Feykir - 05.12.2022, Qupperneq 20
Diskódísir er hópur vinkvenna sem varð til þegar
níu húnvetnskar dömur tóku þátt í söngvakeppni
sveitarfélagsins. Lagið sem þær völdu að flytja var
Fagra litla diskódís með Ðe lónlí blú bojs og var
því tilvalið að kalla hópinn það. Fyrst um sinn var tilgangur þátttökunnar meira til
gamans en þar sem meðlimir hópsins eru margir hverjir að kafna úr keppnisskapi
breyttist þetta fljótt í heimsmeistaramót í söng. Stífar æfingar og margra klukkutíma
hárgreiðslur (engar ýkjur) skiluðu þeim þó ekki fyrsta sætinu, en þær fóru heim
með verðlaun fyrir bestu sviðsframkomu og búninga. Með tímanum hefur þessi
hópur stækkað og saman stendur nú af 14 vinkonum.
Hópurinn tengist á ýmsan hàtt. Stór hluti hans eru æskuvinkonur sem tengjast flestar
í gegnum hestamennskuna. Hópurinn stækkaði síðan jafnt og þétt, við bættust systur,
aðrar eiga húnvetnska kærasta…eða áttu einu sinn húnvetnska kærasta. Þetta er þéttur
hópur sem hefur brallað margt saman og farið víða. Þær hafa setið í sveitarstjórn, farið
á Ólympíuleika og heimsleika í crossfit, unnið Staðarskálamótið í körfubolta, verið í
sóknarnefnd, skipulagt bæjarhátíðir, farið í háskóla í útlöndum, unnið sem lögga, keyrt
sjúkrabíl, orðið Íslandsmeistari í íslenskri glímu, hindrunarstökki og körfubolta og
svona mætti lengi telja (enda er lífið bara keppni). Þær búa núna í sex póstnúmerum
víðsvegar um landið, eiga samtals 38 börn og eitt barnabarn, sem eru þá 2,714 börn
á konu. En þess má geta að meðalfrjósemi íslenskra kvenna er 1.72 börn á konu. Þær
eiga samtals 29 gæludýr, að frátöldum búfénaði eða hótelhundum.
Uppátæki Dísanna eru margvísleg; utanlandsferð, óvissuferð til Reykjavíkur, köku-
étandi slúður kvöld, quiz á zoom og það nýjasta, veiðiferðin mikla í Víðidal. Þær eru
virkar á samfélagsmiðlum og halda uppi háleynilegum Facebook hópi og Snapchat
grúppu. Þar eru haldnir hátíðlegir vikulegir tuðmánudagar, markmiðamiðvikudagar
og þakklætisföstudagar.
UMSJÓN
Klara Björk Stefánsdóttir
Veisluþáttur JólaFeykis
Húnvetnskar
Diskódísir
FANNEY DÖGG
Hrökkkex
Hráefni:
1 poki mozzarella
2 dl hörfræ
2 dl graskersfræ
1 dl chia fræ
1 dl möndlumjöl
1 dl vatn
2 egg
Himalaya salt
Aðferð: Blanda öllu saman í skál og setja á plötu
með bökunarpappír.
Bakist við 180 gráður á blæstri í 15-18 mínútur.
Efsta röð frá vinstri: Þórey, Hrund, Tóta og Þóranna,
Miðröð: Eydís, Guðrún Ósk, Ingveldur, Sonja, og Sveinbjörg. Neðsta röð: Jóhanna,
Hjördís, Hafdís, Fanney og Rósa neðst til hægri. AÐSENDAR MYNDIR
ÞÓRANNA
Gullni
meðalvegurinn
Uppskrift:
Vínbúðin
Smáragrund 2
550 Sauðárkrókur
Opið: mán-fim 11-18
fös-11-19
Lau 11-16
Aðferð: Skottist og náðið ykkur í þessa dýrindis
drykki og njótið þess að dreypa á þeim á
aðventunni.
GUÐRÚN ÓSK
Baby Ruth
Hráefni:
3 eggjahvítur
2 dl sykur
1 tsk. vanilludropar
2 tsk. lyftiduft
2½ dl salthnetur
25 Ritzkex
Aðferð: Þeytið eggjahvítur og sykur. Myljið
saman salthnetur og kex með því að setja í
plastpoka og berja með glasi inni í pokann…
Blandið öllu varlega saman.
Setjið í smurt hringlaga bökunarform. Bakið í 20
mínútur á 175°C.
Krem:
3 eggjarauður
60 g flórsykur (1 dl)
50 g smjör
100 g suðusúkkulaði
Þeytið eggjarauður og flórsykur, bræðið smjörið
og súkkulaðið í vatnsbaði (eða örbylgjuofni)
og hrærið saman. Kakan þarf helst að standa í
kæli í nokkra tíma áður en hún er borin fram.
Kakan geymist vel í kæli í nokkra daga og verður
jafnvel betri, sérstaklega með góðum kaffibolla.
HRUND
Bestu smákökur í heimi
Hráefni:
50 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 egg
1 eggjarauða
1 tsk vanilludropar
80 g sykur
25 g muldar heslihnetur
75 g hveiti
¾ tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
Aðferð: Stillið ofninn á 180°C yfir og undir
hita. Bræðið smjörið og suðusúkkulaðið í potti.
Látið kólna. Hrærið eggið, eggjarauðuna og
sykurinn vel saman í hrærivélþar til verður
létt og ljóst. Bætið í 1 tsk af vanilludropum út
í og súkkulaðidropum, hrærið varlega með
sleif. Næst er hnetunum, hveitinu, lyftiduftinu og
saltinu bætt út í. Sett á smjörpappír með teskeið,
passið að hafa gott bil á milli. Bakið í níu mínútur
í ofni.
20