Feykir


Feykir - 04.05.2022, Síða 5

Feykir - 04.05.2022, Síða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Úrslitakeppni Subway-deildarinnar | Njarðvík - Tindastóll 1-3 Tindastóll í úrslit! Tindastóll og Njarðvík mættust í fjórða leiknum í rimmu liðanna í undanúrslitum Subway- deildarinnar í Síkinu í kvöld. Talið er að um 1200 manns hafi troðið sér í Síkið og fengu flestir eitthvað fyrir sinn snúð og rúmlega það. Leikurinn var æsispennandi en gestirnir leiddu 45-47 í hálfleik. Þriðji leikhlutinn reyndist Stólunum dýrmætur að þessu sinni og liðið náði undirtökunum í leiknum en gestirnir minnkuðu muninn í tvö stig, 77-75, þegar fjórar mínútur voru eftir. Stólarnir héldu vel á spöðunum síðustu mínúturnar og sigruðu að lokum, 89-83, og tryggðu sér þannig réttinn til að spila við Valsmenn í úrslitaeinvíginu. Þvílíka snilldin!. Stemningin í Síkinu var engu lík og nokkuð augljóst að lengi getur gott besnað. Staðan í einvígi liðanna var 2-1, Stól- um í hag eftir að Njarðvíkingar höfðu unnið sigur, 93-75, í sveiflukenndum leik í Ljónagryfjunni sl. miðvikudag. Margir höfðu þá tilfinningu að Stólarnir væru í slæmum málum ef þeir töpuðu fjórða leiknum í Síkinu og þyrftu að sækja Njarðvíkinga heim í Ljónagryfjuna í þriðja skiptið. Það stefndi því allt í nístandi naglbít og ljóst að stuðningur áhorfenda gæti skipt sköpum. Það er óhætt að fullyrða að Grettismenn, og margir fleiri illa smitaðir af Síkisbakteríunni, hafi hoppað, klappað, sungið og stappað liðið sitt áfram í þrjá fjóra tíma. Og uppskáru eftir því. Gestirnir byrjuðu vel Liðin voru svolítið yfirspennt í byrjun leiks og mikið um tapaða bolta en það voru gestirnir sem tóku forystuna, komust í 10-16 eftir um fimm mínútna leik en Siggi Þorsteins kom heltjúnnaður til leiks en það voru hann, Bess og Arnar sem voru iðnir við stigaskor Stólanna framan af leik. Súper Mario kom Njarðvíkingum níu stigum yfir, 24-33, en Bess skellti í þrist og lagaði stöðuna fyrir lok fyrsta leikhluta. Staðan 27-33. Það hvorki gekk né rak hjá báðum liðum að koma boltanum í körfuna fyrstu mínútur annars leikhluta, liðin gerðu sitt hvora körfuna fyrstu fimm mínúturnar en síðan skellti Zoran í þrist og Arnar bætti öðrum við og jafnaði metin, 35-35. Benni tók þá leikhlé og gestirnir sigu fram úr á ný. Þeir náðu fimm stiga forystu rétt fyrir hálfleik eftir stökkskot frá Basile en aftur skellti Bess í flautuþrist og tveimur stigum munaði í hálf- leik, staðan 45-47. Stólar taka völdin Hvorki Badmus né Pétur náðu að skora í fyrri hálfleiknum en Bess fór mikinn og gerði þá 17 stig. Siggi jafnaði leikinn, 49- 49, snemma í þriðja leikhluta og næstu mínútur var jafnræði með liðunum. Um miðjan leikhlutann skoruðu stigalausu kapparnir níu stig í röð og breyttu stöðunni úr 52-56 í 61- 59 og í framhaldinu náðu Stólarnir sjö stiga forystu og leiddu, 68-61, þegar lokafjórð- ungurinn fór í gang. Arnar smellti niður þristi í upphafi fjórða leikhluta og Siggi og Zoran bættu við sinni körfunni hvor og skyndilega var munurinn orðinn 14 stig, staðan 75-61 og útlitið bjart hjá Stólunum. Njarðvíkingar kunna eitt og annað fyrir sér á parketinu og tveir þristar frá Basile og Richotti komu þeim aftur inn í leikinn. Eins og sagði í inngangi þá minnkuðu gest- irnir muninn í tvö stig þegar fjórar mínútur voru til leiks- loka og Baldur Þór tók leikhlé. Í kjölfarið bættu Zoran og Siggi við fjórum stigum og Stól- arnir fengu smá andrými. Skrautlegur þristur frá Zoran, tekinn í litlu jafnvægi þegar skotklukkan var að renna út, fór langt með að gulltryggja sigurinn, staðan 86-77. Njarð- víkingar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn í þrjú stig en Zoran setti niður eitt víti Það hefur verið einstök upplifun að mæta í Síkið og vera viðstaddur síðustu leiki og meðtaka stemninguna. Gleymum þó ekki að andstæðingar Stólanna, Njarðvíkingar og Keflavíkingar, hafa átt sinn þátt í að magna seiðinn. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR þegar 20 sekúndur voru eftir og ljóst að Njarðvíkingar þurftu tvær körfur. Þriggja stiga skot frá Fotios fór hins vegar for- görðum og Pétur lagði boltann í körfu gestanna þegar örfáar sekúndur lifðu af leiknum. Sigurinn í höfn. Siggi og Zoran stigu upp Að þessu sinni voru það Siggi og Bess sem voru stigahæstir Stólanna með 20 stig og Zoran og Arnar skiluðu sautján skröttum á stigatöfluna. Zoran tók flest fráköst Stólanna eða tíu og Siggi hirti níu og þar af fimm sóknarfráköst. Badmus gerði sjö stig að þessu sinni en Njarðvíkingar settu svolítið púður í að stoppa hann í sókninni en hann skilaði átta fráköstum og skellti í eina geggjaða troðslu. Pétur var með sex stig og sex fráköst auk þess sem hann átti fimm stoðsendingar. Næsti leikur er því á Hlíðar- enda þar sem Valsmenn bíða eftir Stólunum en þeir hafa unnið báðar sínar rimmur til þessa með sóp; mættu fyrst liði Stjörnunnar og síðan Íslands- meisturum Þórs úr Þorláks- höfn. Áfram Tindastóll! /ÓAB 17/2022 5

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.