekking. Þetta er mikill kraftur
fyrir starfsemina og aukinn byr í
segl fyrir framtíðarsýn og þróun
Prótís og um leið lyftistöng fyrir
atvinnulífið hér á Norðurlandi
vestra,“ sagði Kári Kárason,
framkvæmdastjóri Vilko.
Jarðvegssýni tekin á Hofsósi
Um miðjan janúar unnu starfs-
maður Verkfræðistofunnar
Eflu, ásamt starfsmanni Sveitar-
félagsins Skagafjarðar, að því að
taka sýni úr jarðvegi á svæði
umhverfis bensínstöð N1 á
Hofsósi þar sem bensínleki
uppgötvaðist síðla árs 2019.
Skipt var um tanka og jarðveg
umhverfis þá síðasta sumar.
Steinn Leó Sveinsson, sviðs-
stjóri veitu- og framkvæmda-
sviðs hjá Sveitarfélaginu Skaga-
firði, sagði í samtali við Feyki
að búið hefði verið að ákveða
tíma fyrir rannsóknirnar þegar
þriðja bylgja COVID-19 skall
á og því hafi þurft að seinka
framkvæmdum.
Slökkviliðið og Björgunar-
sveitin Strönd eignast
nýja bíla
Sagt er frá því í 3. tbl. að
slökkvilið Skagastrandar og
Björgunarsveitin Strönd hafi á
haustdögum fest kaup á nýjum
bifreiðum og voru að taka í
notkun. Nýi slökkvibíllinn var
keyptur frá Feuerwehrtechnik
Berlin og er af gerðinni MAN
TGM, árgerð 2020. Bíllinn er
hinn glæsilegasti, með 3000
lítra vatnstanki og 300 lítra
froðutanki ásamt því að vera
búinn öllum helsta búnaði sem
nauðsynlegur er til slökkvistarfa.
Bifreiðin leysti af hólmi gamlan
slökkvibíl af gerðinni Mercedez
Benz, árgerð 1977 svo um mikil-
væga endurnýjun er að ræða.
Óveður, ófærð og snjóflóð
Mikið fannfergi varð eftir
óveðurskafla um miðjan janúar
þar sem á annað borð festi
snjó. Fjallvegir urðu ófærir og
snjóflóð féllu á Tröllaskaganum.
Taldi Karólína í Hvammshlíð
líklegt að a.m.k. fimm ára
gamalt met hafi verið slegið
eftir að Þverárfjallsvegur var
ófær sjö daga í röð en hún býr á
þeim slóðum þar sem vegurinn
er hvað hæstur. Hún segir þó
annars vera frekar snjólétt þar
efra nema þar sem hefur dregið
í skafla í og við þjóðveginn.
Nokkur snjóflóð féllu Norð-
anlands og var þjóðvegi 1 yfir
Öxnadalsheiði m.a. lokað þar
sem flóð runnu yfir hann og veg-
ir á austanverðum Tröllaskaga
voru lokaðir svo Siglfirðingar
komust ekki spönn frá rassi,
ef svo má segja þar sem einnig
var ófært um Almenninga og
óvissustig vegna snjóflóða-
hættu í Ólafsfjarðarmúla.
Þá féll snjóflóð fyrir ofan
bæinn Smiðsgerði í Kolbeinsdal
í Skagafirði, og var haft eftir
ábúandanum, Jóni Árna Frið-
jónssyni, að hann óttaðist að
flóð hefðu fallið ansi víða í
hlíðinni. Taldi hann að í það
minnsta þrjú hross hafi drepist í
flóðinu.
Febrúar
Héraðsvötnin brutu sér
leið yfir varnargarð
Betur fór en á horfðist um
mánaðarmót janúar-febrúar
þegar Héraðsvötnin í Skagafirði
fóru að flæða yfir varnargarð
framan við Stokkhólma og
ógnuðu bæði hrossum og bygg-
ingum. Brugðust ábúendur
fljótt við og fengu verktaka til
að fylla í skarðið svo ekki hlytist
skaði af.
Að sögn Önnu Sigríðar
Sigmundsdóttur og Einars
Ólafssonar, eigenda Stokk-
hólma, varð fyrst vart við flóðið
er bróðir Önnu varð þess áskynja
að Vötnin væru að renna í átt að
hrossunum sem voru skammt
austan íbúðarhússins. Hafði
hann gefið daginn áður og þá
allt eins og átti að vera. Anna
segir hólfið sem hrossin voru í
alltaf hafa verið öruggt þau ár
sem þau Einar hafi átt jörðina.
„Við erum búin að vera hér í 23 ár
og svona lagað ekki gerst í okkar
tíð. Vötnin hafa flætt en það er
varnargarður meðfram túninu
sem hefur haldið að mestu leyti.
Það hefur aðeins komið vatn á
túnin en ekki svona mikið,“ sagði
Anna við Feyki.
Mannbjörg við
Gönguskarðsárvirkjun
Ekki var útlitið gott þegar
beltagrafa fór á hliðina við
miðlunarlón Gönguskarðsár-
virkjunar í fyrstu viku febrúar
en verið var að fjarlægja klaka-
brynju við affall stíflunnar.
Mikil hætta skapaðist þar sem
stýrishús gröfunnar fór á kaf en
með snarræði viðstaddra tókst
að bjarga manninum úr þeim
háska.
Allt tiltækt lið viðbragðsaðila
var kallað út sem kom viðkom-
andi til aðstoðar en mikil mildi
þykir að engin meiriháttar
meiðsli hafi orðið á fólki.
Bóluefni til Norðurlands
Það er alveg að detta í það að ár
sé liðið frá því að bólusetningar
hófust á Norðurlandi en í 6. tbl.
segir frá því að þann 16. febrúar
hafi komið 1000 skammtar af
Pfizer bóluefninu og tæplega
80 skammtar af Moderna til
Norðurlands en fyrrnefnda
bóluefnið hafi verið ætlað
fyrir seinni bólusetningu hjá
þeim sem voru bólusettir 19.-
25. janúar. Þá var búist við að
um 200 skammtar af Pfizer
bóluefni kæmu til viðbótar
vikuna eftir sem ætlað var fyrir
seinni bólusetningu þeirra sem
bólusettir voru 2.-5. febrúar.
Auk þess var áætlað að
800 skammtar af AstraZeneca
bóluefninu bærust síðar sem
nýttir yrðu til að byrja að
bólusetja starfsmenn hjúkrunar-
og dvalarheimila, sambýla og
búsetukjarna og því haldið
áfram viku síðar þegar um 500
skammtar til viðbótar bærust.
Þá var einnig komin áætlun
fyrir fyrstu viku mars þar sem
von var á 720 skammtum af
Pfeizer bóluefninu sem yrði nýtt
til að halda áfram að bólusetja
íbúa 80 ára og eldri.
Janúar
Fyrsta barn ársins frá
Hvammstanga
Í fyrsta tölublaði síðasta árs má
sjá að fyrsta barn ársins á Íslandi
hafi verið Hvammstangabúi
sem leit heiminn fyrsta sinn á
fæðingardeild Landspítalans
þegar 24 mínútur voru liðnar
af árinu. Var það stúlka sem
vó 3.770 grömm og var 52
sentimetra löng. Stúlkan var
ein þriggja barna sem fæddust
á Landsspítalanum fyrstu nótt
ársins en auk þess fæddist eitt
barn á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Blönduósflugvöllur
mikilvægur
Framkvæmdum við Blönduós-
flugvöll lauk skömmu áður en
fyrsta blað ársins kom út en
ein af tillögum átakshóps ríkis-
stjórnarinnar um úrbætur í inn-
viðum snéri að viðhaldi vallar-
ins. Miðað var við að tryggja að
völlurinn yrði nothæfur fyrir
sjúkraflug en í aðgerðalýsingu
úrbóta fyrir völlinn er það
tiltekið að vegna staðsetningar
hans við þjóðveg eitt sé hann
mikilvægur þegar slys verða á
fólki og mínútur skipta máli.
Vanda sæmd
fálkaorðunni
Skagfirðingurinn Vanda Sigur-
geirsdóttir var sæmd heiðurs-
merki hinnar íslensku fálka-
orðu við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum á fyrsta degi ársins.
Vanda Sigurgeirsdóttir var þá
titluð sem lektor og fyrrverandi
knattspyrnumaður en eins og
allir ættu að vita steig hún inn
í stórt hlutverk í haust er hún
bauð sig fram sem formaður KSÍ
fram að ársþingi sambandsins
sem fram fer 26. febrúar nk.
Vanda var sæmd fálkaorðunni
fyrir framlag til knattspyrnu
kvenna og baráttu gegn einelti.
SAMANTEKT
Páll Friðriksson
Þegar litið er í baksýnisspegilinn fyrir liðið ár sér maður að Covid þreyta var farin að gera
vart við sig fljótlega á nýju ári, og jafnvel fyrr, en einnig ríkti einlæg bjartsýni samfara
auknum bólusetningum. Það er reyndar magnað hvað landinn er þó ekki verri en hann er
í dag eftir öll bakslögin og vonbrigðin sem dundu á en mikil bjartsýni ríkti um að Covid-
faraldrinum lyki um sumarið. Í blaði vikunnar verður stiklað á stóru á þeim fréttum sem
birtust fjóra fyrstu mánuði síðasta árs og í þeim tveimur næstu hina tvo þriðjungana.
Fréttaannáll 2021 | Fyrsti hluti
Vendipunktar og
bólusetningabjartsýni
Vanda Sigurgeirsdóttir ásamt forsetahjónunum, Guðna Th. Jóhannessyni og Elízu
Reid. MYND: GUNNAR G. VIGFÚSSON
Sigurjón Rúnar Rafnsson og Jóhannes Torfason við undirritun kaupanna á Prótís
AÐSEND MYND
6 02/2022