Feykir


Feykir - 04.05.2022, Side 6

Feykir - 04.05.2022, Side 6
6 17/2022 Í Skagafirði er gott að búa, fjölbreytt atvinnulíf og aðstæður góðar fyrir fjölskyldufólk. Hér viljum við ala upp börnin okkar og er því mikilvægt að grunninnviðir sveitarfélagsins séu í lagi. Í upphafi kjörtímabilsins sem nú er að líða var bæði vöntun á íbúðarhúsnæði og leikskólaplássi. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur því lagt mikla áherslu á að fjölga lóðum í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins og stuðla að uppbyggingu á leikskólum um fjörðinn. Betur má ef duga skal Þrátt fyrir uppbyggingu þess- ara grunninnviða á sviði húsnæðis- og leikskólamála stöndum við frammi fyrir nýjum áskorunum. Þar má allra helst nefna vöntun á starfsfólki leikskóla en nýverið var tilkynnt um opnun nýrrar deildar við leikskólann Ársali. Það mun hins vegar ekki nást að fullmanna deildina þannig að hægt sé að veita öllum börnum, 12 mánaða og eldri, pláss á leikskólanum. Það liggur því fyrir að hugsa þarf málin upp á nýtt og hvernig hægt sé að stuðla að því að gera leikskóla að eftirsóknarverðum vinnustað. Til að mynda mætti X2022 | Frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði Skagafjörður til framtíðar leysa úr þessum vanda með því að umbuna starfsfólki sem ávallt stendur vaktina, sem og að skilgreina hvata s.s. með niðurgreiðslu á gjöldum til barna starfsfólks, hvort sem er í leik- eða grunn- skóla. Það er mikilvægt að leikskólaumhverfið sé aðlað- andi vinnustaður og að stuðningur sé við starfsfólk þess. Hvað húsnæðismálin varðar hefur talsverð fjölgun lóða átt sér stað á kjörtímabilinu. Hins vegar hefur fasteigna- verð og byggingarkostnaður rokið upp úr öllu valdi og gengur t.a.m. erfiðlega fyrir ungt fólk að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Það er því mikilvægt að stuðla að upp- byggingu hagkvæms húsnæðis sem hentar mismunandi þörfum fólks, svo sem með uppbyggingu á íbúðum með hlutdeildarlánum fyrir fyrstu kaupendur og innan almenna leiguíbúðarkerfisins. Með því að bjóða upp á fjölbreyttar lóðir og húsnæði, hvort sem er til að leigja eða kaupa, styðjum við íbúa sem og aðra sem hingað vilja flytja við að komast inn á húsnæðismarkaðinn í Skagafirði. Þessu viljum við í Sjálf- stæðisflokknum vinna að! Sólborg Borgarsdóttir skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði og Regína Valdimarsdóttir skipar 4. sæti listans. Mig langar að benda á forgangsröðun og þau réttindi sem íbúar Skagafjarðar eiga að búa við en er því miður ekki enn búið að koma í forgang. Skagafjörður getur betur. Lög um grunnþjónustu félagsþjónustu fyrir aldraða á ekki að einangrast við póstnúmer. Lögin eru sett fyrir alla íbúa Íslands. Ef réttindi allra íbúa til grunnþjónustu samkvæmt lögum er ekki forgangsmál, hvað er það þá? „Sveitarstjórn ber að sjá til þess að lögbundnar skyldur séu ræktar.“ Lög um öldrunarþjónustu. Markmið. 1. gr. Markmið þessara laga er að aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þörf og ástand hins aldraða. Einnig er markmið laganna að aldraðir geti, eins lengi og unnt er, búið við eðlilegt heimilislíf en að jafnframt sé tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Við framkvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé virtur. Lög um félagsþjónustu. 40. gr.]1) Sveitarstjórn skal sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum. Hér er m.a. átt við heimaþjónustu, félagsráðgjöf og heimsendingu matar. Jafnframt skal tryggja öldruðum aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi. Í því sambandi skal lögð sérstök áhersla á fræðslu og námskeiðahald um réttindi aldraðra og aðlögun að breyttum aðstæðum sem fylgja því að hætta þátttöku á vinnumarkaði. [Sveitar- félagi er ekki skylt að veita þjónustu samkvæmt þessari grein á sjúkrahúsi eða öldr- unarstofnun.] Lög um heilbrigðisþjónustu. 4.3 Næring 1. Næringarfræðingur sé hluti af teymi heilsugæslustöðva sem sinnir öldruðum, að- lagað að umfangi hverrar stöðvar. 2. Næringarfræðingur sé hluti af þverfaglegu teymi ríkis og sveitarfélaga sem sinnir heilsueflandi samtölum og metur þarfir aldraðra. 3. Tryggt sé að öllum öldruðum sem á þurfa að halda, standi daglega til boða heimsend- ur matur sem miðast við sérstakar næringarþarfir aldraðra. Hvar liggur hundurinn grafinn? Í sáttmála um samstarf Fram- sóknar- og Sjálfstæðisflokks, sem var undirritað fyrir fjórum árum, var einmitt þetta ágæta markmið. • Tryggja þarf íbúum Skaga- fjarðar aðgang að öflugri félagsþjónustu og að allir aldraðir íbúar sveitarfélagsins njóti lögbundinnar þjónustu. Unnið verði að aukinni samþættingu þjónustu til aldraðra á vegum ríkis og sveitarfélags. Ég hrekk við málsgreinina, allir aldraðir íbúar sveitarfélagsins njóti lögbundinnar þjónustu. X2022 | Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir Vinstri hreyfingunni grænu framboði og óháðum í Skagafirði Að eldast í Skagafirði, í öðru póstnúmeri en 550 Hví þarftu þá að eiga heima í póstnúmerinu 550 í Skagafirði til að fá heimsendan mat. Hvort sem þjónustuverkefnin eru flókin eða ekki, þá eru alltaf til lausnir. Það þarf ekki að kyngja fílnum í einum munnbita. Skagafjörður er dreifbýll og um langar vega- lengdir að fara en þetta er hægt í Reykjavík þar sem vegalengdir eru lengri. Þessi mikilvæga þjónusta getur ekki beðið lengur. Það verður að fara í markvissa vinnu að koma henni á laggirnar í þeirri mynd sem hentar hverju svæði og vinna að því að koma til móts við þá sem þjónustuna þiggja með sem bestum hætti. Heilsuefling aldraðra þarf aukið svigrúm og pláss. Mikill árangur hefur náðst með markvissri hreyfingu og heilsu- eflingu eldri aldurshópa. En það þarf að vera jafnt aðgengi allra að heilsueflingu. Með því móti er hægt að seinka því að fólk þurfi aðstoð vegna heilsu- og færnitaps og draga úr þörf fyrir hjúkrunarrými. Það er mikilvægt að allir búi við eins góða heilsu og kostur er, þar skiptir heilsuefling gríðarlegu máli og næringarríkur matur er mikilvægur partur af heilsu- eflingu. Velferð og þarfir aldr- aðra í öllum Skagafirði þarf að vera leiðarljós okkar. Sveitarfélögum er skylt að veita öldruðum heimaþjón- ustu, aðgang að félags- og tómstundastarfi og sjá þeim fyrir heimsendingu matar. Þetta er sú grunnþjónusta sem sveitarfélögum ber að veita öldruðum. Þessu er sveitarfélagið okkar því miður ekki að sinna fyrir allan fjörðinn. Aldraðir eru þeir íbúar sem hafa unnið baki brotnu í að byggja upp fjörðinn okkar, borgað mesta útsvarið og eiga skilið virðingu, vellíðan og áhyggjulaust ævikvöld. SKAGAFJÖRÐUR, við getum gert BETUR, við VERÐUM að gera BETUR!!! Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir skipar 2. sæti á lista VG og óháðra í Skagafirði.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.