Feykir - 04.05.2022, Qupperneq 8
8 17/2022
Hrossaræktarárangurinn árið 2021 var
mjög góður hjá félagsmönnum Hrossa-
ræktarsambandsins, mikið af hátt dæmd-
um hrossum og þrjár hryssur sem fengu
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.
Það var hrossaræktarbúið Prestsbær
sem staðsett er í Hegranesi í Skagafirði,
í eigu Inga og Ingar Jensen frá Svíþjóð,
sem hlaut titilinn hrossaræktarbú ársins
2021 í Skagafirði. Prestsbær er tiltölulega
ungt hrossaræktarbú, en hefur þegar náð
afburðagóðum árangri og byggir sína
ræktun á stofnhryssunni Þoku frá Hólum
sem fékk heiðursverðlaun fyrir afkvæmi
árið 2012. Þoka er búin að gefa mörg
góð afkvæmi og þar á meðal yfirburða
ræktunarhryssuna Þóru frá Prestsbæ
sem stóð efst heiðursverðlaunahryssna
fyrir afkvæmi á Íslandi á síðasta ári. Það
eru dætur Þóru, þær Þrá frá Prestsbæ og
Álfamær frá Prestsbæ sem hlutu hvorun
sig efsta sætið í sínum flokki (annars
vegar 7v.+ og 6 vetra) sem einstaklingar
árið 2021 hjá HSS og Þrá var hæst
dæmda einstaklingshrossið úr ræktun
og eigu hrossaræktarbús í Skagafirði
og hlaut Sörlabikarinn. Auk þess sem
Þenja frá Prestsbæ, dóttir Þoku, stóð efst í
sínum flokki (5 vetra). Þetta er magnaður
árangur út af einni hryssu sem minnir
hrossaræktendur á hvað góðar hryssur
skipta sköpum í hrossaræktarstarfinu.
Tvö hrossaræktarbú voru einnig tilnefnd
fyrir góðan ræktunarárangur á árinu en
það voru Hof á Höfðaströnd og Hólaskóli.
Það var Þórarinn Eymundsson sem var
kynbótaknapi ársins 2020 í Skagafirði
með nokkrum yfirburðum að þessu sinni,
en hann sýndi 34 hross í fullnaðardóm
á árinu og þar af 20 hross í yfir 8,0 í
aðaleinkunn. Bjarni Jónasson og Barbara
Wenzl voru einnig tilnefnd til titilsins með
frábæran árangur.
Þrjár hryssur í eigu félagsmanna
voru heiðraðar fyrir að hafa náð heiðurs-
verðlaunum fyrir afkvæmi samkvæmt
kynbótamati Bændasamtaka Íslands, en
það voru Hrísla frá Sauðárkróki (eigandi
Hanna Kristín Pétursdóttir), Sefja frá
Úlfljótsvatni (eigandi Hofstorfan slf.) og
Ösp frá Hólum (eigandi Hólaskóli).
Hér á eftir fylgja upplýsingar um verð-
launahafana hjá HSS fyrir árið 2021:
Stóðhestar 4 vetra:
1. Fróði frá Flugumýri
2. Fannar frá Flugumýri
3. Leistur frá Íbishóli
Stóðhestar 5 vetra:
1.Töfri frá Þúfum
2. Greifi frá Bræðraá
3. Óðinn frá Lýtingsstöðum
Aðalfundur Hrossaræktarsambands Skagfirðinga
Prestsbær hrossaræktarbú
ársins 2021 í Skagafirði
Hrossaræktarsamband Skagfirðinga (HSS) hélt tvöfaldan
aðalfund fyrir árin 2020 og 2021, þann 19. apríl síðastliðinn í
Tjarnarbæ. Við sama tækifæri var verðlaunaveiting til
félagsmanna HSS þar sem verðlaun voru veitt fyrir hæst
dæmdu kynbótahrossin, hrossaræktarbú ársins og
kynbótaknapa ársins, fyrir árið 2021.
Kynbótaknapi ársins 2021, Þórarinn Eymundsson, með Kraftsbikarinn. Einnig heldur hann á Sörlabikarnum
sem veittur var hæst dæmda kynbótahrossi í Skagafirði 2021, sem er hryssan Þrá frá Prestsbæ sem
Þórarinn situr. Við hlið þeirra stendur Guðrún Stefánsdóttir, formaður HSS, og heldur á Ófeigsbikarnum sem
hrossaræktarbú ársins, Prestsbær hlaut árið 2021. Myndin var tekin á reiðhallarsýningunni Tekið til kostanna
29. apríl sl. Mynd: Arnþrúður Heimisdóttir.
MYNDIR AF VERÐLAUNAAFHENDINGU: RÓSA MARÍA VÉSTEINSDÓTTIR
Þrá frá Prestsbæ hlaut Sörlabikarinn sem hæst dæmda kynbótahross í Skagafirði 2021. Á myndinni er Þrá á
keppnisbrautinni ásamt Þórarni Eymundssyni á Fjórðungsmóti í Borgarnesi sl. sumar.
MYND. EIÐFAXI/GÍSLI GUÐJÓNSSON.
Sörlabikarinn Þrá
Þrá frá Prestsbæ var hæst dæmda kynbótahross í Skagafirði 2021 og hlaut Sörlabikarinn.
Heiðrún Ósk Eymundsdóttir veitti bikarnum viðtöku í fjarveru eigenda og umráðamanns.