Feykir - 04.05.2022, Síða 15
AÐALRÉTTUR
Nauta prime ribs
2-3 kg nauta prime
Caj P BBQ oil
maldon salt
grófur pipar
Kartöflur:
1-11/2 kg kartöflur
40 g smjör
120 ml Mapel syrop
Sósan:
40 g smjör
10 g lerkisveppir
400 ml rjómi
1-2 sveppateningar
maizenamjöl
Aðferð: Endilega takið með fyrir-
vara öll mál og tímasetningar því
ég elda yfirleitt með skvettu hér og
þar og lúkufylli af hinu og þessu,
eins er það með tímann. Takið
steikina úr frysti nokkrum dögum
áður og leyfið kjötinu að brjóta sig
í ísskápnum. Takið kjötið út og
undirbúið það. Penslið eða berið á
það pínu af BBQ olíu og saltið og
piprið eftir smekk. Skottist með út
á grillið og grillið kjötið þangað til
að það nær kjarnhita upp á 50-
52°C (fer eftir hvað fólk vill hafa
nautið vel eldað). Takið inn og
leyfið því að hvíla í 10 mínútur.
Setjið kartöflur á pönnu og steikið
létt upp úr smjöri og saltið eftir
smekk. Bætið því næst við Mapel
sýrópi og leyfið að malla á vægum
hita í 15 mínútur. Smjörsteikið
lerkisveppina í potti (skemmir
ekki að skvetta pínu koníaki útí og
til að væta kverkarnar aðeins) og
bætið því næst rjómanum út í og
sveppatening. Leyfið sósunni að
malla og þykkið svo með Maizena-
mjöli í restina.
EFTIRRÉTTUR
Frönsk
súkkulaðikaka
með saltkaramelluhjúp
200 g dökkt súkkulaði
200 g smjör
200 g púðursykur
3 stk. egg
2 tsk. vanilluextract
100 g hveiti
2 msk. kakó
örlítið salt
Aðferð: Hitið ofninn í 160° með
blæstri eða 180° án blásturs.
Bræðið saman súkkulaðið og
smjörið við vægan hita. Takið af
hitanum og látið aðeins kólna.
Þeytið saman egg, púðursykur og
vanillu þar til blandan verður þykk,
ljós og létt. Pískið hveitið og kakóið
saman í skál og hellið saman við
eggjablönduna og blandið saman á
hægum hraða. Hellið súkkulaðinu
saman við deigið og blandið vel en
varlega saman. Hellið deiginu í
smjörpappírsklætt lausbotna bök-
unarform (um 22-24 sm, gott að
nota smelluform) og bakið í um
það bil 35-40 mínútur. Fylgist vel
með kökunni. Hún á að vera dálítið
blaut í miðjunni. Takið kökuna út
og látið ná stofuhita eða kælið alveg
áður en karamellan er sett yfir.
Saltkaramella:
300 g sykur
110 ml vatn
150 ml rjómi
75 g smjör
1 tsk. sjávarsalt í flögum (eða
eftir smekk)
Saltkaramelluhjúpur:
Aðferð: Hitið rjóma og smjör við
vægan hita þar til smjörið bráðnar,
setjið til hliðar. Setjið sykur og vatn
í hreinan pott og hleypið suðunni
upp við meðalháan hita, án þess að
hræra. Látið sykurvatnið sjóða í
7-10 mínútur, án þess að hræra,
þar til það nær 180°C. Takið þá
strax af hitanum og hellið
rjómanum og smjörinu saman við
og hrærið. ATH ef þið eigið ekki
hitamæli til að mæla sykur sjóðið
þá sykurblönduna þar til hún er
fallega gullinbrún, dálítið dökk.
Alls ekki stíga frá pottinum, þetta
þarf að vakta allan tímann svo
brenni ekki. Setjið aftur á meðalhita
og látið malla í 3-5 mínútur eða þar
til blandan þykknar aðeins. Hrærið
á meðan. Takið karamelluna af
hitanum og bætið sjávarsalti saman
við. Látið karamelluna ná stofuhita.
Takið kælda kökuna og losið úr
forminu, setjið á disk og setjið
smelluhringinn aftur utan um
kökuna á diskinum sem þið berið
hana fram á. Hellið karamell-unni
yfir kökuna og látið kólna í ísskáp í
a.m.k. 2 klst. áður en hún er skorin.
Stráið örlitlu sjávarsalti yfir
karamelluna og berið fram eina og
sér eða með þeyttum rjóma.
Uppskritin er tekin af gottimatinn.
is
Verði ykkur að góðu!
Ívar ætlar að skora á fram-
kvæmdastjóra Knattspyrnudeildar
Tindastóls, tónlistarmanninn og
þann mikla meistara Sæþór Már
Hinriksson.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: - - -
Sudoku
Krossgáta
Feykir spyr...
Hefurðu farið
hringinn
í kringum
Ísland?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Ég fór hringinn þegar ég
var krakki, líklega í
kringum 1996.“
Ívar Örn Marteinsson
„Ég hef farið tvisvar sinnum!
náði að skoða landið
almennilega í fyrsta sinn í
fyrra með amerískum
vinum mínum!“
Bryndís Rut Haraldsdóttir
„Já ég keyrði hringinn ein í
fyrra, mjög gaman og margar
selfies teknar. Myndin er
tekin á Steinasafni Petru á
Stöðvarfirði."
Telma Björk Gunnarsdóttir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Gangið hægt um gleðinnar dyr.
FEYKIFÍN AFÞREYING F
„Já, við fjölskyldan ferðuðumst
mikið um landið á mínum yngri
árum og var hringvegurinn
tekinn, ætli Skítamórall hafi
ekki verið í tækinu“
Sigurður Hauksson
Nauta prime ribs og
frönsk súkkulaðikaka
Matgæðingur vikunnar er Ívar Sigurðsson en hann er bóndi á Páfa-
stöðum og er í sambúð með Ingibjörgu Ósk Gísladóttur sem vinnur á
Eftirlæti. Saman eiga þau tvö börn, þau Diljá Mist fjögurra ára og
Vestmar tveggja ára.
„Er svo ekki viðeigandi að nautgripabóndinn gefi ykkur uppskrift
að nauti,“ segir Ívar.
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Ívar Sigurðsson Páfastöðum
Ingibjörg og Ívar með Diljá Mist og Vestmar. MYND AÐSEND
Ótrúlegt - en kannski satt...
Margir þekkja ævintýrið um galdrakarlinn í Oz sem Frank Baum skóp
og út kom árið 1900. Nafnið Oz hefur vafist fyrir mörgum en ótrúlegt, og
kannski satt, þá kom það upp þegar Frank leit á skjalaskáp sinn og sá
merkingarnar A-N og O-Z. Það virkaði betur en Galdrakarlinn í An.
17/2022 15