Feykir - 04.05.2022, Page 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Úrslitakeppni Subway-deildarinnar |
Njarðvík - Tindastóll 1-3
Tindastóll
í úrslit!
Tindastóll og Njarðvík mættust í
fjórða leiknum í rimmu liðanna í
undanúrslitum Subway-
deildarinnar í Síkinu í kvöld.
Talið er að um 1200 manns hafi
troðið sér í Síkið og fengu flestir
eitthvað fyrir sinn snúð og
rúmlega það. Leikurinn var
æsispennandi en gestirnir
leiddu 45-47 í hálfleik. Þriðji
leikhlutinn reyndist Stólunum
dýrmætur að þessu sinni og
liðið náði undirtökunum í
leiknum en gestirnir minnkuðu
muninn í tvö stig, 77-75, þegar
fjórar mínútur voru eftir.
Stólarnir héldu vel á spöðunum
síðustu mínúturnar og sigruðu
að lokum, 89-83, og tryggðu sér
þannig réttinn til að spila við
Valsmenn í úrslitaeinvíginu.
Þvílíka snilldin!.
Stemningin í Síkinu var
engu lík og nokkuð augljóst að
lengi getur gott besnað. Staðan
í einvígi liðanna var 2-1, Stól-
um í hag eftir að Njarðvíkingar
höfðu unnið sigur, 93-75, í
sveiflukenndum leik í
Ljónagryfjunni sl. miðvikudag.
Margir höfðu þá tilfinningu að
Stólarnir væru í slæmum
málum ef þeir töpuðu fjórða
leiknum í Síkinu og þyrftu að
sækja Njarðvíkinga heim í
Ljónagryfjuna í þriðja skiptið.
Það stefndi því allt í nístandi
naglbít og ljóst að stuðningur
áhorfenda gæti skipt sköpum.
Það er óhætt að fullyrða að
Grettismenn, og margir fleiri
illa smitaðir af Síkisbakteríunni,
hafi hoppað, klappað, sungið
og stappað liðið sitt áfram í þrjá
fjóra tíma. Og uppskáru eftir
því.
Gestirnir byrjuðu vel
Liðin voru svolítið yfirspennt í
byrjun leiks og mikið um
tapaða bolta en það voru
gestirnir sem tóku forystuna,
komust í 10-16 eftir um fimm
mínútna leik en Siggi Þorsteins
kom heltjúnnaður til leiks en
það voru hann, Bess og Arnar
sem voru iðnir við stigaskor
Stólanna framan af leik. Súper
Mario kom Njarðvíkingum níu
stigum yfir, 24-33, en Bess
skellti í þrist og lagaði stöðuna
fyrir lok fyrsta leikhluta. Staðan
27-33. Það hvorki gekk né rak
hjá báðum liðum að koma
boltanum í körfuna fyrstu
mínútur annars leikhluta, liðin
gerðu sitt hvora körfuna fyrstu
fimm mínúturnar en síðan
skellti Zoran í þrist og Arnar
bætti öðrum við og jafnaði
metin, 35-35. Benni tók þá
leikhlé og gestirnir sigu fram úr
á ný. Þeir náðu fimm stiga
forystu rétt fyrir hálfleik eftir
stökkskot frá Basile en aftur
skellti Bess í flautuþrist og
tveimur stigum munaði í hálf-
leik, staðan 45-47.
Stólar taka völdin
Hvorki Badmus né Pétur náðu
að skora í fyrri hálfleiknum en
Bess fór mikinn og gerði þá 17
stig. Siggi jafnaði leikinn, 49-
49, snemma í þriðja leikhluta
og næstu mínútur var jafnræði
með liðunum. Um miðjan
leikhlutann skoruðu stigalausu
kapparnir níu stig í röð og
breyttu stöðunni úr 52-56 í 61-
59 og í framhaldinu náðu
Stólarnir sjö stiga forystu og
leiddu, 68-61, þegar lokafjórð-
ungurinn fór í gang. Arnar
smellti niður þristi í upphafi
fjórða leikhluta og Siggi og
Zoran bættu við sinni körfunni
hvor og skyndilega var
munurinn orðinn 14 stig,
staðan 75-61 og útlitið bjart
hjá Stólunum. Njarðvíkingar
kunna eitt og annað fyrir sér á
parketinu og tveir þristar frá
Basile og Richotti komu þeim
aftur inn í leikinn. Eins og sagði
í inngangi þá minnkuðu gest-
irnir muninn í tvö stig þegar
fjórar mínútur voru til leiks-
loka og Baldur Þór tók leikhlé.
Í kjölfarið bættu Zoran og Siggi
við fjórum stigum og Stól-
arnir fengu smá andrými.
Skrautlegur þristur frá Zoran,
tekinn í litlu jafnvægi þegar
skotklukkan var að renna út,
fór langt með að gulltryggja
sigurinn, staðan 86-77. Njarð-
víkingar gáfust ekki upp og
minnkuðu muninn í þrjú stig
en Zoran setti niður eitt víti
Það hefur verið einstök upplifun að mæta í Síkið og vera viðstaddur síðustu leiki og meðtaka stemninguna. Gleymum þó ekki að
andstæðingar Stólanna, Njarðvíkingar og Keflavíkingar, hafa átt sinn þátt í að magna seiðinn. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR
þegar 20 sekúndur voru eftir og
ljóst að Njarðvíkingar þurftu
tvær körfur. Þriggja stiga skot
frá Fotios fór hins vegar for-
görðum og Pétur lagði boltann
í körfu gestanna þegar örfáar
sekúndur lifðu af leiknum.
Sigurinn í höfn.
Siggi og Zoran stigu upp
Að þessu sinni voru það Siggi
og Bess sem voru stigahæstir
Stólanna með 20 stig og Zoran
og Arnar skiluðu sautján
skröttum á stigatöfluna. Zoran
tók flest fráköst Stólanna eða
tíu og Siggi hirti níu og þar
af fimm sóknarfráköst. Badmus
gerði sjö stig að þessu sinni en
Njarðvíkingar settu svolítið
púður í að stoppa hann í
sókninni en hann skilaði átta
fráköstum og skellti í eina
geggjaða troðslu. Pétur var með
sex stig og sex fráköst auk þess
sem hann átti fimm
stoðsendingar.
Næsti leikur er því á Hlíðar-
enda þar sem Valsmenn bíða
eftir Stólunum en þeir hafa
unnið báðar sínar rimmur til
þessa með sóp; mættu fyrst liði
Stjörnunnar og síðan Íslands-
meisturum Þórs úr Þorláks-
höfn. Áfram Tindastóll! /ÓAB
17/2022 5