Feykir - 08.06.2022, Page 7
Ragnheiður Björk Þórsdóttir,
veflistakona er höfundur
Sumarsýningar Heimilis-
iðnaðarsafnsins 2022. Nefnist
sýningin ÞRÁÐLAG og opnaði
Ragnheiður hana
sunnudaginn 29. maí sl. að
viðstöddum gestum. Verkin
eru flest ný og gefa góða
innsýn í fjölbreyttan heim
veflistarinnar. Við opnunina
sungu og spiluðu hjónin
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og
Jón Ólafur Sigurjónsson
(Hugrún og Jonni) nokkur lög
við góðar undirtektir
áheyrenda.
Í ávarpsorðum Elínar
safnsstjóra, kom fram hve
Sumarsýningarnar hafi ævin-
lega verið ólíkar, en eigi þó
það sameiginlegt að gefa
innsýn í fjölbreyttan listiðnað
og handmennt íslenskra
kvenna. Oft hafi verkin verið
innblásin af munum safnsins
og bæði sjónrænni og
Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins opnar með pompi og prakt
Verkin gefa góða innsýn í
fjölbreyttan heim veflistarinnar
hugmyndafræðilegri upplifun
af verkum sem varðveitt eru í
safninu. Benti hún sérstaklega
á ákveðin verk Ragnheiðar
þar sem leiðarstefið er
svuntudúkur sem unninn var
um aldamótin 1900.
Dúkurinn var ofinn úr fínasta
þræði sem vitað er um að hafi
verið handspunninn úr ull á
Íslandi. Eru 25 þræðir í einum
sentímetra en í verki Ragn-
heiðar teljast sex þræðir í
sentímetra, úr fínasta þræði
sem fáanlegur er í dag.
Nú eru nítján ár frá því fyrsta
sérsýning Heimilisiðnaðar-
safnsins var opnuð og líkja
má þessum þætti í starfsemi
safnsins við lítið frjó sem í
tímans rás hefur borið
ríkulegan og fjölbreyttan
ávöxt.
Þá rifjaði Elín upp að
föðuramma Ragnheiðar og
nafna, Ragnheiður Brynjólfs-
dóttir, hafi verið kennslukona
í Kvennaskólanum um árabil
og svo hafi það gerst að
sonardóttir hennar hafi
nánast stígið í fótspor ömmu
sinnar en undanfarin 5-6 ár
hefur Ragnheiður Björk
starfað hjá Textílmiðstöðinni
í Kvennaskólanum.
Ragnheiður er hámenntuð á
sviði vefnaðar, hún hefur
haldið fjölda einkasýninga og
tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum hérlendis og
erlendis. Hún starfaði við
Verkmenntaskólann á Akur-
eyri í 30 ár þar sem hún var
m.a. kennslustjóri listnáms-
brautar og vefnaðarkennari
skólans.
Þess skal getið að sýning
Ragnheiðar er sölusýning.
Heimilisiðnaðarsafnið er opið
alla daga frá 1. júní til 31.
ágúst frá kl. 10:00 til 17:00 og
á öðrum tímum ársins
samkvæmt sérstöku sam-
komulagi.
/Elín S. Sigurðardóttir,
safnstjóri Heimilsiðnaðar-
safnsins
Elín safnstjóri og Ragnheiður veflistakona. MYND: AÐSEND
Hluti gesta við opnun sýningarinnar. MYND: AÐSEND Hugrún Sif og Jón Ólafur sungu og spiluðu við opnunina. MYND: AÐSEND
VERKFRÆÐISTOFA
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Norðurá bs auglýsir eftir verkstjóra við urðunarstaðinn
Stekkjarvík við Blönduós
Um er að ræða afleysingastarf vegna veikinda á tímabilinu 1. september – 31. desember 2022
með möguleika á áframhaldandi starfi. Starfshlutfall 100%.
Í starfinu felst almenn umsjón með rekstri urðunarstaðarins, stjórn á starfsmannahaldi móttaka, vigtun
og skráning á sorpi til urðunar og skil á upplýsingum um magn og annað sem varðar rekstur staðarins.
Einnig vinna á sorptroðara og öðrum vinnuvélum við frágang í urðunarhólfi. Um er að ræða afleysinga-
starf vegna veikinda en góðar líkur á áframhaldandi starfi að afleysingatíma loknum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Vinnuvélaréttindi
• Almenna tölvukunnáttu ásamt því að viðkomandi geti unnið sjálfstætt.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund er skilyrði.
• Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi kostur svo og reynsla af viðhaldi og viðgerðum vinnuvéla.
• Áhersla er lögð á að viðkomandi sé skipulagður og sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi
og hafi snyrtimennsku og virðingu fyrir umhverfinu að leiðarljósi.
• Lögð er áhersla á að viðkomandi sé úrræðagóður og stundvís.
Launakjör fara eftir samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2022.
Nánari upplýsingar veitir Magnús B. Jónsson, s: 899 4719, mbjorn@simnet.is
og þær má jafnframt nálgast á www.stekkjarvik.is
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið mbjorn@simnet.is
22/2022 7
Við óskum
sjómönnum
til hamingju með daginn