Feykir


Feykir - 08.06.2022, Síða 2

Feykir - 08.06.2022, Síða 2
Fyrir tæpum tuttugu árum fór ég út á sjó sem messi á frystitogara, ég hafði enga reynslu af sjónum og vissi ekkert við hverju ég átti að búast. Ég pakkaði fötum, geisladiskum og ferðageislaspilara í tösku og fékk far á Skagaströnd, þaðan sem siglt var út. Kokkurinn sýndi mér skipið og sagði mér hvað ég ætti að vera að gera. Helstu mistökin voru líklega að láta mig hella uppá kaffi, ég get ekki ímyndað mér að það hafi verið gott að láta mann sem ekki drekkur kaffi hella uppá. Fyrstu vikuna fylgdist öll áhöfnin vel með mér og biðu menn spenntir eftir að litli landkrabbinn, ég, yrði sjóveikur. Blessunarlega fyrir mig varð ég ekki sjóveikur, áhöfninni til mikillar mæðu. En þó svo að ég yrði ekki sjóveikur, þá var heppnin ekkert að elta mig því á öðrum degi bilaði ferðageislaspilarinn og þurfti ég að skúra og skrúbba næstu tæplega 40 daga án tónlistar, sem fyrir mig var nánast pynting. En tilgangur þessarar frásagnar er ekki að fræða neinn um það hvort ég hafi verið heppinn eða ekki, heldur að segja frá því sem ég lærði á þessum rúma mánuði úti á sjó. Þó svo að ég hafi alveg fengið að finna fyrir því að ég væri nýr, þá fékk ég líka að finna fyrir því að ég væri partur af áhöfninni og allir voru boðnir og búnir til að hjálpa mér að takast á við það óvenjulega verkefni að vera fljótandi úti á ballarhafi án sambands við umheiminn í rúman mánuð. Ég fékk að sjá hvað sjómenn leggja á sig og fékk að heyra sögur af því sem þeir geta þurft að þola. Það að læra þetta í þeirri aðstöðu sem ég var í geri mér kleift að skilja þetta betur en ég hefði getað ef ég gert það með fætur á föstu landi. Sjómenn eru hetjur og arfleifð sjómennsku er uppbygging þess samfélags sem við búum í á þessu landi og við ættum öll að halda sjómannadaginn hátíðlegan með sjómönnum. Til hamingju sjómenn! Ingólfur Örn Friðriksson Blaðamaður LEIÐARI Lærdómur hafsins Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Ingólfur Örn Friðriksson, bladamadur@feykir.is | Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Dóra Ingibjörg Valgarðsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Liggurðu á frétt? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is Nýverið var skrifað undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu fjölskyldugarðs á Sauðárkróki milli Svf. Skagafjarðar og Kiwanisklúbbsins Freyju. Markmið fjölskyldugarðsins er að stuðla að ánægjulegum samverustundum barna og foreldra og um leið að efla útiveru og hreyfingu í anda heilsueflandi samfélags. Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að hönnun og afmörkun svæðisins verði á þess vegum í samstarfi við klúbbinn en þar er gert ráð fyrir leiktækjum og annarri aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Skipulags- og bygginganefnd hefur gefið út framkvæmdaleyfi fyrir rað reisa aparólu á svæði austan Gilstúns á Sauðárkróki en verkefnið um fjölskyldugarð á Sauðárkróki hefur nokkurn aðdraganda. Í október 2020 mættu fulltrúar Kiwanisklúbbsins Freyju á fund umhverfis- og samgöngunefndar og kynntu hugmyndir af garðinum ásamt áformum um uppsetningu fyrstu leiktækja. Hugmyndir Freyjanna voru að fleiri fyrirtæki og félagasamtök geti tekið þátt í verkefninu með því að leggja til tæki og/eða byggingar á svæðið sem þeir geti merkt sér. / IÖF Viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu fjölskyldugarðs á Sauðárkróki Aparóla verður reist austan við Gilstún Aparóla í Sandhlíð, skógræktarsvæði Skógræktarfélags Garðabæjar. Aparólur eru stórskemmtilegar, segir á heimasíðunni ullendullen.is sem er upplýsingasíða fyrir foreldra þaðan sem myndin er fengin. MYND: EINAR ÖRN JÓNSSON. AFLATÖLUR | Dagana 29. maí til 4. júní á Norðurlandi vestra Málmey SK 1 með rúm 158 tonn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Blíðfari HU 52 Handfæri 3.240 Daðey GK 777 Lína 30.365 Dagrún HU 121 Handfæri 3.130 Elfa HU 191 Handfæri 3.206 Fengsæll HU 56 Handfæri 3.175 Fengur ÞH 207 Handfæri 2.427 Guðrún Petrína HU 107 Handfæri 1.741 Hallbjörg HU 713 Handfæri 2.479 Hjalti HU 313 Handfæri 3.137 Hrund HU 15 Handfæri 3.231 Jenny HU 40 Handfæri 2.324 Kambur HU 24 Handfæri 2.854 Kristín HU 168 Handfæri 2.175 Loftur HU 717 Handfæri 3.296 Lukka EA 777 Handfæri 2.162 Ólafur Magnússon HU 54 Grásleppunet 2.955 Steini HU 45 Handfæri 985 Svalur HU 124 Handfæri 1.522 Sæunn HU 30 Handfæri 2.897 Valur ST 43 Handfæri 3.355 Venni SI 67 Handfæri 1.546 Viktor Sig HU 66 Handfæri 2.950 Viktoría HU 10 Handfæri 2.273 Víðir EA 423 Handfæri 2.252 103.175 HOFSÓS Skotta SK 138 Handfæri 1.456 Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 2.770 4.226 SAUÐÁRKRÓKUR Assa SK 15 Handfæri 2.265 Álborg SK 88 Handfæri 194 Drangey SK 2 Botnvarpa 132.869 Gammur SK 12 Grásleppunet 3.523 Gjávík SK 20 Handfæri 2.429 Kristín SK 77 Handfæri 2.389 Lundey SK 3 Þorskfisknet 2.157 Maró SK 33 Handfæri 1.924 Málmey SK 1 Botnvarpa 158.266 Skvetta SK 7 Handfæri 1.738 Uni Þór SK 137 Grásleppunet 695 Vinur SK 22 Handfæri 2.307 Ösp SK 135 Handfæri 458 311.214 SKAGASTRÖND Alda HU 112 Handfæri 3.407 Arndís HU 42 Handfæri 2.682 Auður HU 94 Handfæri 3.508 Bergur Sterki HU 17 Handfæri 1.639 Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.262 Á Skagaströnd var landað rúmum 103 tonnum í síðustu viku og var aflahæsti báturinn Daðey FK 777 með rúm 30 tonn og var við línuveiðar. Strandveiðibátarnir lönduðu samanlagt tæpum 70 tonnum og var aflahæsti strandveiðibáturinn Auður HU 94 með 3.508 kg í fjórum löndunum. Einn bátur var á grásleppuveiðum, Ólafur Magnússon HU 54, og landaði tæpum 3 tonnum. Á Króknum var landað rúmum 311 tonnum og var Málmey SK 1 aflahæst með rúm 158 tonn. Strandveiðibátarnir lönduðu tæpum 14 tonnum samanlagt en aflahæstur var Gjávík SK 20 með tæpt 2,5 tonn. Einn bátur var á grásleppuveiðum, Gammur SK 12, og landaði hann 3.523 kg. Enginn bátur landaði á Hvammstanga en tveir lönduðu á Hofsósi rúmum 4 tonnum, annar var á strandveiðum, Skotta SK 128, og hinn á grásleppuveiðum, Þorgrímur SK 27. Alls var landað 418.615 kg á Norðurlandi vestra í síðustu viku í 140 löndunum. /SG Hólar í Hjaltadal Rektorsskipti við Háskólann á Hólum Þann 31. maí sl. var haldin hátíðleg athöfn þegar fram fóru formleg rektorsskipti við Háskólann á Hólum. Erla Björk Örnólfsdóttir lét af störfum sem rektor og Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir tók formlega við embættinu. Sveinn Margeirsson fulltrúi háskólaráðs stýrði athöfninni. meðal annarra dagskrárliða var tónlistarflutningur í höndum Gunnars Rögnvaldssonar. /IÖF 2 22/2022

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.