Feykir - 05.12.2022, Page 24
Fram kemur að Guðbjörg og
Jóhannes hafi stofnað heimili á
Hafragili í sömu sveit, í hús-
mennsku, en sá búskapur fékk
ekki að vara lengi, því Guðbjörg
andaðist þegar Sigurrós var
tveggja ára. „Var þá Sigurrós
komið að Keldulandi í Skaga-
hreppi og ólst hún þar upp að
tvítugsaldri hjá Lárusi Einari
Björnssyni, bónda, og bústýru
hans Guðrúnu Ólafsdóttur. Þetta
var orðlagt myndarheimili
og gæða fólk. Sigurrós var
skýr í hugsun, sjálfstæð í
skoðunum, vinnugefin og
lagvirk, ljóðelsk og bókelsk
og bar gott skyn á fjármuni.
— Hún var hversdagslega
fáskiptin en vinföst og
trygglynd, líktist hún föður
sínum sem var atorku-
maður til sjós og lands.
Sigurrós dvaldi á ýmsum
stöðum í Skagafirði við
sveitastörf og þótti ágætt hjú.
Lengst mun hún hafa dvalið í
Valadal. Sigurrós stofnaði heim-
ili 1945 með Jóni Þórarni Jóns-
syni frá Æsustöðum í Langadal.“
Eftir að Rósa missti eiginmann
sinn stundaði hún frystihúsvinnu
og vann síðar á saumastofunni
Víolu á Skagaströnd. „Var hún
sístarfandi, hugurinn var við það
að sjá sér farborða og vera
sjálfstæð í lífinu er henni tókst
mætavel. Nágrönnum sínum var
hún trygglynd og gladdist yfir
að sækja heim Kelduland á
sumarhelgum.“
Jafnframt er rakið í Húna-
vökuritinu að þau Rósa og Jón
hafi eignast eina dóttur barna,
Guðrúnu Sigurlínu, „er ólst upp
með foreldrum sínum og var
snemma myndarstúlka og vel
gefin.“ Hún er gift Birgi
Ögmundssyni vélvirkja og eru
þau búsett í Reykjavík. Börn
þeirra eru Jón Þór, Ingibjörg,
Lilja og Sigurrós.
Erum við þá komin að teng-
ingunni sem nefnd var í upphafi.
Sigurrós og Jón Þór, eða Jónsi í
Sigur Rós.
Sigur Rós er á heimsvísu ein
frægasta hljómsveit sem Ísland
hefur alið af sér og hefur selt yfir
milljón plötur í allt, segir á
Wikipedíu. „Sveitin var stofnuð
í ágúst 1994 af þeim Jóni Þór
Birgissyni (Jónsa), Georg Hólm
og Ágústi Ævari Gunnarssyni.
Nýfædd systir Jónsa hlaut nafnið
Sigurrós Elín Birgisdóttir og
þaðan er nafn hljómsveitarinnar
komið.“ Varla þarf að nefna það
að stúlkan nýborna var skírð í
höfuð ömmu sinn-
ar og tengingin til
Rósu í Hvamms-
brekku fullkomn-
uð. Það er hreint
með ólíkindum að
Vangaveltur um tengsl heims-
frægrar hljómsveitar norður í land
Hvammsbrekka var
húsmannsbýli og landið
ávallt í eigu Reynistaðar-
manna. Ragnar Magnússon
fékk það á leigu hjá Jóni
Sigurðssyni á Reynistað,
byggði þar, girti og ræktaði.
Þegar hann fór þaðan 1945
seldi hann Sigurrós
Jóhannesdóttur, ávallt
kölluð Rósa, og Jóni
Jónssyni hús og girðingar
og voru þau síðustu
ábúendur í Hvammsbrekku.
Árið 1960 fluttust þau
hjónin að Geitagerði, ásamt
Guðrúnu dóttur þeirra, og
Hvammsbrekka fór í eyði.
Fimm árum síðar brugðu
þau búi og fluttu til
Skagastrandar.
Rósa var fædd 13. september
1912 á Keldulandi í Vindhælis-
hreppi en foreldrar hennar voru
Guðbjörg Jóhannesdóttir á Keldu-
landi og Jóhannes Jóhannesson á
Skíðastöðum á Laxárdal í Skefil-
staðahreppi. Meðal efnis í 25.
árgangi Húnavöku, riti Ung-
mennasambands Austur-Húna-
vatnssýslu, er Húnvetninga
minnst sem létust 1984 og þar a
meðal er þáttur um Rósu.
Úr fortíðinni palli@feykir.is
Sigurrós og Sigur Rós – Fáskiptin vinnukona og heimsfræg hljómsveit
hugsa sér þessi tengsl og þann
aðstöðumun sem kona norður í
landi, sem bjó við þröngan kost
og efalaust hefur þurft að taka á
honum stóra sínum í lífinu, og
barnabarn hennar, heimsfrægur
tónlistarmaður sem leggur heim-
inn að fótum sér, hafa upplifað í
sitt hvoru lagi á ólíkum tímum.
En hér verður ekki dvalið við
heimsfrægðina heldur verður
minningu Rósu haldið á lofti.
Fábreytt en
hátíðlegt jólahald
Til að fá smá innsýn í lífið norður
í landi upp úr miðri síðustu öld
hafði Feykir samband við Guð-
rúnu,, dóttur Rósu í Hvamms-
brekku, og bað hana um að rifja
upp æskuminningar úr norð-
lenskum sveitum. Varð hún vel
við bón blaðsins.
-Foreldrar mínir voru bæði
vinnufólk í Skagafirði og þegar
þau tóku saman áttu þau örugg-
lega mjög lítið og fengu því leigt
þetta litla kot, Hvammsbrekku,
sem var í eigu Reynis-staðar.
Leigan var sú að mamma vann
þrjár vikur á haustin við það að
gera slátur á Reynisstað. Eins
var hún stundum fengin til að
vinna á öðrum bæjum, svona
vinnuskipti, því að við þurftum
oft að fá hjálp eins og í heyskap.
Ég man hvað mér fannst leiðin-
legt þegar mamma var að vinna
annars staðar enda var hún þá
oft þreytt þó að hún kvartaði
ekki. Þegar ég stækkaði fékk ég
oft að fara með henni og lék mér
þá við strákana á Reynistað,
stelpurnar í Stóru-Gröf eða
strákana á Hafsteinsstöðum og
það var gaman. Svo eignaðist ég
góða vinkonu, Kristínu, sem var í
sveit á sumrin hjá afa sínum og
Hver skyldu tengslin vera á milli gamalla húsatófta norður í Skagafirði og heimsfrægrar hljómsveitar sem milljónir elska og
dá? Kannski langsótt en þó ekki. Myndin er samsett af teikningu Björns Björnssonar af húsinu í Hvammsbrekku, sem birtist í
Byggðasögu Skagafjarðar, og auglýsingaplakati af heimstúr Sigur Rósar í sumar.
24 2022