Feykir


Feykir - 04.05.2022, Blaðsíða 7

Feykir - 04.05.2022, Blaðsíða 7
17/2022 7 Á næsta kjörtímabili viljum við í Framsókn ráðast í samstarf við heilbrigðisráðuneytið um fjölgun hjúkrunar- og dvalarrýma á Sauðárkróki og skoða möguleika á þjónustuíbúðum og stækkun dagdvalar. Undir forystu Framsóknar hefur verið gerður nýr samningur Sjúkratrygginga Íslands um rekstur og þjón- ustu hjúkrunarheimila á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðaþjónustu. Um er að ræða samning til þriggja ára og er heildar- fjármagnið um 130 milljarðar króna. Unnið verður að verkefnum sem miða að bættu rekstrarumhverfi heimilanna til framtíðar og auknum gæðum á þjónustu þeirra. Um 60 hjúkrunarrými á Húsavík eru í byggingu og framkvæmdir að hefjast á Ísafirði þar sem bætt verður við 10 rýmum. Nauðsynlegt er að næsta skref verði tekið á Sauðárkróki og farið verði í fjölgun rýma sem byggist á þarfagreiningu á bæði hjúkrunarrýmum og hugsan- lega þjónusturýmum. Fjölga þarf hjúkrunar- og dvalarrýmum Biðlistar eru eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum við Heil- brigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki og er sá vandi ekki nýr af nálinni. Við greiningu á núverandi húsnæði er ljóst að þörfin á fjölgun hjúkrunarrýma er brýn. Huga þarf að fjölgun hjúkrunarrýma sem fyrst vegna biðlista og vöntunar á fullnægjandi rýmum miðað við ríkisheimildir. Miðað við mannfjöldaspá mun hópur fólks yfir 65 ára tvöfaldast frá því sem hann er til ársins 2035 og því blasir við að þörfin mun enn aukast á komandi árum. Þess má þó geta að þessi misserin er verið að vinna við endurbætur á núverandi hjúkrunarrýmum en þau eru barn síns tíma, mörg tvíbýli og sum án salernis. Ákveðnum áfanga var náð þegar farið var í endurnýjun á eldri rýmum en það dugar ekki til og ljóst að við þurfum fleiri rými. Markmiðið með fjölgun rýma er að auka þjónustu við X2022 | Hrund Pétursdóttir Framsóknarflokknum í Skagafirði Sterkari Skagafjörður fyrir eldri borgara aldraða á svæðinu og veita þeim möguleika á að komast í öruggt umhverfi. Áherslan í dag er á að á hjúkrunarheimilum séu skapaðar aðstæður sem líkjast heimilum fólks og að umhverfi sé vistlegt. Bætum lífsgæði eldra fólks Samkvæmt stefnu heilbrigðis- yfirvalda þá er markmiðið að fólk geti búið heima hjá sér eins lengi og kostur er. Því þarf að fylgja eftir með auknu fjármagni til eflingar þeirrar stoðþjónustu sem fyrir er svo slíkt geti orðið. Margir búa einir en vilja komast í húsnæði þar sem þeir búa við aukið öryggi en hafa ákveðið sjálfstæði. Þjónustuíbúðir eru einn valkostur þar sem fólk getur búið lengur sjálft en þó með aukinni þjónustu. Skoða þarf einnig þann möguleika í tengslum við uppbyggingu hjúkrunarrýma, þ.e. hvort hægt sé að koma því við að bjóða upp á slíkt úrræði samhliða. Í tengslum við uppbyggingu hjúkrunarrýma hefur í sumum tilfellum hluti húsnæðisins verið skipulagður undir aðstöðu fyrir félagsstarf og aðra þjónustu sem þjónar ekki aðeins íbúum hússins heldur öðrum eldri borgurum á svæðinu. Opnast við það möguleiki á stækkun rýmis fyrir dagdvöl aldraðra en sú þjónusta er einn liður í því að gera einstaklingum auðveldara að vera lengur heima og styður það við stefnu stjórnvalda. Við í Framsókn viljum að eldri borgurum líði vel í Skagafirði. Við í Framsókn viljum að eldri borgurum líði vel í Skagafirði. Hrund Pétursdóttir skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Skagafirði Grunnur er hluti byggingar sem við í mannvirkjagerðinni þekkjum vel. Við lærum strax mikilvægi þess að hann standi réttur og sterkur til að framhaldið verði vandað og endingargott. Með því að tileinka sér þessa hugsjón í öllu sem við gerum búum við til vegferð sem skilar sér margfalt til baka. Grunnstoðir eru forsenda fyrir því að samfélagið geti gengið. Við verðum að hafa gott mennta-, íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla. Fjölbreytt atvinnulíf og almenna þjónustu í lagi. Við þurfum sértæka þjónustu og störf fyrir fólk sem þarf á því að halda, ásamt öflugri þjónustu fyrir eldra fólkið okkar sem á það svo sannarlega inni hjá samfélaginu. Þessi málefni telja flest framboð mikilvæg í okkar samfélagi og sum þeirra hafa talað fyrir þeim í gegnum mörg kjörtímabil. Af einhverjum ástæðum stöndum við samt eftir með sömu umræðuna og oft á tíðum sömu vandamálin sem veltast um í kerfinu í mörg ár. Mygluvandamál í bygging- um, yfirálag á starsfólki, aðstöðuleysi margra greina, skortur á sérfræðiþjónustu og svo mætti lengi telja. Vandamál eru ekkert annað en verkefni sem finna þarf lausnir á. Við styrkjum ekki keðjuna með fleiri hlekkjum ef þeir veiku halda sér. Má sem dæmi nefna nýjar leikskólabyggingar án starfsfólks og möguleg uppbygging mannvirkja án rekstargrundvallar. Við eigum það til að elta skottið á okkur við að grípa verkefnin þegar þau hellast yfir okkur með tilheyrandi kostnaði, sem getur verið töluvert meiri en hann þarf að vera. Skuldasöfnun er ekkert leyndarmál og hafa skuldir aukist mikið á síðustu árum. Þar verðum við að sýna ábyrgð og stýra verkefnum með réttum hætti. Sinna viðhaldi áður en það verður um seinan og styrkja lýðheilsu fólks til að bæta starfsumhverfi þess, svo dæmi séu tekin. Jöfnun þjónustu eru rétt- indi á hvaða sviði sem er. Ljósleiðaravæðing í dreifbýli hefur verið til fyrirmyndar en nú er löngu tímabært að klára þéttbýlið þar sem sums staðar er treyst á 4G netkerfi. Einnig þarf að þrýsta á bætt raforkuöryggi á sömu slóðum og víðar, sérstaklega með tilkomu rafbílavæðingar. Jöfnun þjónustu í skóla- málum, í þjónustu við eldri borgara, í sértækri þjónustu og fleiri þjónustum má segja að sé efni í nýja grein. Tilfinningin er að lengi hefur okkur vantað framtíðar- sýn og markmið hvert við viljum stefna með samfélagið okkar. Við megum ekki falla í þá gryfju að horfa til byggðaþróunar til að segja okkur hvað við eigum X2022 | Eyþór Fannar Sveinsson ByggðaListanum í Skagafirði Keðjan jafn sterk og veikustu hlekkirnir að áætla í fjölgun fólks í héraðinu. Setjum markið hátt og skipuleggjum framtíðina. Að auka íbúafjölda kallar á skipulag þéttbýliskjarna til langs tíma með fjölbreyttum íbúða-, atvinnu- og þjónustu- hverfum. Með því að skil- greina lóðir með öllum hús- gerðum búum við til vöru sem er aðdráttarafl fyrir samfélagið. Þetta gildir um alla þéttbýliskjarna, hvernig við viljum sjá þá stækka. Langt er síðan heilt íbúða- hverfi var deiliskipulagt í héraðinu líkt og nú með Sveinstúni á Sauðárkróki. Í framhaldinu þarf að setja tímamörk og fara strax í deiliskipulag á næsta hverfi. Undirbúningsvinna er sparnaður til lengri tíma og spornar við að missa eftir- spurn eftir lóðum annað. Hönnun þjónustumannvirkja þarf að taka mið af þessum markmiðum með mögulegum stækkunum. Með það í huga verðum við einnig að virkja betur þekkingu fólksins á gólfinu inn í hönnunarferlið til að nýting mannvirkja verði sem best. Þarna er gott að grípa tækifærið með skólabyggingu í Varmahlíð, sundlaug á Sauðárkróki og íþróttahúsi á Hofsósi. Sveitarfélagið okkar er nú þegar að stækka. Akrahreppur hefur sameinast með styrk sem gefur okkur tækifæri til að eflast enn frekar. Burtfluttir Skagfirðingar ásamt nýjum, hafa ratað heim. Til okkar hefur flutt fjöldi fólks af erlendum uppruna og bætt bæði samfélag og atvinnulíf. Bændastéttin er auðlind sem hefur alla burði til að stækka enn frekar og ferðaþjónustan er rétt að byrja sína vegferð. Tækifærin í menntamálum á svæðinu eru mun meiri en fólk gerir sér grein fyrir. Við þurfum að byggja þessa góðu vegferð upp til framtíðar og sameinast í að virkja hvert annað til góðra verka. Framtíðin er björt en birtist ekki nema við séum tilbúin að taka á móti henni. Eyþór Fannar Sveinsson Höfundur skipar 3. sæti ByggðaListans

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.