Feykir - 04.05.2022, Blaðsíða 12
Vegabætur á Norðurlandi vestra
Brúarstæðið á Laxá
í Refasveit
Brúarstæðið er í landi
Kollugerðis sem tilheyrir nú
Syðra-Hóli litlu neðar en
gamla Lestarvaðið sem var
alfaraleið fyrir tíma allrar
brúagerðar.
Gamla brúin, sunnan við
Syðra-Hól við svonefndan
Rana, var í notkun fram
yfir 1970 í miklum halla
og með erfiða aðkomu og
illfær í snjóum og hálku.
Mikill farartálmi á vetrum.
„Nýja brúin“ er litlu austar
gríðarlega há, einbreið,
og með miklum halla til
norðurs. Mörgum þótti þetta
misheppnað mannvirki en
flestir hafa varann á sér er
þeir fara um þessa brú sem
enn er í notkun. Brúarstæðið
við Lestarvaðið þótti á sínum
tíma allt of dýrt enda mikil
veglagning sem því fylgir. Nú
eru breyttir tímar.
Fyrir röskum 30 árum stóð
valið á milli hafnargerðar á
Blönduósi og nýs vegar til
Skagastrandar um Blöndu-
bakka með verulegri
vegstyttingu milli staðanna.
Hugmyndafræðin var öflug
höfn á Skagaströnd og
atvinnuskapandi úrvinnsla
sjávarafla meðal annars á
Blönduósi. Höfnin á Blöndu-
ósi var byggð en veglagningin
beið í rösk 30 ár. Nú hillir
undir nýjan veg.
/Hörður Ingimarsson
Mynd tekin 20. apríl á síðasta vetrardegi 2022. MYND: HING
9. OG 10. MAÍ
Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir
19. OG 20. MAÍ
Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir
23. TIL 25. MAÍ (NOKKRIR LAUSIR TÍMAR 25. MAÍ)
Bjarki Karlsson, bæklunarskurðlæknir
Tímapantanir í síma 432 4236
Sérfræðikomur
í maí 2022
www.hsn.is
Ásta Bryndís sýnir í Gallerí Hún
listamaðurinn. Sigurlaug seg-
ist hafa rýmt einn stóran vegg
í búðinni og er uppbókað á
honum út ágúst eins og áður
segir en ef einhverjir listamenn
hafa áhuga þá er laust í október
og nóvember. /PF
Sýning númer tvö hjá okkur
Síðastliðinn laugardag opnaði
listamaðurinn Ásta Bryndís
Sveinsdóttir frá Egilsstöðum
málverkasýningu í Gallerí HÚN
í Húnabúð á Blönduósi.
Ásta Bryndís var á
staðnum ásamt fjallhressum
systrum sínum sem mættar
voru af þessu tilefni. „Ásta
Bryndís er með sína fyrstu
málverkasýningu, sölusýn-
ingu, hér í Húnabúð og er
sýning númer tvö hjá okkur,“
segir Sigurlaug Gísladóttir
eigandi Húnabúðar.
Sigurlaug hvetur fólk til að
koma á sýninguna sem verður
opin út maí en þá kemur nýr
listamaður og verður út júlí
en í ágúst kemur svo þriðji
Við opnun málverkasýningar Ástu Bryndísar í Gallerí HÚN sl. laugardag.
MYND: FB HÚNABÚÐ
Siturðu á grein?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
12 17/2022
Í nútímasamfélagi hefur
ákveðinn hluti samskipta
og þjónustu færst yfir á
netið og samfélagsmiðla og
fréttir eru aðgengilegar allan
sólarhringinn á netmiðlum.
Símar og spjaldtölvur gegna
stærra og stærra hlutverki í
daglegu lífi okkar og sífellt
bætast við nýjar leiðir til
samskipta og fréttaflutnings.
Þetta er gjörbreyttur veruleiki
frá því samfélagi sem eldra
fólk ólst upp við og lifði við á
fullorðinsárum sínum.
Sjálfur er ég 45 ára og ólst
upp við sveitasíma fyrstu ár
ævinnar en svo tók sjálfvirki
síminn við, og við þekkjum
framhaldið. Breytingarnar eru
ótrúlega miklar á ekki lengri
tíma. Þó svo að meirihluti eldra
fólks eigi tölvur eða snjalltæki
og noti reglulega þá upplifa
sum þeirra aukna einangrun
meðal annars vegna þessara
samfélagsbreytinga. Sumt eldra
fólk getur ekki nýtt tæknina eða
þá möguleika sem henni fylgja
og verður þá af afþreyingu,
samskiptum við fjölskyldu og
vini og getur ekki nýtt sér þá
þjónustu sem möguleg er á
netinu.
Ný námskeið í tæknilæsi
fyrir eldra fólk
Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa,
höfum við í félags- og
vinnumarkaðsráðuneytinu
undirritað samninga við átta
fræðsluaðila um allt land
um kennslu í tölvulæsi fyrir
eldra fólk. Markhópurinn er
fólk eldra en 60 ára sem vill
þiggja námskeið í tæknilæsi á
snjalltæki, eins og spjaldtölvur
og snjallsíma. Um er að ræða
sérsniðna kennslu sem hjálpar
eldra fólki að nýta sér þjónustu
og rafræn samskipti á netinu
með það að markmiði að draga
úr félagslegri einangrun, njóta
afþreyingar á netinu og auka
notkun á þjónustusíðum.
Námskeiðin fela þannig
í sér kennslu í notkun
rafrænna skilríkja og vefsíðna
sem nota þau, heimabanka,
netverslun og fræðslu vegna
samfélagsmiðla og efnisveitna.
Þá verður farið yfir notkun á
tölvupósti og önnur rafræn
samskipti.
Námskeiðin verða haldin
víða og í hverjum landshluta.
Gengið hefur verið frá
samningi við Farskólann
– miðstöð símenntunar á
Norðurlandi vestra sem mun
annast námskeið á svæðinu.
Drögum úr einangrun
eldra fólks
Ekkert kemur í staðinn fyrir
bein samskipti við fólk, en
nútímasamfélag býður upp
á svo marga fleiri og gefandi
samskiptamáta, auk allrar
þeirrar þjónustu, frétta og
fróðleiks sem hægt er að sækja
með nýrri tækni, og geta létt
okkur lífið. Það er mikilvægt
að draga úr einangrun og
einmanaleika fólks og ég
hvet fólk eindregið til að
nýta sér þessa þjónustu til að
öðlast meiri færni á tækniöld
nútímasamfélags. Ég hlakka til
að sjá viðbrögðin og hvernig
við getum lært af þessu
verkefni til að draga enn frekar
úr félagslegri einangrun eldra
fólks.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Félags- og vinnumarkaðsráðherra
AÐSENT | Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Frá sveitasíma til snjalltækis