Feykir


Feykir - 04.05.2022, Page 4

Feykir - 04.05.2022, Page 4
Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu Stólastúlkur áfram í 2. umferð Lengjudeildarlið Tindastóls og HK mættust á gervigrasinu á Króknum á laugardaginn í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna. Lið Tindastóls fékk fljúgandi start og leiddi 3-0 í hálfleik þó það geti nú varla talist hafa verið samkvæmt gangi leiksins. Lið HK kvittaði fyrir sig með tveimur mörkum snemma í síðari hálfleik og spenna hljóp í leikinn. Stólastúlkur náðu að stoppa í götin að mestu í vörninni og unnu leikinn 3-2 og tryggðu sér sæti í 2. umferð. Þar mæta stelpurnar 2. deildar liði ÍR og verður leikið á Króknum 15. maí. Lið Tindastóls náði foryst- unni á 8. mínútu þegar Murr skallaði aukaspyrnu af vinstri kanti í markið. Þá kom sterkur kafli hjá liði HK þar sem Amber greip ítrekað inn í og bjargaði málum. Annað mark Tindastóls kom á 41. mínútu eftir að Hugrún Páls náði að setja pressu á Audrey Baldwin í marki HK sem náði að hreinsa en beint á Hönnuh Cade sem lyfti boltanum yfir vörn og markvörð gestanna og í markið. Á fyrstu mínútu uppbótartíma fékk Hugrún síðan það sem hún átti skilið eftir frammistöðu sína. Murr sendi boltann inn fyrir framliggjandi vörn HK og Hugrún skaust inn fyrir og þrátt fyrir að hún væri augljóslega meidd þá náðu varnarmenn HK ekki í skottið á henni og hún náði að renna boltanum í markið þegar færið virtist orðið nokkuð þröngt. Vel gert. Staðan 3-0 í hálfleik og lið gestanna virtist vængbrotið. Lið Tindastóls kom ekki nógu einbeitt til leiks í síðari hálfleik og gott lið HK skoraði fljótlega tvö mörk. Heimastúlkur náðu sem fyrr segir að laga leik sinn varnarlega en liðið skapaði sér engin færi í síðari hálfleik. Amber þurfti að grípa inn í nokkrum sinnum á lokakafl- anum en gestirnir fengu engin dauðafæri og því héldu Stóla- stúlkur út. /ÓAB Fréttir af aðalfundi KVH Stefnan hefur verið birt á heimasíðu félagsins, kvh.is Kaupfélag Vestur-Húnvetn- inga svf. (KVH) er meðal elstu fyrirtækja á Íslandi, stofnað þann 20. mars 1909 á Hvammstanga. Félagssvæði þess er Húnaþing vestra. Félagið hét upphaflega Verzl- unarfélag Vestur-Húnavatns- sýslu en nafni þess var breytt í Kaupfélag Vestur-Húnavatns- sýslu við sameiningu Verzlun- arfélagsins og Sláturfélags Vestur-Húnavatnssýslu. Til- gangur félagsins er að; annast á sem hagfelldastan hátt við- skipti og þjónustu fyrir félags- menn, efla atvinnulíf í hérað- inu, viðhalda og útbreiða þekkingu samvinnuhugsjónar- innar við að leysa félagsleg viðfangsefni og að styrkja framtíð félagsins með því að treysta fjárhag þess. KVH rekur kjörbúð, bygg- ingarvöruverslun og búvöru- verslun. Auk þess hýsir KVH verslun Vínbúðarinnar og hefur með höndum afgreiðslu fyrir Vörumiðlun ehf. KVH á einnig og rekur fasteignir sem hýsa m.a. starfsemi Selaseturs Íslands, Fæðingarorlofssjóðs og veitingastaðarins Sjávarborgar. KVH á einnig hlut í nokkrum fyrirtækjum m.a. 50% hlut í Sláturhúsi KVH ehf. (SKVH). Hjá félaginu störfuðu á árinu 2021 35 starfsmenn í 21 stöðugildi og var hlutfall kynja 60% konur og 40% karlar. Kaupfélagsstjóri er Björn Líndal Traustason. /Fréttatilkynning Meðal elstu fyrirtækja á Íslandi Aðalfundur Kaupfélags Vestur – Húnvetninga svf. var haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga miðvikudaginn 20. apríl síðastliðinn. Velta félagsins á árinu 2021 var um 990 milljónir króna og rekstrarhagnaður eftir skatta var 40,5 milljónir króna. Heildareignir félagsins voru um áramót 827,3 milljónir króna og eigið fé félagsins var um 608,3 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall er 73,5 %. Ársreikning félagsins má nálgast á heimasíðu félagsins, kvh.is. Á fundnum voru kjörnir tveir nýir stjórnarmenn, þau Guðný Helga Björnsdóttir og Ólafur Benediktsson, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem kona er kjörin í stjórn þessa 113 ára gamla félags. Fyrir í stjórn voru Gunnar Þórarinsson formaður, Ársæll Daníelsson og Þorsteinn H. Sigurjónsson. Varamenn í stjórn voru kjörin þau Elín Anna Skúladóttir, Þórarinn Óli Rafnsson og Örn Óli Andrésson. Á aðalfundinum var sam- þykkt stefna og viðbragðs- áætlun Kaupfélagsins gegn einelti, kynferðislegri og kyn- bundinni áreitni og ofbeldi. MYND KAUPFÉLAG VESTUR-HÚNVETNINGA ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Úrslitakeppni Lengjubikarsins Lið Ýmis hafði betur Lið Tindastóls og Ýmis mættust á gervigrasinu í úrslitakeppni C-deildar Lengjubikarsins á sunnu- dag. Þrátt fyrir slatta af tækifærum tókst liðunum ekki að koma boltanum í mörkin tvö í venjulegum leiktíma og þurfti þá að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar höfðu gestirnir úr Kópa- vogi betur og sigruðu 2-4. Í síðustu viku höfðu Stólarnir betur gegn liði Hamars, 2-1, en mættu nú liði Ýmis sem spilar í 4. deildinni í sumar líkt og lið Tindastóls en Ýmir er eins konar B-lið HK. Feykir spurði Donna þjálfara um hans skoðun á leiknum. „Þetta var ansi jafn leikur gegn sterku liði Ýmis. Bæði lið fengu fín færi þó þeirra færi hafi jafnvel verið ívið betri ef eitthvað. Við getum þakkað Antoni mark- manni fyrir að þetta fór í vítakeppni því hann átti margar frábærar vörslur i leiknum. Það er alltaf leiðin- legt að tapa og þá sérstaklega í vítakeppni. Okkar menn lögðu allt í þetta en það vantaði aðeins upp á sem mun smella á réttum tíma.“ Knattspyrnudeild hefur samið við Jordán Basilo Meca um að leika með karla- liðinu í 4. deildinni í sumar. Basi er 24 ára sóknarmaður frá Spáni og er von á honum á Krókinn nú í vikunni og er vonast til að hann finni mark- möskvana í sumar. /ÓAB Fyrsta barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra Hátíðin stendur fram að sunnudeginum 15. maí og eru yfir hundrað viðburðir á dag- skrá um allan landshlutann. Hægt er að fylgjast með dagskránni á heimasíðu Skúna- skralls, www.skunaskrall.is, og Facebooksíðu hátíðarinnar. „Barnamenningarhátíð Norð- urlands vestra er spennandi verkefni sem vonandi fær að stækka og dafna í framtíðinni og verða fastur liður í menn- ingarstarfi barna á svæðinu“ segir í tilkynningu SSNV. /PF Mikið um dýrðir á Skúnaskralli Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall sem haldin er í fyrsta sinn víðs vegar á Norðurlandi vestra stendur nú yfir en ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir prýða dagskrá hátíðarinnar. Meginreglan er að aðgangur sé ókeypis og veiti því öllum börnum og ungmennum á Norðurlandi vestra tækifæri til að upplifa og vinna að fjöl- breytileika listsköpunar. Skúnaskrall hófst mánu- daginn 25. apríl á opnu húsi í Höfðaskóla og síðan hefur hver viðburðurinn rekið annan á svæðinu. Verkefnið er liður í sóknar- áætlun Norðurlands vestra og er stjórn hátíðarinnar ráðin af samtökum sveitarfélaganna sem einnig veita fjármagni í verkefnið og halda utan um bókhald en að öðru leyti er verkefnið fjármagnað af styrk- veitingum. STURLAÐ FJÖR í 1238 á Sauðárkróki alla daga fram á sunnudag. MYND AF SKÚNASKRALL.IS Sólveig Birta og Gabriella Coleman í baráttunni í leiknum. MYND: ÓAB 4 17/2022

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.