Feykir - 05.12.2022, Síða 31
saman að þeim fjölbreyttu verkefnum sem
við nú sinnum.“
Bjarni segir verkefnið vera svolítið
óhefðbundið fyrir þá félaga, a.m.k. í
samanburði við önnur sem þeir hafa
tekið að sér í gegnum tíðina, sem sé að
vissu leyti svolítið rómantískt, en þeir
félagar hafa fulla trú á því að það séu mikil
viðskiptatækifæri fólgin í því.
„Húnabyggð og nærsveitir eru einhvern
veginn hálf ósýnilegar á landakortinu
þegar kemur að ferðaþjónustu og okkur
finnst það illskiljanlegt því við vitum, eins
og allir sem þar hafa eytt einhverjum hluta
ævinnar, hvað svæðið hefur upp á að
bjóða og hversu mikil orka býr í fólkinu
sem þar býr.
Gamli bærinn á Blönduósi er mjög
sérstakur staður. Það er einstakt á Íslandi
og þó víðar væri leitað að til sé svo gott
sem ósnortinn bæjarkjarni sem eitt sinn
hýsti alla þjónustu, iðnað og innviði sem
einkenndi samfélag í blóma. Við fylgj-
umst með öðrum sveitarfélögum á Íslandi
keppast við að búa til slíka bæjarkjarna
með ærnum tilkostnaði og sögufölsun,
leyfi ég mér að segja, á meðan á Blönduósi
drýpur sagan af hverju strái. Hvert strá,
hver þúfa, hver nagli í gamla bænum
býr yfir sögu sem á erindi við sérhvern
Íslending sem og alla sem sækja landið
heim og við viljum taka þátt í því að gera
þeirri sögu skil. Í mjög grófum dráttum
skilgreinum við verkefnið út frá þeim
sjónarhóli.
Við höfum fest kaup á nokkrum
óskar öllum íbúum á Norðurlandi vestra
gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Við þökkum ykkur frábært samstarf undanfarin 30 ár.
Farskólinn býður upp á vottaðar námsleiðir
– náms- og starfsráðgjöf
– raunfærnimat
– greiningu á fræðsluþörfum
– námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir
farskolinn.is - 455 6010 - farskolinn@farskolinn.is
fasteignum í gamla bænum; hótelinu, tveim
hæðum í Helgafelli, sem er við hliðina á
hótelinu, Krútt brauðgerðinni og nokkrum
íbúðarhúsum og okkar plan er að byggja
smám saman upp vettvang sem býður upp
á góða aðstöðu fyrir þá sem vilja sækja
Blönduós heim, umvafða góðum mat og
annarri menningu sem og afþreyingu. Nú
er ég ekki að segja að Blönduós sé í dag
ekki áhugaverður áningarstaður og það er
margt jákvætt sem hefur verið gert síðustu
ár en það eru of fáir sem vita af öllu því frá-
bæra sem héraðið hefur upp á að bjóða.“
Vinna með
skemmtilegu fólki
Bjarni segir að horft sé á þetta verkefni sem
langtímaverkefni og áætlunum hagað í
samræmi við það. Byrjað er að gera hótelið
upp í samræmi við ákveðna strategíu sem
þeir hafa sett saman með aðstoð nokkurra
reynslubolta í bransanum. „Við viljum svo
byggja ofan á það með frekari valkostum,
t.d. nýta Krúttið í viðburðarhald og
fjölbreyttari matarmenningu. Þetta stefnum
við á að gera í nokkrum fösum því eins og
ég segi þá er þetta langtímaverkefni sem
við stefnum á að fylgja eftir næstu árin.“
Í gamla bænum, útskýrir Bjarni, er
fyrst og fremst verið að líta til svokallaðrar
visthæfrar ferðamennsku fremur en fjölda-
ferðamennsku þar sem viljinn standi til
þess að gestir heimsæki bæinn vegna
raunverulegs áhuga á svæðinu og að þeir
eyði meiri tíma en bara að rúlla í gegn.
„Þannig teljum við að við getum búið til
eftirsóknarverðari upplifun sem er í sátt
við samfélagið fremur en að hrúga inn
túristum sem bara strauja í gegn og með-
taka jafnvel ekki fegurð héraðsins.“
Bjarni telur að það hafi blundað í
mörgum Blönduósingum, bæði þeim sem
búa þar í dag sem og brottfluttum, að
upphefja gamla bæinn til fyrri dýrðar og
þeir alls ekki verið þeir sem hrintu því af
stað þar sem á svæðinu eru aðilar sem
þegar hafa rutt brautina. „Hótelið var til
sölu og eftir talsverða umhugsun ákváðum
við að láta slag standa og staldra ekki
bara við það heldur hugsa þetta í stærra
samhengi fyrir gamla bæinn í heild sinni.
Það má þó ekki skilja það þannig að það
sé okkar hugmynd að við leggjum hann
undir okkur. Þvert í móti er það okkar von
að þarna verði blómlegur og fjölbreyttur
rekstur sem er á höndum mismunandi
aðila sem deila ástríðu fyrir gamla bæn-
um og Húnabyggð í heild,“ segir Bjarni,
sannfærður um að þarna sé góð viðskipta-
hugmynd á ferðinni. „Og rúsínan í pylsu-
endanum er sennilega það að okkur
grunaði að þetta yrði gaman og að við
myndum vinna með skemmtilegu fólki við
að gera eitthvað fyrir æskulóðirnar sem
okkur þykir svo vænt um.“
Ótrúlegustu hlutir
mögulegir
Bjarni er sannfærður um að í Blöndu-
ósingum búi mikil orka en eitt sinn var
helsta baráttumálið að virkja Blöndu en
þeir félagar vilji virkja Blönduósinga. „Ég
tel að það séu fjöldamörg tækifæri fyrir
hugmynda- og atorkuríkt fólk á svæðinu
öllu. Við erum að vona að þetta verkefni
blási fólki svolítinn eldmóð í brjóst og fólk
þori að stíga fram með hugmyndir sínar
og framkvæmi þær. Það er t.d. almennur
skortur á afþreyingu. Fjölbreyttir menn-
ingarviðburðir væru lyftistöng og svo
mætti lengi telja. Það væri líka mjög gaman
ef verkefnið stuðlaði að samtakamætti í
samfélaginu. Ótrúlegustu hlutir eru mögu-
legir þegar fólk tekur höndum saman,
hugsar til langs tíma, laðar að og hlúir að
þekkingu. Vonandi sjáum við brottflutta
Blönduósinga eyða meiri tíma á gömlum
heimsslóðum, jafnvel að einhverjir þeirra
flytji aftur heim. Hver veit?“
- - - - -
Lengra viðtal við Bjarna Gauk
má nálgast á Feykir.is.
312022