Feykir - 05.12.2022, Síða 2
Jólin mín
Tjörvi Geir Jónsson | Sauðárkróki
Molduxamótið ómissandi
Hvað kemur þér í jóla-
skap? Þegar snjórinn
fellur.
Hvenær byrjarðu
að jólaskreyta? Á
aðventunni.
Er búið að kaupa
eitthvað af jólagjöfum?
Nje, er oftast frekar seinn
í því.
Hvert er besta jólalagið?
Christmas Time með
Smashing Pumpkins.
Sendir þú jólakort? Nei,
hef ekki verið duglegur
í því.
Hvað finnst þér
ómissandi að gera yfir
hátíðirnar? Taka þátt
í jólamóti Molduxa í
körfubolta og borða góðan mat með mínu fólki.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Þykir alltaf gott að fá brækur og
sokka.
Bakar þú fyrir jólin? Nei, plata Þorgerði í það.
Hver er uppáhaldskökusortin þín? Úff ég er ekki viss…
Jólin eru…tími barnanna. /KBS
„Þegar hátíð fer í hönd búa menn sig undir
hana hver á sína vísu.“ – Þannig hefst sagan
Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson, sem segir
frá honum Benedikt sem fór í byrjun jólaföstu
á fjallaslóðir til að leita eftirlegukinda og með
honum í för voru hundurinn hans, hann Leó
og forystusauðurinn Eitill.
Gunnar lagði grunninn að sögunni Aðventu
með smásögu sem birtist í danska tímaritinu
Julesne árið 1931 og hét sagan þá Góði hirð-
irinn.
Ekki er vafi á því að rætur sögunnar má
finna í Biblíunni t.d. í sögunni um góða hirð-
inn, sem fór til þess að leita þess eina sauðar
sem vantaði í hjörðina þar.
Í Biblíunni er sú frásögn dæmisaga þar
sem Jesús er hinn góði hirðir og eins má
segja í Aðventu, þar sem Fjalla-Bensi er í því
hlutverki.
Góði hirðirinn sem leitar að hinum týnda og
finnur. Kristur sem kemur á aðventu til okkar
þegar myrkrið er hvað mest og dagurinn
stystur.
Enda vísar orðið Aðventa til þess og
merking þess á latnesku er einmitt það, að
koma – hann kemur. Aðventuljósin okkar taka
einnig undir þá merkingu og segja með skini
sínu: Velkominn vertu.
Það var á aðventunni fyrir tveimur árum
sem við fórum fjórir félagar fram í Austurdal
í Skagafirði. Tilgangur ferðarinnar var að fara
í Ábæjarkirkju og taka þar upp aðventustund
sem sýnd var á fésbókarsíðu kirkjunnar í
Skagafirði.
Það var covid tími og slíkar upptökur voru
sýndar dag hvern á aðventunni úr öllum
kirkjum Skagafjarðar.
Þegar við vorum að ganga síðasta spölinn
að kirkjunni kom sagan Aðventa upp í
hugann og varð eiginlega ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum. Þar í kyrrð fjallanna gat
maður gert sér í hugarlund líf fyrri kynslóða,
sem áttu allt undir duttlungum náttúrunnar og
því, hvernig búsmalanum reiddi af.
Hljótt var í dalnum nema árniðurinn sem
barst til kirkjunnar. Þar inni áttum við helga
stund. Kirkjan í dalnum lifnaði við, varð lifandi
helgidómur um stund og þjónaði því hlutverki
sem hún var í upphafi reist til að sinna.
Fyrsta kirkjan sem Guðjón Samúelsson
teiknaði. Margar komu þær svo í kjölfarið. En
hún var fyrst og stendur enn og hefur gert í
heila öld. Kallaði til sín fólkið úr dalnum á
helgum dögum, til hvíldar og uppbyggingar.
Eflaust hefur svo einnig verið í aðventu-
byrjun. Þegar hátíð fór í hönd og undirbúa
þurfti jólaföstuna hið innra. Sjálfsagt hefur hinn
veraldlegi undirbúningur ekki verið marg-
brotinn í dalnum. Samt hefur tilbreytingin verið
mikil frá hinum venjubundna hversdagsleika.
Kannski meiri en við upplifum nú til dags. -
Þrátt fyrir allt sem nú er í boði. Ljósadýrð og
tilboðsdaga, sem flestir bera erlend nöfn.
„Þau lýsa fegurst, er lækkar sól, í blámaheiði
mín bernskujól,“ kvað Stefán frá Hvítadal.
Eftir stundina í kirkjunni var gengið til baka
og haldið heim. Ég leit til baka til kirkjunnar
sem ein stendur eftir í dalnum og upp í hugann
kom eftirfarandi:
Eins og varðmaður
vakir hún yfir byggðinni,
sem eitt sinn var.
Og minnir fjármenn á,
sem þar fara um á aðventu,
að Kristur er nálægur.
Einnig hér.
Guð gefi okkur öllum gleðilega jólahátíð.
Gísli Gunnarsson
JÓLAHUGLEIÐING | Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal
Hátíð fer í hönd
ÚTGEFANDI
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Sími 455 7176, feykir@feykir.is
RITSTJÓRI & ÁBM.
Páll Friðriksson
palli@feykir.is
BLAÐAMENN
Óli Arnar Brynjarsson
oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir
siggag@nyprent.is
Klara Björk Stefánsdóttir
klara@nyprent.is
FORSÍÐUMYND
Nýprentsfólk.
PRÓFARKALESTUR
Fríða Eyjólfsdóttir o.fl.
AUGLÝSINGASÖFNUN
Sigríður Garðarsdóttir
UMBROT & PRENTUN
Nýprent ehf.
JólaFeykir er prentaður í
3600 eintökum og er dreift
frítt í öll hús í Skagafirði og
í Húnavatnssýslum.
Jólin mín
Jón Guðni Karelsson | Sauðárkróki
Mömmukökurnar í uppáhaldi
Hvað kemur þér í jóla-
skap? Þegar frú Rakel
er byrjuð að sjóða
rauðkálið.
Hvenær byrjarðu að
jólaskreyta? Enginn
sérstök tímasetning á því.
Er búið að kaupa eitthvað
af jólagjöfum? Jebb.
Hvert er besta jólalagið?
Dansaðu vindur.
Sendir þú jólakort? Það
er að mestu leyti hætt.
Hvað finnst þér
ómissandi að gera yfir
hátíðirnar? Það er svo
margt get ekki valið eitt.
Hvað langar þig að fá í
jólagjöf? Ekki hugmynd.
Bakar þú fyrir jólin? Já
það er bakað á heimilinu en ég á engan heiður af því.
Hver er uppáhaldskökusortin þín? Mömmukökurnar.
Jólin eru… róleg og góð. /KBS
2 2022
2022