Feykir - 16.02.2022, Page 6
Jón Gíslason, formaður samstarfsnefndar í Austur-Húnavatnssýslu
Jón Gíslason, oddviti
Húnavatnshrepps og
formaður samstarfsnefndar
milli hreppsins og
Blönduósbæjar telur líklegt að
af sameiningu verði og að nýtt
sveitarfélag muni hafa meiri
burði til framkvæmda á næstu
árum og efla þjónustu við
íbúana. Hann stýrði einnig
fyrri samstarfsnefnd, þegar
kosið var milli fjögurra
sveitarfélaga í héraðinu sl.
sumar.
Jón segir sameiningar-
viðræður Húnavatnshrepps og
Blönduósbæjar efnislega mjög
líkar þeim fyrri þar sem notuð
var sama grunnvinna og unnið
út frá henni. „Einnig voru
sömu ráðgjafar þ.e. RR ráðgjöf
þannig að þetta var svona eins
og taka tvö af uppfærðri
bíómynd. Að mínu mati var
þetta ef til vill dálítið
heimilislegra allt saman,“ segir
Jón.
Hver eru að þínu mati
helstu atriði sem fólk eigi eftir
að fagna ef til sameiningar
kemur? „Ég held að það muni
vera, ef af sameiningu verður,
að tekist hafi að sameina í eina
heild fólkið sem býr á þessu
svæði í þéttbýli og dreifbýli sem
getur í raun ekki án hvers
annars verið og mynda þar með
sterkara afl til að vinna að
hagsmunum svæðisins út á
við.“
Jón segir nefndarmenn ekki
hafa þurft að takast hart á um
málefnin því samstarfsnefndin
hafi frá upphafi verið mjög
samstíga í því að vinna sig að
niðurstöðu í þeim málaflokkum
sem þessi vinna snérist um.
„Það sem mest skoðanaskipti
urðu um, og lengstan tíma tók
að samræma sjónarmið um,
var hvernig standa ætti að
útfærslu í starfsmannamálum
við sameiningu sveitar-
félaganna.“
Hann segir að helstu málin,
sem allir voru sammála um,
hafi snúist um það að nýtt
sveitarfélag hefði burði til að
skapa því samfélagi nýja
möguleika til eflingar og
framþróunar. Einnig eru
brýnustu hagsmunamálin, sem
þurfi að vinna að, stórátak í
samgöngumálum og
atvinnumálum svæðisins.
„Þeir sem helst setja fyrir sig
sameiningu hafa eflaust
áhyggjur af mismunandi
fjárhagsstöðu sveitarfélaganna
og niðurlagningu skóla á
Húnavöllum ásamt einhvers
konar hrepparíg sem fyrirfinnst
hér eins og alls staðar milli
sveitarfélaga á Íslandi,“ segir
Jón aðspurður um hvaða
málefni hann telji að kjósendur
setji fyrir sig í kosningunum.
En hvaða málefni ætli það séu
sem íbúar eigi eftir að sakna ef
til sameiningar kemur?
„Ég reikna með að í
Húnavatnshreppi eigi íbúar
eftir að sakna þess að vera
hreint dreifbýlissveitarfélag
sem hefur ýmsa kosti og er að
mörgu leyti einfaldara hvað
varðar stjórnskipulag og að
sama skapi að vera að stærstum
hluta þéttbýlissveitarfélag hvað
Blönduósbæ varðar.“ Jón er þó
þeirrar skoðunar að fleiri muni
samþykkja sameiningu svo
framarlega að kosningaþátttaka
verði góð.
„Sameining mun gera það
að verkum að nýtt sveitarfélag
hefur meiri burði til
framkvæmda á næstu árum og
öflugri þjónustu við íbúana en
sveitarfélögin sitt í hvoru lagi.“
Vel sóttur íbúafundur
Rafrænn íbúafundur var
haldinn þann 3. febrúar og var
vel sóttur en um 95 manns sátu
hann þegar mest var. Fundir
höfðu áður verið auglýstir sem
staðfundir en samstarfsnefndin
ákvað að breyta fyrir-
komulaginu með tilliti til
sóttvarna og vegna slæmrar
veðurspár. Á heimasíðu
samstarfsnefndarinnar segir að
það hafi ekki komið að sök
enda flestir orðnir vanir
fjarfundarforminu eftir tveggja
ára tímabil með samkomu-
takmörkunum.
Gætum náð árangri á
ýmsum sviðum
Á fundinum voru forsendur
sameiningartillögu og fram-
tíðarsýn samstarfsnefndar fyrir
sameinað sveitarfélag kynntar
og í lok fundarins var íbúum
gefinn kostur á að spyrja
fulltrúa í samstarfsnefnd og
ráðgjafa spurninga. Spurn-
ingarnar og svör við þeim er
hægt að nálgast á hunvetningur.
is undir Hagnýtar upplýsingar >
Spurt og svarað. Þá er hægt að
horfa á upptöku af kynningunni
á Facebook-síðu Húnvetnings.
„ Ky n n i n g a r f u n d i r n i r
enduðu í hreinum fjarfundum
vegna samverkandi þátta af
Covid og spá um vont veður.
Þátttaka var allgóð að mínu
mati sem ég tel að helgist af því
að fólk er orðið nokkuð vant
slíku fundarformi. Þar sem
kynningarferillinn hefur verið
óhefðbundin og lítil umræða
farið fram um sameiningar-
málin vegna þess hve fólk hittist
lítið er ákveðin hætta á að allar
hliðar málsins hafi ekki komist
nógu vel til skila. Vil ég nefna
örfá lykilatriði sem ég tel
mikilvægt að fólk hafi á hreinu:
Það er verið að sameina
stjórnsýslu og skólastofnanir en
ekki landssvæði og við
sameininguna verður til nýtt
sveitarfélag og nýjar
skólastofnanir. Lykilstörf við
skóla og sveitarfélag verða
auglýst, aðrir fastráðnir
starfsmenn við skóla og
sveitarfélag halda störfum
sínum við sameininguna. Við
aðlögun skólastarfs í einn skóla,
með öll börn úr Húna-
vatnshreppi og Blönduósbæ,
telur samstarfsnefndin mjög
mikilvægt að skólarnir starfi
áfram á báðum stöðum fyrst
um sinn. Mikil áhersla er lögð á
að finna Húnavallasvæðinu
nýtt hlutverk og hefur útfærsla
Sameining stjórnsýslu og skólastofnana, ekki landssvæða
Jón Gíslason, formaður samstarfsnefndar í Austur-Húnavatnssýslu. MYND AÐSEND.
Kjörstaðir sameiningarkosninga
Laugardaginn 19. febrúar næstkomandi fara
fram kosningar um sameiningu
Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps.
Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í
viðkomandi sveitarfélagi. Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum
sveitarfélaganna. Einstaklingar geta athugað hvort þeir séu á
kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Kjörfundir fara fram í hvoru sveitarfélagi og verða þeir opnir sem hér segir:
· Kjörfundur í Blönduósbæ fer fram í norðurenda
Íþróttamiðstöðvar frá kl. 10 til 20.
· Kjörfundur í Húnavatnshreppi fer fram í Húnavallaskóla
frá kl. 11 til 20. Gengið er um aðalinngang.
Aðsetur kjörstjórnar verður á viðkomandi kjörstað á kjördag.
Talning atkvæða fer fram á sama stað og hefst eftir að öllum kjörstöðum hefur verið lokað.
Verða atkvæði talin og úrslit birt í hvoru sveitarfélagi og á hunvetningur.is
Um undirbúning, framkvæmd og frágang sameiningarkosninga fer eftir lögum
um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
Kjörstjórnir Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps
CMYK%
Cyan = 100 / Magenta = 75 / Yellow = 2 / Black = 18
Cyan = 45 / Magenta = 14 / Yellow = 0 / Black = 0
GRÁSKALI
Black = 40%
Black = 100%
PANTONE
PANTONE 278 C
PANTONE 287 C
Logo / merki
BJÖRGVIN SIGURÐSSON | GRAPHIC DESIGNER FÍT
ÁSVEGI 17 | 104 REYKJAVÍK | ICELAND
T: +354 588 3436 | M: +354 663 0677 | E: 2b@internet.is
Bæjarskrifstofa Blönduósbæjar
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduós
Sími: 455 4700
blonduos.is
á Umhverfisakademíu í formi
lýðskóla, samhliða áfram-
haldandi hótelrekstri, hlotið
góðan hljómgrunn hjá
stjórnvöldum og nú þegar
hefur verið samþykkt 40
milljóna fjárveiting frá
Jöfnunarsjóði til að koma
verkefninu af stað verði af
sameiningu. Fjallskilamál verða
með óbreyttu sniði þar sem
áfram verða starfandi fjórar
fjallskiladeildir og gert ráð fyrir
að nýtt sveitarfélag kosti
viðhald afréttargirðinga,
gangnamannaskála og skila-
rétta. Samstarfsnefndin hefur
lagt töluvert mikla vinnu í að
afla fylgis stjórnvalda við
brýnum úrbótum í styrkingu
innviða svæðisins og fjölgun
atvinnutækifæra á svæðinu,
meðal annars með aukinni
nýtingu orku sem þegar er
framleidd á okkar svæði. Þó að
ekkert sé orðið fast í hendi í
þeim málum er margt sem
bendir til þess að við gætum
náð árangri á ýmsum sviðum
og á okkur sé frekar hlustað ef
af sameiningu verður,“ segir
Jón sem að lokum hvetur alla
íbúa sveitarfélaganna til að nýta
kosningarétt sinn þann 19.
febrúar næstkomandi. /PF
6 07/2022