Feykir - 08.06.2022, Blaðsíða 3
Þær fæddust inn í heiminn og fylgdust þá að,
en fengu svo að basla hvor á sínum stað.
Annir voru margar um áratuga skeið
en að því kom að saman þær tengdu sína leið.
Gull var í þeim báðum í huga og hjartastað,
heppnaðist að lokum að koma ýmsu á blað.
Þjóð sinni þær gáfu svo gullmolana þá,
gæfusöm er þjóð hver sem slíkan fjársjóð á.
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson
Herdís og Ólína
Fyrir góðan dag
Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn
Ártorgi 1 550 Sauðárkrókur & 455 4500 www.ks.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
AÐSENT | Þuríður Harpa, Rúnar Björn og Katrín skrifa
Til hamingju með að ná kjöri.
Nú er mikilvægt að vanda sig.
Eitt af því sem kjörnir fulltrúar
bera ábyrgð á er að þeirra
sveitarfélag hafi samráð við
fatlað fólk. Nú er lag að nýjar og
endurkjörnar sveitarstjórnir gæti
að lagaskyldu sinni til að koma
upp notendaráðum fatlaðs fólks í
hverju sveitarfélagi. Fjölmörg
sveitarfélög hafa nú þegar góða
reynslu af slíku fyrirkomulagi
sem skilar sér í betri
ákvörðunum og betri nýtingu á
fjármagni, auk þess sem
samfélög sem viðhafa samráð
verða betri staðir til að búa á.
Hvort sem sveitarfélög
hafa starfrækt notendaráð áður,
eða hyggjast leggja af stað í þá
vegferð núna, þá er mikilvægt að
kalla strax eftir tilnefningum frá
hagsmunafélögum fatlaðs fólks um
einstaklinga á svæðinu til að sitja í
þessum ráðum.
Undirrituð hafa verið í
sambandi við fatlað fólk í
notendaráðum um allt land
undanfarin misseri á reglulegum
fundum. Auk þess höfum við átt
samtal við starfsfólk sveitarfélaga
og kjörna fulltrúa um þessi mál. Af
þeirri reynslu höfum við lært að
það virkar vel að kjörnir fulltrúar
sitji í slíkum ráðum og séu þannig í
beinu talsambandi við fatlaða íbúa
í stefnumótun og ákvarðanatöku.
Vel hefur gefist að starfsfólk
sveitarfélaganna sé frekar í
stuðningshlutverkum í þessum
nefndum.
Nokkur atriði sem gott er að hafa í
huga við skipan og starfrækslu
notendaráða:
• Leitast við að hafa hóp fulltrúa
fatlaðs fólks ekki of lítinn
þannig að fjölbreytileiki náist.
• Tryggja að fatlað fólk sé ekki í
miklum minnihluta í
notendaráðinu.
• Greiða fyrir setu í ráðinu líkt
og greitt er fyrir í öðrum
fastanefndum.
• Passa að fundir séu haldnir í
aðgengilegu húsnæði og að
gögn séu send með hæfilegum
fyrirvara fyrir fundi til að
hægt sé að kynna sér þau í
þaula.
•
Við skorum hér með á
sveitarstjórnarfulltrúa sem þetta
lesa, að gera málið að sínu og
tryggja að samráð við fatlað fólk sé
til fyrirmyndar í ykkar sveit.
Ekki hika við að hafa samband
hvort sem er í síma eða tölvupósti
mottaka@obi.is. ÖBÍ er boðið og
búið að aðstoða ykkur varðandi
þessi mál og auðvitað til þess að fá
tilnefningar um fatlað fólk til
samstarfs.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir,
formaður Öryrkjabandalags Íslands
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,
formaður NPA-miðstöðvarinnar
Katrín Oddsdóttir,
mannréttindalögfræðingur
Opið bréf til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa!
Katrín, Rúnar Björn og Þuríður Harpa. MYND: AÐSEND