Feykir


Feykir - 12.01.2022, Side 10

Feykir - 12.01.2022, Side 10
Krabbameinsfélag Skagafjarðar opnaði formlega húsnæði sitt á neðri hæð Suðurgötu 3 á Sauðárkróki, Fram- sóknarhúsinu, um miðjan desember sl. Þrátt fyrir Covid-takmarkanir var ágætis mæting gesta sem nutu samverunnar í hinu nýja húsnæði og komu félagar Lionsklúbbsins Höfða á Hofsósi með rausnarlegan styrk til félagsins. „Fyrir rúmu ári síðan opnaði þjónustumiðstöðin Dugur, fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og að- standendur þess. Hingað getur fólk komið og hitt aðra sem deila svipaðri reynslu. Það getur eflt fólk til þátttöku í daglegu lífi og veitir stuðning og afþreyingu. Starfið fór ágætlega af stað síðastliðið haust en vegna COVID og fjöldatakmark- ana var starfsemin skert, t.d. höfum við frestað formlegri opnun ítrekað. Einnig var það auglýst lítið vegna óvissu um ástandið. En við horfum björtum augum á framtíðina og stefnum á fjölbreytta starfssemi eftir áramót,“ segir María Einarsdóttir, iðjuþjálfi og starfsmaður Dugs en hún útskrifaðist sem iðjuþjálfi árið 2012 frá Háskólanum á Akureyri og hefur sinnt ýmsum störfum frá útskrift. „Það sem heillaði mig við iðjuþjálfun er m.a. að vinna með fólki, koma því aftur út í lífið og gefa af mér, hjálpa og finna leiðir sem henta fyrir hvern og einn. Hug- myndafræði iðjuþjálfa bygg- ir m.a. á því að það að hafa eitthvað fyrir stafni sé jafn mikilvægt og að draga andann. Þegar fólk verður fyrir áfalli, t.d. að greinast með krabbamein, er mikil- vægt fyrir það að huga að sjálfu sér. Setja sig í fyrsta sæti og ná upp krafti til að takast aftur á við lífið. Einnig er mikilvægt að huga að félagslega þættinum svo fólk einangrist ekki. Fara út á meðal fólks og finna fyrir stuðningi frá öðrum og efla þannig andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt. Þetta er m.a. markmið okkar með stofnun Þjónustumiðstöðv- arinnar Dugs.“ María segir Dug einnig stað fyrir aðstandendur þeirra sem greinst hafa með krabbamein en oft er það ekki sá sem greinist sjálfur sem líður verst andlega og því getur það verið gott að hitta einhvern og koma orðum á tilfinningar sínar og fá stuðning og fræðslu. „Misjafnt er hvort og hvenær aðstandendur leita sér stuðnings í veikinda- ferlinu. Stundum er það ekki fyrr en langt er liðið frá meðferð og veikindum eða ef veikindi taka sig upp aftur. Hvenær sem er hvetjum við fólk til að hafa samband við okkur eða aðra sem veita stuðning af þessu tagi,“ segir María. Fjölbreytt dagskrá í vetur Dagskráin í vetur verður fjölbreytt og segir María að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Boðið er upp á hópastarf, fræðslu og einstaklingsviðtöl og fræðsla verður einu sinni í viku, í hádeginu á miðviku- dögum. „Þá munum við koma saman og fá okkur léttan hádegisverð og hlusta á fræðsluefni. Á undan fræðslunni verður farið í hressandi göngutúr. Hóp- arnir eru nokkrir, prjóna- og handavinnuklúbbur á mánudögum, spilahópur á fimmtudögum og karlakaffi á föstudögum. Vil endilega nýta tækifærið og hvetja karlana okkar til að kíkja í kaffi á föstudagsmorgnum. Einstaklingsviðtöl eru fyrir þá sem vilja og eru ætluð sem stuðningur og ráðgjöf. Einnig munum við vera með tímabundna hópa í vetur s.s. hópa fyrir aðstand- endur o.fl.“ María segir að um prufu- verkefni til eins árs sé að ræða en vonar að það sé komið til að vera. „Viljum við því hvetja fólk til að mæta og nýta sér þessa þjónustu. Það er snúið að fara af stað með svona verkefni í miðjum heims- faraldri, en við gerum okkar besta. Húsnæðið er nógu stórt svo fólk getur dreift úr sér og haldið fjarlægð. Við viljum endilega heyra í þeim sem ekki treysta sér til að mæta. Síminn hjá okkur er 453-6030 og e-mailið er skagafjordur@krabb.is. Vil einnig taka það fram að fólki er velkomið að taka með sér aðstandenda, vin eða ætt- ingja í hópastarfið. Svo langar mig að minna á að við notum mikið Facebook-síðu Krabbameinsfélags Skaga- fjarðar. Allar upplýsingar fara þar inn.“ Eins og fram kemur í inngangi mættu nokkrir meðlimir Lionsklúbbsins Höfða á Hofsósi á opnun- arhófið með rausnarlegan styrk til félagsins. María segir styrkinn vera upp á 500 þúsund krónur til að nota í starfsemi krabbameinsfé- lagsins. Dalla Þórðardóttir, formaður, tók við skjalinu frá formanni Höfða, Krist- jáni Jónssyni. /PF María Einarsdóttir segir frá þjónustumiðstöðinni Dug á Sauðárkróki Krabbameinsfélags Skagafjarðar í eigið húsnæði Lionsmennirnir í Höfða á Hofsósi, Snæbjörn Guðbjartsson, Haraldur Jóhannsson og Kristján Jónsson, afhenda Döllu Þórðardóttur, formanni Krabbameinsfélagi Skagafjarðar, veglega peningagjöf við formlega opnun Dugs þjónustumiðstöð á Sauðárkróki. MYNDIR AÐSENDAR María Einarsdóttir, iðjuþjálfi og starfsmaður Dugs, og Dalla formaður, kampakátar með góðan styrk til félagsins. Gestir voru ánægðir með nýtt húsnæði og möguleikana sem það býður upp á. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir á Ránarbrautinni á Skagaströnd gerir nú upp árið. Hún er skólastjóri, organisti, tónlistarkona, starfsmaður útfararþjónustu o.s.frv. Hún er bogmaður og lýsir árinu sem skrítnu, skemmtilegu og erfiðu. Hver er maður ársins? Rúna Sif Rafnsdóttir sem gaf Eld Elí, syni vinkonu sinnar, hluta úr lifur sinni. Hver var uppgötvun ársins? Rauður Collab og rjúpnahjörtu. Hið fyrra er hættulega ávanabind- andi og hið síðara er eitthvað sem ég á eftir að stelast í úr pottinum á aðfangadag öll jól hér eftir. Hvert var lag ársins? Ég er stöðugt að uppgötva ný lög þar sem ég fæst við tónlistarflutning og kennslu nánast alla daga, hlusta sjaldnast á út- varp nema kannski Rás 1 svo lög ársins eru ansi mörg, bæði af klassískum toga og veraldleg lög. Til að nefna eitt gæti ég nefnt Ómissandi fólk eftir snillingana KK og Magga Eiríks. Hvað var broslegast á árinu? Litli dóttursonur minn sem kom okkur öllum að óvörum og faldi komu sínu til 20. viku án þess að nokkurn grunaði neitt. Hvers heldurðu að þú eigir eftir að sakna frá árinu 2021 – eða ekki? Ég á ekki eftir að sakna byggingaframkvæmda þó það hafi verið sjúklega skemmtilegt og krefjandi að byggja sér hús, en ég á eftir að sakna veðurfarsins sem ég stórefast um að verði svona gott aftur. Varp ársins? Ég er ekkert dugleg í vörpum en þessa dagana er ég að hlusta á hlaðvarpið Leitin að peningunum. Ég hlýt að verða mjög efnuð árið 2022 :) Hverju viltu skella á brennuna og hvers vegna? Neikvæðni. Ég er með ofnæmi fyrir fólki sem hefur ekkert betra að gera en hafa horn í síðu náungans. Lífið getur verið svo fallegt og skemmtilegt ef fólk hefur bara áhuga á að skapa sér þannig líf. Hver var helsta lexía ársins? Lífið er hverfult og morgundagurinn allt annað en sjálfsagður! Lexía sem maður þarf því miður stöðugt að vera minntur á, aftur og aftur og reyna að tileinka sér í lífsmynstrinu dags daglega. /ÓAB Árið 2021 Lífið er hverfult og morgundagurinn allt annað en sjálfsagður! Hugrún Sif og Jón Ólafur. MYND AÐSEND AÐSENT | Rúnar Kristjánsson Á Réttarhóli Þar bjuggu þau Björn og Helga og börðust við neyðarkjör. Gáfu í það orku alla og uppskáru reynslusvör. Lifðu í heimi heiða, harðsótt sú glíma var. Leituðu allra leiða til lífsbjargarmála þar. Barátta Björns og Helgu bauð upp á lítið skjól. Lifir samt minning manndóms mögnuð við Réttarhól. Hretviðrin hörðu bitu, harkan ein boðin var. Þorsteinn og Lárus litu lífið í fyrstu þar. 10 02/2022

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.