Feykir


Feykir - 08.06.2022, Page 3

Feykir - 08.06.2022, Page 3
 Þær fæddust inn í heiminn og fylgdust þá að, en fengu svo að basla hvor á sínum stað. Annir voru margar um áratuga skeið en að því kom að saman þær tengdu sína leið. Gull var í þeim báðum í huga og hjartastað, heppnaðist að lokum að koma ýmsu á blað. Þjóð sinni þær gáfu svo gullmolana þá, gæfusöm er þjóð hver sem slíkan fjársjóð á. AÐSENT | Rúnar Kristjánsson Herdís og Ólína Fyrir góðan dag Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn Ártorgi 1 550 Sauðárkrókur & 455 4500 www.ks.is N Ý PR EN T eh f AÐSENT | Þuríður Harpa, Rúnar Björn og Katrín skrifa Til hamingju með að ná kjöri. Nú er mikilvægt að vanda sig. Eitt af því sem kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á er að þeirra sveitarfélag hafi samráð við fatlað fólk. Nú er lag að nýjar og endurkjörnar sveitarstjórnir gæti að lagaskyldu sinni til að koma upp notendaráðum fatlaðs fólks í hverju sveitarfélagi. Fjölmörg sveitarfélög hafa nú þegar góða reynslu af slíku fyrirkomulagi sem skilar sér í betri ákvörðunum og betri nýtingu á fjármagni, auk þess sem samfélög sem viðhafa samráð verða betri staðir til að búa á. Hvort sem sveitarfélög hafa starfrækt notendaráð áður, eða hyggjast leggja af stað í þá vegferð núna, þá er mikilvægt að kalla strax eftir tilnefningum frá hagsmunafélögum fatlaðs fólks um einstaklinga á svæðinu til að sitja í þessum ráðum. Undirrituð hafa verið í sambandi við fatlað fólk í notendaráðum um allt land undanfarin misseri á reglulegum fundum. Auk þess höfum við átt samtal við starfsfólk sveitarfélaga og kjörna fulltrúa um þessi mál. Af þeirri reynslu höfum við lært að það virkar vel að kjörnir fulltrúar sitji í slíkum ráðum og séu þannig í beinu talsambandi við fatlaða íbúa í stefnumótun og ákvarðanatöku. Vel hefur gefist að starfsfólk sveitarfélaganna sé frekar í stuðningshlutverkum í þessum nefndum. Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skipan og starfrækslu notendaráða: • Leitast við að hafa hóp fulltrúa fatlaðs fólks ekki of lítinn þannig að fjölbreytileiki náist. • Tryggja að fatlað fólk sé ekki í miklum minnihluta í notendaráðinu. • Greiða fyrir setu í ráðinu líkt og greitt er fyrir í öðrum fastanefndum. • Passa að fundir séu haldnir í aðgengilegu húsnæði og að gögn séu send með hæfilegum fyrirvara fyrir fundi til að hægt sé að kynna sér þau í þaula. • Við skorum hér með á sveitarstjórnarfulltrúa sem þetta lesa, að gera málið að sínu og tryggja að samráð við fatlað fólk sé til fyrirmyndar í ykkar sveit. Ekki hika við að hafa samband hvort sem er í síma eða tölvupósti mottaka@obi.is. ÖBÍ er boðið og búið að aðstoða ykkur varðandi þessi mál og auðvitað til þess að fá tilnefningar um fatlað fólk til samstarfs. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA-miðstöðvarinnar Katrín Oddsdóttir, mannréttindalögfræðingur Opið bréf til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa! Katrín, Rúnar Björn og Þuríður Harpa. MYND: AÐSEND

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.