Feykir


Feykir - 04.05.2022, Síða 8

Feykir - 04.05.2022, Síða 8
8 17/2022 Hrossaræktarárangurinn árið 2021 var mjög góður hjá félagsmönnum Hrossa- ræktarsambandsins, mikið af hátt dæmd- um hrossum og þrjár hryssur sem fengu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Það var hrossaræktarbúið Prestsbær sem staðsett er í Hegranesi í Skagafirði, í eigu Inga og Ingar Jensen frá Svíþjóð, sem hlaut titilinn hrossaræktarbú ársins 2021 í Skagafirði. Prestsbær er tiltölulega ungt hrossaræktarbú, en hefur þegar náð afburðagóðum árangri og byggir sína ræktun á stofnhryssunni Þoku frá Hólum sem fékk heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2012. Þoka er búin að gefa mörg góð afkvæmi og þar á meðal yfirburða ræktunarhryssuna Þóru frá Prestsbæ sem stóð efst heiðursverðlaunahryssna fyrir afkvæmi á Íslandi á síðasta ári. Það eru dætur Þóru, þær Þrá frá Prestsbæ og Álfamær frá Prestsbæ sem hlutu hvorun sig efsta sætið í sínum flokki (annars vegar 7v.+ og 6 vetra) sem einstaklingar árið 2021 hjá HSS og Þrá var hæst dæmda einstaklingshrossið úr ræktun og eigu hrossaræktarbús í Skagafirði og hlaut Sörlabikarinn. Auk þess sem Þenja frá Prestsbæ, dóttir Þoku, stóð efst í sínum flokki (5 vetra). Þetta er magnaður árangur út af einni hryssu sem minnir hrossaræktendur á hvað góðar hryssur skipta sköpum í hrossaræktarstarfinu. Tvö hrossaræktarbú voru einnig tilnefnd fyrir góðan ræktunarárangur á árinu en það voru Hof á Höfðaströnd og Hólaskóli. Það var Þórarinn Eymundsson sem var kynbótaknapi ársins 2020 í Skagafirði með nokkrum yfirburðum að þessu sinni, en hann sýndi 34 hross í fullnaðardóm á árinu og þar af 20 hross í yfir 8,0 í aðaleinkunn. Bjarni Jónasson og Barbara Wenzl voru einnig tilnefnd til titilsins með frábæran árangur. Þrjár hryssur í eigu félagsmanna voru heiðraðar fyrir að hafa náð heiðurs- verðlaunum fyrir afkvæmi samkvæmt kynbótamati Bændasamtaka Íslands, en það voru Hrísla frá Sauðárkróki (eigandi Hanna Kristín Pétursdóttir), Sefja frá Úlfljótsvatni (eigandi Hofstorfan slf.) og Ösp frá Hólum (eigandi Hólaskóli). Hér á eftir fylgja upplýsingar um verð- launahafana hjá HSS fyrir árið 2021: Stóðhestar 4 vetra: 1. Fróði frá Flugumýri 2. Fannar frá Flugumýri 3. Leistur frá Íbishóli Stóðhestar 5 vetra: 1.Töfri frá Þúfum 2. Greifi frá Bræðraá 3. Óðinn frá Lýtingsstöðum Aðalfundur Hrossaræktarsambands Skagfirðinga Prestsbær hrossaræktarbú ársins 2021 í Skagafirði Hrossaræktarsamband Skagfirðinga (HSS) hélt tvöfaldan aðalfund fyrir árin 2020 og 2021, þann 19. apríl síðastliðinn í Tjarnarbæ. Við sama tækifæri var verðlaunaveiting til félagsmanna HSS þar sem verðlaun voru veitt fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin, hrossaræktarbú ársins og kynbótaknapa ársins, fyrir árið 2021. Kynbótaknapi ársins 2021, Þórarinn Eymundsson, með Kraftsbikarinn. Einnig heldur hann á Sörlabikarnum sem veittur var hæst dæmda kynbótahrossi í Skagafirði 2021, sem er hryssan Þrá frá Prestsbæ sem Þórarinn situr. Við hlið þeirra stendur Guðrún Stefánsdóttir, formaður HSS, og heldur á Ófeigsbikarnum sem hrossaræktarbú ársins, Prestsbær hlaut árið 2021. Myndin var tekin á reiðhallarsýningunni Tekið til kostanna 29. apríl sl. Mynd: Arnþrúður Heimisdóttir. MYNDIR AF VERÐLAUNAAFHENDINGU: RÓSA MARÍA VÉSTEINSDÓTTIR Þrá frá Prestsbæ hlaut Sörlabikarinn sem hæst dæmda kynbótahross í Skagafirði 2021. Á myndinni er Þrá á keppnisbrautinni ásamt Þórarni Eymundssyni á Fjórðungsmóti í Borgarnesi sl. sumar. MYND. EIÐFAXI/GÍSLI GUÐJÓNSSON. Sörlabikarinn Þrá Þrá frá Prestsbæ var hæst dæmda kynbótahross í Skagafirði 2021 og hlaut Sörlabikarinn. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir veitti bikarnum viðtöku í fjarveru eigenda og umráðamanns.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.