Feykir - 04.05.2022, Síða 10
Var nýlega að lesa bókina Hús og
híbýli á Hvammstanga eftir Þórð
Skúlason og kvað Víst mun þetta Þórðar verk
þykja gott til fanga.
Hér er fengin heimild merk
um húsin öll á Tanga.
Heyrði talað um tvo fyrri tíðar menn
og ósamskipti þeirra og orti Þótt þeir væru systrasynir
samt voru þeir í engu vinir.
Halli með þunga þráfalt blés
ef það var minnst á hann Jóhannes.
Orti að gefnu tilefni um viðhorf sumra
manna Ein er skoðun íhaldsmanna,
allt sem sérgæskuna ver.
Trúarjátning Thorsaranna
telst þá löngum skila sér.
Varð hugsað til óblíðra örlaga
hæfileikamanns og kvað Andrés Björnsson úti varð,
ólán blés að kauni.
Örendur lá fyrir utan garð,
einn í köldu hrauni.
Stundum eiga menn erfitt með að setja
sig inn í aðstæður liðins tíma Að líta á það sem liðið er
er lengra en við höldum,
þegar sögusviðið er
sveipað skuggatjöldum.
Varð hugsað til Ísleifs seka frá
Breiðavaði og örlaga hans Ísleifs breytni sögð var sú
síðust, vil ég halda,
létt hann stökk af Löngubrú
með lóð í djúpið kalda.
Kvað til vinar sem virtist haldinn
bölmóði Meðan lífið mætir þér
mundu hvað er sannast,
að reyna í öllu í heimi hér
að hugsa um það að mannast.
Varð hugsað til góðrar vinkonu og
kvað:
Þegar vorsins veröld rís
vafin græna kjólnum,
sæl mun fagna sólardís
Sigríður á Hólnum.
Orti eitt sinn af sannri virðingu fyrir
húnvetnskri bóndakonu Þó að margt á móti blési
manndóms dyggðin sýndi ei lát.
Sesselja í Sauðanesi
setti breskan hroka í mát.
Gekk fram hjá húsinu Lundi á
Skagaströnd og kvað Stæltur karl með styrk í mund
stöðuglega jók sitt pund.
Gerði út við opin sund
Óli norski og byggði Lund.
Stundum leiðir hugsunin mann inn í
einhverja þjóðlega upphafningu sem
hjálpar til við að glöggva manni sýn á
það sem kalla mætti sönn lífsverðmæti
:
Dansa lífs við draumaþrá
dætur lands og synir.
Inn í hugann anda þá
allir horfnir vinir.
Eftirfarandi vísa varð svo til nýlega
um hádegisbil á göngu inn með sjó Yfir landi og silfursæ
sólin bál sitt kyndir.
Gamalt fólk í gömlum bæ
gleðst við lífsins myndir.
Ritað á Skagaströnd 10. apríl 2022.
Rúnar Kristjánsson
Rúnar Kristjánsson
Blaðskellur og blómleysur
SAMEIGINLEGIR FRAMBOÐSFUNDIR TIL KOSNINGA
Í SAMEIGINLEGU SVEITARFÉLAGI AKRAHREPPS OG
SVEITARFÉLAGSINS SKAGAFJARÐAR VERÐA:
Miðvikudaginn 4. maí:
Á KK Restaurant á Sauðárkróki kl. 20:00
Fimmtudaginn 5. maí:
Í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð kl. 20:30
Sunnudaginn 8. maí
Í Höfðaborg á Hofsósi kl. 20:00
Kokkur ársins 2022
Kristinn Gísli í öðru sæti
Króksarinn og eðalkokkurinn
Kristinn Gísli Jónsson varð í
öðru sæti í keppninni Kokkur
ársins 2022 sem fram fór í Ikea
sl. laugardag. Rúnar Pierre
Henriveaux hlaut nafnbótina
Kokkur ársins og Gabríel
Kristinn Bjarnason landaði
þriðja sætinu.
Á Veitingageirinn.is segir að
keppnin hafi verið æsispennandi
en hún fór fram í sérútbúnum
keppniseldhúsum í miðri
verslun IKEA en um það bil
10.000 gestir kíktu á keppnis-
svæðið. Afar mjótt var á munum
í keppninni þar sem Rúnar var
með 254,7 í heildarstig, Kristinn
með 254,1 stig og Gabríel með
251,5.
Keppendur elduðu þriggja
rétta máltíð fyrir dómarana en
dregið var um í hvaða eldhúsi
þeir kepptu í úrslitakeppninni
en sá fyrsti byrjaði að elda kl. 11,
sá næsti fimm mínútum síðar og
svo koll af kolli. Sama var uppi á
teningnum þegar keppendur
skiluðu fyrsta rétti, en eldhús 1
skilaði kl. 16:00 og svo næsti
fimm mínútum síðar o.s.frv.
Áhorfendur og viðskiptavinir
Ikea sem áttu leið fram hjá
keppniseldhúsunum gátu dottið
í lukkupottinn og fengið að
smakka af réttum meistaranna
þegar keppendurnir skiluðu af
sér réttum, segir í frétt Veit-
ingageirans.
Það er Klúbbur matreiðslu-
meistara sem hefur veg og vanda
af keppninni. /PF
Frjálsíþróttamót UFA og Norðlenska
Sigursælir Húnvetningar
Akureyrarmót UFA og
Norðlenska var haldið í
Boganum laugardaginn 23.
apríl sl. Boðið var upp á
þrautabraut fyrir 9 ára og
yngri, en keppt var í flokkum
frá 10-11 ára upp í karla- og
kvennaflokk. Fjöldi kepp-
enda kom af Norðurlandi
vestra og átti USAH 42
keppendur, en keppendur
sambandsins unnu flest
verðlaun liða á mótinu.
Á Facebook-síðu frjáls-
íþróttadeildar Hvatar á
Blönduósi kemur fram að frá
þeim hafi komið 30 keppendur
sem kepptu undir merkjum
USAH.
„Ellefu vaskir krakkar 9
ára og yngri kepptu í þrauta-
braut sem var fjölbreytt og
skemmtileg að vanda og 19
krakkar á aldrinum 10-16 ára
spreyttu sig í hinum ýmsum
greinum. Umf. Hvöt hreppti
34 verðlaun, 16 gull, 11 silfur
og 6 brons. Gaman að segja
frá því að Steinunn Hulda og
Berglind Birta fóru norður á
föstudeginum með 13 krakka.
Byrjað var að fara á æfingu í
blíðskapar veðri á útivelli
UFA, þá var skolað af sér í
sundlaug Akureyrar en þar
voru farnar ófáar ferðir í
rennibrautirnar. Því næst var
skundað í hlaðborð á
Verksmiðjunni og endað á
náttstað. Á laugardeginum
var brunað í Bogann og
deginum varið þar við að
keppa, að móti loknu var
fengið sér að borða á Lemon
og brunað heim. Allir þreyttir
og sælir," segir í færslu
frjálsíþróttadeildar Hvatar en
þar er hægt að sjá fleiri
myndir úr ferðinni til Akur-
eyrar.
Keppendur af Norðurlandi
vestra frá USAH, Kormáki og
UMSS voru einkar sigursælir
en á Feyki.is er hægt að
nálgast úrslit mótsins. /PF
Verðlaunahafar á keppninni um Kokk ársins 2022. F.v. Kristinn Gísli Jónsson, Rúnar
Pierre Henriveaux, og Gabríel Kristinn Bjarnason. MYND: Veitingageirinn.is
10 17/2022