Feykir


Feykir - 04.05.2022, Side 15

Feykir - 04.05.2022, Side 15
AÐALRÉTTUR Nauta prime ribs 2-3 kg nauta prime Caj P BBQ oil maldon salt grófur pipar Kartöflur: 1-11/2 kg kartöflur 40 g smjör 120 ml Mapel syrop Sósan: 40 g smjör 10 g lerkisveppir 400 ml rjómi 1-2 sveppateningar maizenamjöl Aðferð: Endilega takið með fyrir- vara öll mál og tímasetningar því ég elda yfirleitt með skvettu hér og þar og lúkufylli af hinu og þessu, eins er það með tímann. Takið steikina úr frysti nokkrum dögum áður og leyfið kjötinu að brjóta sig í ísskápnum. Takið kjötið út og undirbúið það. Penslið eða berið á það pínu af BBQ olíu og saltið og piprið eftir smekk. Skottist með út á grillið og grillið kjötið þangað til að það nær kjarnhita upp á 50- 52°C (fer eftir hvað fólk vill hafa nautið vel eldað). Takið inn og leyfið því að hvíla í 10 mínútur. Setjið kartöflur á pönnu og steikið létt upp úr smjöri og saltið eftir smekk. Bætið því næst við Mapel sýrópi og leyfið að malla á vægum hita í 15 mínútur. Smjörsteikið lerkisveppina í potti (skemmir ekki að skvetta pínu koníaki útí og til að væta kverkarnar aðeins) og bætið því næst rjómanum út í og sveppatening. Leyfið sósunni að malla og þykkið svo með Maizena- mjöli í restina. EFTIRRÉTTUR Frönsk súkkulaðikaka með saltkaramelluhjúp 200 g dökkt súkkulaði 200 g smjör 200 g púðursykur 3 stk. egg 2 tsk. vanilluextract 100 g hveiti 2 msk. kakó örlítið salt Aðferð: Hitið ofninn í 160° með blæstri eða 180° án blásturs. Bræðið saman súkkulaðið og smjörið við vægan hita. Takið af hitanum og látið aðeins kólna. Þeytið saman egg, púðursykur og vanillu þar til blandan verður þykk, ljós og létt. Pískið hveitið og kakóið saman í skál og hellið saman við eggjablönduna og blandið saman á hægum hraða. Hellið súkkulaðinu saman við deigið og blandið vel en varlega saman. Hellið deiginu í smjörpappírsklætt lausbotna bök- unarform (um 22-24 sm, gott að nota smelluform) og bakið í um það bil 35-40 mínútur. Fylgist vel með kökunni. Hún á að vera dálítið blaut í miðjunni. Takið kökuna út og látið ná stofuhita eða kælið alveg áður en karamellan er sett yfir. Saltkaramella: 300 g sykur 110 ml vatn 150 ml rjómi 75 g smjör 1 tsk. sjávarsalt í flögum (eða eftir smekk) Saltkaramelluhjúpur: Aðferð: Hitið rjóma og smjör við vægan hita þar til smjörið bráðnar, setjið til hliðar. Setjið sykur og vatn í hreinan pott og hleypið suðunni upp við meðalháan hita, án þess að hræra. Látið sykurvatnið sjóða í 7-10 mínútur, án þess að hræra, þar til það nær 180°C. Takið þá strax af hitanum og hellið rjómanum og smjörinu saman við og hrærið. ATH ef þið eigið ekki hitamæli til að mæla sykur sjóðið þá sykurblönduna þar til hún er fallega gullinbrún, dálítið dökk. Alls ekki stíga frá pottinum, þetta þarf að vakta allan tímann svo brenni ekki. Setjið aftur á meðalhita og látið malla í 3-5 mínútur eða þar til blandan þykknar aðeins. Hrærið á meðan. Takið karamelluna af hitanum og bætið sjávarsalti saman við. Látið karamelluna ná stofuhita. Takið kælda kökuna og losið úr forminu, setjið á disk og setjið smelluhringinn aftur utan um kökuna á diskinum sem þið berið hana fram á. Hellið karamell-unni yfir kökuna og látið kólna í ísskáp í a.m.k. 2 klst. áður en hún er skorin. Stráið örlitlu sjávarsalti yfir karamelluna og berið fram eina og sér eða með þeyttum rjóma. Uppskritin er tekin af gottimatinn. is Verði ykkur að góðu! Ívar ætlar að skora á fram- kvæmdastjóra Knattspyrnudeildar Tindastóls, tónlistarmanninn og þann mikla meistara Sæþór Már Hinriksson. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: - - - Sudoku Krossgáta Feykir spyr... Hefurðu farið hringinn í kringum Ísland? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Ég fór hringinn þegar ég var krakki, líklega í kringum 1996.“ Ívar Örn Marteinsson „Ég hef farið tvisvar sinnum! náði að skoða landið almennilega í fyrsta sinn í fyrra með amerískum vinum mínum!“ Bryndís Rut Haraldsdóttir „Já ég keyrði hringinn ein í fyrra, mjög gaman og margar selfies teknar. Myndin er tekin á Steinasafni Petru á Stöðvarfirði." Telma Björk Gunnarsdóttir LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Gangið hægt um gleðinnar dyr. FEYKIFÍN AFÞREYING F „Já, við fjölskyldan ferðuðumst mikið um landið á mínum yngri árum og var hringvegurinn tekinn, ætli Skítamórall hafi ekki verið í tækinu“ Sigurður Hauksson Nauta prime ribs og frönsk súkkulaðikaka Matgæðingur vikunnar er Ívar Sigurðsson en hann er bóndi á Páfa- stöðum og er í sambúð með Ingibjörgu Ósk Gísladóttur sem vinnur á Eftirlæti. Saman eiga þau tvö börn, þau Diljá Mist fjögurra ára og Vestmar tveggja ára. „Er svo ekki viðeigandi að nautgripabóndinn gefi ykkur uppskrift að nauti,“ segir Ívar. ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Ívar Sigurðsson Páfastöðum Ingibjörg og Ívar með Diljá Mist og Vestmar. MYND AÐSEND Ótrúlegt - en kannski satt... Margir þekkja ævintýrið um galdrakarlinn í Oz sem Frank Baum skóp og út kom árið 1900. Nafnið Oz hefur vafist fyrir mörgum en ótrúlegt, og kannski satt, þá kom það upp þegar Frank leit á skjalaskáp sinn og sá merkingarnar A-N og O-Z. Það virkaði betur en Galdrakarlinn í An. 17/2022 15

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.